Fréttablaðið - 22.07.2010, Blaðsíða 54
42 22. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni, keppir í dag og á morgun
í sjöþraut á heimsmeistaramóti 20 ára og yngri sem fram fer í Monc-
ton í Kanada. Helga er framarlega í sínum aldursflokki í sjöþraut og
það verður fróðlegt að fylgjast með henni á mótinu.
„Maður er búinn að vera að hugsa um þetta mót síðasta árið og
maður trúir því varla að það sé komið að þessu,“ sagði Helga Mar-
grét. Hún keppti í sinni fyrstu þraut í Ísrael á dögunum og fékk þá
5.757 stig en Íslandsmetið hennar er 5.875 stig frá því í fyrra.
„Ég myndi ekki vilja vera að fara í gegnum fyrstu þrautina á árinu
á þessu móti og það var mjög gott að fara í gegnum þessa
þraut í Ísrael þótt að hún hafi ekki gengið stóráfallalaust.
Mér finnst ég vera í miklu betra standi núna en þá. Ég
hlakka mikið til og geta varla beðið eftir því að byrja,“
segir Helga Margrét. Helga Margrét er með þriðja besta
árangurinn af þeim 28 stelpum sem taka þátt í mótinu
en segist ekki vera að hugsa um það hvort hún komist
á pall. „Ég hugsa ekkert út í það. Ég reyni að hugsa
um að ná mínum markmiðum í hverri grein fyrir sig og svo koma
bara stigin í ljós þegar ég kem í mark eftir 800 metra hlaupið. Ég er
ekki búin að skoða keppinautana og ætla ekki að gera það. Ég er
komin hingað til að gera mitt besta og svo kemur bara í
ljós hver verður best í lokin,“ segir Helga en bæði meiðsli
og matareitrun hafa truflað hana í undirbúningi sínum á
þessu ári.
„Þetta er búið að vera svolítið erfitt síðasta árið og ef
ég segi alveg eins og er þá er ég ekki eins vel undirbúin
og ég hefði viljað vera,“ segir Helga.
„Það er frábært að vera hérna. Ég er að koma
til Kanada í fyrsta skiptið og fæ að keppa á móti
öllum þessum frábæru stelpum. Ég er líka í svo
góðum félagsskap því systir mín er hérna með
mér. Mamma gaf mér það að borga undir
hana,“ segir Helga, en elsta systir hennar, Sigur-
björg, fór með til Kanada.
HELGA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR: Á MÖGULEIKA Á AÐ KOMAST Á PALL Í SJÖÞRAUT Á HM 20 ÁRA OG YNGRI
Mamma gaf mér það að bjóða systur minni með
> Fyrsti leikur Rúnars í KR-útvarpinu
KR-ingar spila í dag seinni leikinn sinn við FK Karpaty
L’viv í 2. umferð í undankeppni Evrópudeildarinnar. FK
Karpaty vann fyrri leikinn 3-0 á KR-velli í síðustu viku og
KR-liðið á því ekki mikla möguleika á að komast
áfram. Rúnar Kristinsson mun þarna stjórna
sínum fyrsta leik síðan hann tók við stöðu Loga
Ólafssonar sem var sagt upp á mánudaginn.
KR-útvarpið stefnir að því að vera með beina
útsendingu frá leiknum en hann hefst
klukkan 16.15 á íslenskum tíma. Útsend-
ing hefst klukkan 16.00. Þetta er 289.
útsending KR-útvarpsins frá upphafi
en sent er út á tíðninni 98,3.
FÓTBOLTI „Við erum að skrifa sögu
Breiðabliks, þetta er stærsti leik-
ur ársins þar sem það er gríðar-
lega mikið í húfi fyrir mig, alla í
liðinu og félagið,“ segir fyrirliðinn
Kári Ársælsson um leikinn gegn
Motherwell í kvöld. Blikar taka nú
í fyrsta sinn þátt í Evrópukeppni.
Blikar töpuðu fyrri leiknum úti
1-0 og þurfa því að sækja í kvöld.
„Við settum fáa menn í sóknina úti
þar sem við vildum ekki vera búnir
að tapa einvíginu fyrir seinni leik-
inn. Við gerum eflaust einhverj-
ar breytingar og við eigum góða
möguleika. Við megum bara ekki
fá á okkur mark,“ segir Kári.
Fyrirliðinn segir að Mothwer-
well yrði ofarlega í íslensku deild-
inni en helsti munurinn á liðunum
sé að þeir séu atvinnumenn sem
æfa meira. „En mér finnst þeir
ekki endilega framar í tækni eða
neitt slíkt. Þeir eru með gott lið og
þetta verður ekki auðvelt, hlutirnir
verða að falla svolítið með okkur.
Við erum litla liðið og það er bara
fínt,“ segir Kári.
