Fréttablaðið - 19.08.2010, Page 46
19. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR16 ● fréttablaðið ● menningarnótt
● LEYNILEGAR ÓSKASTUNDIR
Leynifélagið stendur fyrir nokkrum óskastundum fyrir óskafólk á laugar-
daginn í Kramhúsinu við Bergstaðastræti. Þar taka Brynhildur og Krist-
ín Eva á móti leynifélögum, flutt verða
nokkur falleg og fáheyrð íslensk barna-
lög um óskir og drauma við undirleik
Vignis Stefánssonar píanóleikara og sagt
verður frá steinum og óskum. Stund-
in varir í fimmtán mínútur og er ætluð
leynifélögum á öllum aldri.
Leynifélagið er útvarpsþáttur sérstak-
lega ætlaður börnum á aldrinum sex til
tíu ára. Leynifélagið heldur fundi sína í
Leynilundi á mánudags-, þriðjudags-,
miðvikudags- og föstudagskvöldum
klukkan átta og fundunum er útvarpað
beint til félagsmanna á Rás 1.
Óskastundirnar á laugardaginn verða á heila og hálfa tímanum frá klukk-
an 14.30 til 16.
Landsbankinn hefur verið bakhjarl
menningarnætur frá upphafi, eða
frá árinu 1996, og er listaverka-
gangan með Aðalsteini Ingólfs-
syni listfræðingi einn langlífasti
viðburðurinn á dagskránni.
„Bankinn hefur í gegnum tíð-
ina keypt mikið af listaverkum af
innlendum listamönnum og á því
myndarlegt listaverkasafn. Hluti
þess hangir uppi í útibúum bank-
ans auk þess sem mörg listaverk-
anna hafa verið lánuð til lista-
safna. Listaverkasöfnunin hefur
verið eitt mikilvægasta framlag
bankans til menningar í gegnum
tíðina og leiðir Aðalsteinn gesti á
milli verkanna í aðalútibúi bank-
ans,“ segir Óskar Hafnfjörð Auð-
unsson, markaðsstjóri Landsbank-
ans.
Landsbankinn hefur verið með
höfuðstöðvar sínar í miðbæn-
um frá upphafi og hefur starfs-
fólk í aðalútibúinu að Aðalstræti
11 sterkar taugar til miðbæjarins
og menningarnætur að sögn Ósk-
ars. „Við viljum nú meina að þetta
sé fallegasta bankaútibúið á svæð-
inu og erum alltaf með sérstaka
dagskrá á menningarnótt.“ Óskar
segir Landsbankann síðan leggja
sitt af mörkum til stuðnings hinum
ýmsu listamönnum sem taka þátt í
menningarnótt. Við leggjum tvær
og hálfa milljón í pott. Listamenn
sækja svo um styrki til Höfuðborg-
arstofu sem hefur umsjón með út-
hlutun.“ Nánari upplýsingar um
listaverkagönguna er að finna á
www.landsbanki.is.
- ve
Langlíf listaverkaganga
Óskar við vegglistaverk eftir Kjarval á annarri hæð Landsbankans í Aðalstræti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Átján hundruð kórfélagar frá
tíu löndum taka þátt í stærstu
kórahátíð sem haldin hefur
verið á Íslandi en hún nær
hámarki á menningarnótt.
Sjötta norræna baltneska kórahá-
tíðin hófst á þriðjudag en hún er
haldin hér á landi í fyrsta skipti.
Þátttökulöndin hafa hingað til
verið átta en að þessu sinni var
kórum frá Færeyjum og Græn-
landi boðið að vera með. „Hér
eru því 67 kórar frá tíu löndum,“
segir Margrét Bóasdóttir, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar og
kórstjóri Kvennakórs Háskóla Ís-
lands.
Flytjendur á hátíðinni eru átján
hundruð talsins, þrettán hundruð
koma að utan en fimm hundruð
frá Íslandi. Margrét er sérstak-
lega stolt af þátttökunni á Íslandi
en sautján íslenskir kórar koma
fram. Þeirra á meðal eru Hamra-
hlíðarkórinn, Óperukórinn, Mót-
ettukórinn og Kammerkór Norð-
urlands svo dæmi séu nefnd.
Margrét segir markmið hátíðar-
innar að tengja saman fólk í söng
en undirtitill hátíðarinnar er „Un-
ited Voices“ eða sameinaðar radd-
ir. „Framkvæmdin er á þá leið að
öll löndin flytja eigin dagskrá en
auk þess leggja þau til þekkta kór-
stjóra frá sínu landi sem vinna
með kórfólkinu. Kórarnir æfa lög
frá öllum þátttökulöndunum og
þurfa allir því að berjast við öll
tungumálin. Í ár verður kórunum
svo í fyrsta skipti skipt upp í fjórar
vinnusmiðjur og á lokatónleikun-
um verður hver smiðja með
sérstaka dagskrá. Tón-
leikarnir enda svo á
því að allir kór-
arnir syngja
saman,“ segir
Margrét og á von
á tilkomumiklum söng
enda ekki oft sem átján
hundruð manns hefja upp raust
sína í einu.
Opnunartónleikar hátíðarinn-
ar fóru fram í Laugardalshöll á
þriðjudag. Á miðvikudag sungu
kórarnir svo í kirkjum og tónleika-
sölum úti um allan bæ og það sama
gildir á föstudag. Á menningar-
nótt verða þeir á hverju götuhorni
og enda á Arnarhóli klukkan hálf
sex. „Þar verða sungin tvö lög áður
en við höldum á lokatónleikana í
Laugardalshöll,“ segir Margrét.
Hún hefur eins og gefur að skilja
staðið í ströngu við skipulagn-
ingu hátíðarinnar en hún
segir kóra fólk svo lífs-
glatt og skemmtilegt að
vinnan gefi henni meiri
orku en hún taki. „Þetta kost-
ar hins vegar sitt en við fengum
myndarlegan styrk frá Norræna
menningarsjóðnum sem gerði
okkur þetta kleift.“ Nánari upp-
lýsingar um hátíðina er að finna
á choral.iii.is. -ve
Átján hundruð raddir
sameinast í kórsöng
Margrét segir markmið hátíðarinnar að tengja fólk saman í söng. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
af Icelandica & Davidsson
í tilefni Menningarnætur
20% afsláttur
Rammagerðin ehf 101 Reykjavík www.rammagerdin.is