„Ég ætla ekki að breyta neinu,“
segir þjálfarinn Ólafur Kristjáns-
son um mögulegar breytingar frá
fyrri leiknum. „Þetta snýst ekki
um að fara í meiri sóknarleik. Við
þurfum að halda þeim frá því að
skora, annars þurfum við að skora
þrjú sem er erfitt. Áherslurnar
verða svipaðar,“ segir þjálfarinn.
Blikar hafa verið duglegir að
skora í sumar og er Ólafur viss
um að liðið fái sín færi. „Við höfum
fengið færi í öllum leikjunum í
sumar. Við þurfum kannski að vera
aðeins kaldari en í fyrri leiknum
til að fá færin en við höfum skor-
að nóg í sumar. Það er annað yfir-
bragð á þessum leik en deildar-
leikjunum, þetta eru tveir leikir og
þeir eru yfir núna. Ég er viss um að
þeir vilja skora snemma til að opna
okkur og klára nánast leikinn.“
Hann vill að sínir menn geri
það vel sem þeir eru góðir í að
gera en Skotarnir eru kokhraust-
ir fyrir leikinn. Tom Hateley segir
að sjálfstraustið í liðinu sé mikið.
„Við trúum því að við getum unnið
leikinn og við erum ekki að fara
að pakka í vörn. Við trúum því að
við getum skorað eitt, tvö eða þrjú
mörk á Íslandi.“
Ólafur segir að hann hafi sínar
aðferðir til að halda spennustig-
inu réttu. Óneitanlega er mikið í
húfi hjá Blikum og liðið ekki verið
í þessari stöðu áður. „Maður finnur
ekki spennustigið fyrr en í klefan-
um á leikdag. Það hefur ekki verið
vandamál að halda því réttu og
verður það ekki núna. Við höfum
unnið vel í andlega þættinum hjá
okkur,“ segir þjálfarinn sem segir
að Motherwell sé klárlega sterkasta
lið sem Blikar hafi mætt á árinu.
„Þetta eru ólík lið, þeir eru mjög
öflugir. Þeir eru klárlega með
sterkasta lið sem við höfum mætt
í ár. En við ætlum að vera betri
en þeir í þessum leik. Við sett-
um okkur markmið fyrir mótið að
vinna einn leik í Evrópukeppninni
og við erum ekki búnir að vinna
hann enn þá. Nú fáum við tækifæri
til þess, við ætlum okkur áfram,“
segir þjálfarinn. hjalti@frettabladid.is
Bara fínt að vera litla liðið
Breiðablik brýtur blað í sögu sinni í kvöld þegar það spilar sinn fyrsta Evrópu-
leik á heimavelli. Liðið þarf að yfirvinna eins marks mun gegn skoska liðinu
Motherwell. „Við fáum alltaf færi og við þurfum að nýta þau,“ segir þjálfarinn.
AFSLAPPAÐIR Fyrirliðinn Kári Ársælsson og þjálfarinn Ólafur Kristjánsson voru afslappaðir seinni partinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
FÓTBOLTI Búið er að selja um þús-
und miða af þeim 1.340 sem í boði
eru á leik Breiðabliks og Mother-
well í kvöld. Forráðamenn Blika
sögðu við Fréttablaðið í gær að
um 150 stuðningsmenn Mother-
well myndu horfa á leikinn úr
gömlu stúkunni á Kópavogsvelli.
Aðeins er leyfilegt að selja
í sæti á Evrópuleikjum og því
komast aðeins 1.340 að í nýju
stúkuna. „Það kæmi mér á óvart
ef fólk fjölmennir ekki á leik-
inn. Þetta er fyrsti Evrópuleikur
Breiðabliks og staðan er nokk-
uð jöfn sem er ekki alltaf raun-
in með íslensk lið. Ég sé enga
ástæðu til að sitja heima,“ sagði
Ólafur Kristjánsson, þjálfari
Blika, en honum verður að ósk
sinni þar sem væntanlega verð-
ur uppselt á leikinn sem hefst
klukkan 19.15.
Fyrir þá sem ekki komast á
leikinn er hægt að sjá hann á net-
inu, á heimasíðunni www.livef-
romIceland.com, en þar kostar
1.500 krónur að fá aðgang á
leikinn. - hþh
Breiðablik-Motherwell í kvöld:
Þúsund miðar
seldir í stúkuna
FÓTBOLTI Breiðablik þarf að
horfa til Hafnarfjarðar í leit að
íslensku liði sem hefur slegið út
skoskt lið í Evrópukeppni. Það
var FH sem sló út Dunfermline
árið 2004 eftir hörku einvígi.
KR er eina félagið sem
hefur unnið leik gegn skosku
félagi utan FH, það var gegn
Kilmarnock árið 1999. Þórhallur
Hinriksson skoraði þá gott skalla-
mark á lokasekúndum leiksins
eftir sendingu frá Guðmundi
Benediktssyni.
Íslensk lið hafa háð tólf einvígi
gegn skoskum félögum en aðeins
unnið eitt þeirra og tvo leiki af
25. Fjórum leikjum hefur lyktað
með jafntefli en 19 tapast, nú síð-
ast í viðureign Blika gegn Mother-
well í fyrri leiknum úti. - hþh
Íslensk lið gegn skoskum:
Aðeins FH hef-
ur unnið einvígi
Íslensk lið gegn skoskum:
KR:
1967: Aberdeen (1-14)
1999: Kilmarnock (1-2)
Keflavík:
1973: Hibernian (1-3)
1975: Dundee United (0-6)
Valur:
1975: Celtic (0-9)
1993: Aberdeen (0-7)
ÍA:
1983: Aberdeen (2-3)
1985: Aberdeen (2-7)
1995: Raith Rovers (2-3)
FH:
1990: Dundee United (3-5)
2004: Dunfermline (4-3)
ÍBV:
2000: Hearts (0-5)
HRESSIR Stuðningsmenn Blika ætla að
vera heitir í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SIGUR Sverrir Garðarsson í fyrri leiknum
gegn Dunfermline sem lauk 2-2. FH
vann seinni leikinn 1-2. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Stuðningsmenn Blika
bíða í ofvæni eftir leiknum gegn
Motherwell í kvöld. Þeir ætla að
hittast á Players klukkan 12 en
þar verður dagskrá frá klukk-
an 15. Klukkan 18 verður svo
boðið upp á andlitsmálningu og
eru Blikar greinilega staðráðnir
í að styðja sína menn til sigurs í
kvöld. - hþh
Stór dagur hjá Blikum:
Hitað upp frá
hádegi
FÓTBOLTI FH hefur lokið keppni í Meistaradeild
Evrópu eftir 0-1 tap á heimavelli gegn BATE
Borisov frá Hvíta-Rússlandi og 6-1 samanlagt.
Verkefni FH-inga var vonlaust áður en blásið
var til leiks en liðið tapaði fyrri leiknum ytra,
5-1. Stuðningsmenn FH áttu líka hvorki von á
spennandi né áhugaverðum leik enda mættu
afar fáir á völlinn.
Ef einhverjir gerðu sér vonir um kraftaverk
gátu hinir sömu farið heim eftir um stundar-
fjórðungsleik. Þá skoraði BATE fyrsta mark
leiksins. Þrumufleygur frá Radzionau fyrir utan
teig sem Gunnleifur náði ekki að verja.
Leikurinn dó í raun eftir markið og var nú
ekki rishár fram að marki. Bæði lið hættu að
spila af einhverjum krafti og úr varð göngu-
bolti af allra leiðinlegustu gerð. Menn nenntu
ekki einu sinni að brjóta á andstæðingnum. Það
skein úr hverju andliti að menn vildu klára þetta
augljóslega leiðinlega verkefni í augum liðanna.
„Við mátum það þannig að þar sem þetta er
sterkt lið sem vann okkur stórt síðast að vera
ekki of æstir í upphafi. Þeir kunna nefnilega að
refsa þegar slitnar á milli varnar og miðju. Við
reyndum síðan meira í seinni hálfleik en þetta
var búið eftir leikinn í Hvíta-Rússlandi,“ sagði
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, en margir af
hans mönnum virtust vera farnir að hugsa um
leikinn gegn Haukum um næstu helgi.
Það var furðulegt að sjá hið fína knatt-
spyrnulið FH vera eins og litla gutta í hönd-
unum á Hvít-Rússunum. Hafnfirðingar höfðu
nákvæmlega enga trú á verkefninu eða eigin
getu og veittu enga mótspyrnu á neinum svið-
um. Þetta var grátlega lélegt. Þó svo BATE sé
klárlega betra lið þá er FH ekki þetta lélegt.
Frammistaða FH í gær var þeim ekki til sóma
og það verður seint sagt að þeir hafi fallið úr
leik með sæmd. Þetta var langt frá því að vera
boðlegt. - hbg
Andlaust og máttlítið lið FH tapaði öðru sinni gegn BATE Borisov í Meistaradeildinni:
Afar átakalítill sigur gegn döpru FH-liði
MIKLU GRIMMARI FH-ingar litu út eins og smástrákar
gegn BATE í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Þróttarar rifu sig upp úr
fallsæti með góðum sigri á HK á
Laugardalsvellinum í gær. Þeir
gátu ekki spilað á Valbjarnarvell-
inum líkt og venjulega þar sem
Rey-Cup mótið hófst þar í gær.
HK komst yfir þegar Birgir
Magnússon skoraði en Hjörvar
Hermannsson jafnaði aðeins
þremur mínútum síðar. Hörður
Bjarnason kom Þrótti yfir og
Hjörvar skoraði svo aftur.
Seinni hálfleikur var öllu
rólegri en Aaron Palomares
minnkaði muninn í 3-2 á lokasek-
úndunum. Það dugði ekki til og 3-
2 sigur Þróttar niðurstaðan. Liðið
er nú með fjórtán stig í sjöunda
sæti, einu minna en HK. - hþh
1. deild karla í knattspyrnu:
Þróttur fór upp
um þrjú sæti