Fréttablaðið - 07.09.2010, Blaðsíða 46
30 7. september 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. gljáhúð, 6. hvort, 8. árkvíslir, 9.
segi upp, 11. frá, 12. massaeining, 14.
krapi, 16. kúgun, 17. þrí, 18. við, 20.
til, 21. drykkur.
LÓÐRÉTT
1. klöpp, 3. í röð, 4. smíða óvandlega,
5. kóf, 7. ávöxtur, 10. frostskemmd,
13. gilding, 15. hinkra, 16. mæliein-
ing, 19. fisk.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lakk, 6. ef, 8. ála, 9. rek,
11. af, 12. gramm, 14. slabb, 16. ok,
17. trí, 18. hjá, 20. að, 21. malt.
LÓÐRÉTT: 1. berg, 3. aá, 4. klambra,
5. kaf, 7. ferskja, 10. kal, 13. mat, 15.
bíða, 16. ohm, 19. ál.
Jakob Jakobsson og maður hans,
Guðmundur Guðjónsson, ásamt
syni Jakobs, Jakob Einar Jak-
obssyni, munu reka nýjan veit-
ingastað í tónlistar- og ráðstefnu-
húsinu Hörpunni. Jakob eldri og
Guðmundur eru flestum að góðu
kunnir fyrir að eiga og reka smur-
brauðsveitingahúsið Jómfrúna við
Lækjargötu en Jakob yngri segir
aðdáendur hennar ekkert þurfa
að óttast, hún verði áfram á sínum
stað í þeirra höndum. „Þetta verð-
ur algjörlega nýr veitingastaður
með nýrri nálgun,“ segir Jakob
Einar í samtali við Fréttablaðið.
Þótt enn séu 239 dagar þar til
húsið verður vígt er undirbúning-
ur fyrir veitingasöluna kominn á
fullt. Nýja veitingahúsið úr smiðju
Jómfrúarmanna mun bjóða uppá
norræna smárétti, kokteila, vín og
bjór. „Þetta verður kjörið fyrir fólk
að koma, setjast við barinn eða fá
sér eitthvað smáræði í gogginn.
Þetta verður svona stemningsstað-
urinn í húsinu. Þegar fólk kemur
inn í Hörpuna verður miðasala á
hægri hönd en við á þá vinstri.“
Að sögn Jakobs Einars hélt
pabbi hans að sér höndum í góð-
ærinu þrátt fyrir mörg gylliboð
um að færa út kvíarnar. „Menn
héldu náttúrulega að hann væri
eitthvað klikkaður þegar
hann opnaði Jómfrúna á
sínum tíma, að vera með
veitingastað sem byði
bara upp á smurbrauð,“
útskýrir Jakob sem bætir
því hins vegar við að nýi
staðurinn verði ekkert í
líkingu við Jómfrúnna.
Og hugsanlega verði
ekki einu sinni boðið
uppá smörrebröd upp
á danska vísu eins
og Jómfrúin er
hvað þekktust
fyrir.
- fgg
Jómfrúarmenn með í Hörpunni
JÓMFRÚIN Í ÖRUGGUM HÖNDUM
Jakob Jakobsson, oftast kenndur
við Jómfrúna, mun opna
nýjan stað í tónlistar- og
ráðstefnuhúsinu Hörpunni
í samstarfi við son sinn,
Jakob Einar.
Mikil eftirvænting
ríkir fyrir skemmti-
kvöldi Frímanns
Gunnarssonar í
Háskólabíói 29.
september
þar sem
margir af
fremstu grín-
istum Norðurlandanna munu troða
upp. Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón
Gnarr, verður þar á meðal en Stöð 2
hyggst taka upp skemmtikvöldið og
sýna seinna meir.
Aðalstjarna kvöldsins
verður vitanlega danski
grínistinn Frank Hvam
en þetta var eina
dagsetningin sem
hentaði honum.
Hvam á sér dygg-
an aðdáenda-
hóp hér á landi
sem dýrka og dá
gamanþættina Klovn.
Hvam verður ekki einn síns liðs því
vinur hans, Casper Christiansen,
mun einnig koma til landsins þótt
það sé allsendis óvíst að hann
troði upp. Þeir félagar líta á þetta
sem stutt frí enda hafa þeir verið
ákaflega uppteknir við upptökur á
Klovn: The Movie.
Og það átti sér stað heldur óvænt
uppákoma í Borgarleikhúsinu um
helgina þegar tveir Ormar hittust í
fyrsta skipti. Þetta eru auðvitað þeir
Guðjón Davíð Karlsson og Alex-
ander Briem sem báðir leika Orm
Óðinsson í Gauragangi. Guðjón í
Gauragangssýningu Borgarleikhúss-
ins en Alexander leikur unglinga-
hetjuna í kvikmynd Gunnars Björns
Guðmundssonar sem frumsýnd
verður um jólin. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Söngkonan Hera Björk er nýkomin heim frá
Helsinki í Finnlandi þar sem hún söng á
árlegri dragsýningu.
„Finnunum finnst þetta mjög skemmti-
legt. Þarna var umhverfisráðherra Finn-
lands, ægilega margar stjörnur úr
finnskum sjónvarpsþáttum og fyrr-
verandi fegurðardrottningar. Þetta
var mjög gaman,“ segir Hera Björk.
„Finnarnir tóku vel á móti okkur
og það var komið fram við mann
eins og heimsfræga stjörnu.“
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Eurovision-dívunni því
stutt er síðan hún söng á Gay
Pride-hátíð í München í Þýska-
landi. „Ég fékk álíka góðar við-
tökur þar,“ segir hún.
Um næstu helgi tekur næsta
verkefni við þegar Hera syngur
á Eurovision-hátíð í borginni
Setubal, rétt fyrir utan Lissabon,
höfuðborg Portúgals. Þetta verða
útitónleikar fyrir allt að 2.500
áhorfendur. „Þetta er fyrsti
alvöru Eurovision-viðburðurinn
sem ég fer á eftir keppnina. Þetta verður
örugglega æðislega gaman. Þetta verður í
fyrsta skipti sem ég kem til Portúgals,“
segir Hera og hlakkar mikið til. Friðrik
Ómar syngur einnig á hátíðinni ásamt
hópi Eurovision-söngvara, þar á meðal
fulltrúum Portúgals og Sviss í
keppninni síðasta vor. „Það
verður gaman að hitta
svissneska strákinn aftur.
Við náðum vel saman í
Noregi. Hann var hopp-
andi og gargandi með
íslenska fánann
með fjölskyld-
unni minni þegar
ég var að keppa í
undanúrslitunum,“
segir Hera, sem
hefur greinilega í
nógu að snúast. -fb
Söng á dragsýningu í Helsinki
HERA BJÖRK Hera er
nýkomin frá Finnlandi
þar sem hún söng á
árlegri dragsýningu.
Stuttmyndin Örstutt jól í leik-
stjórn Árna „Súra“ Jónssonar
verður sýnd á kvikmyndahátíðinni
Fantastic Fest í Austin í Texas í
lok mánaðarins.
„Þetta er ákveðinn bónus að
fá myndina þarna inn. Ég sendi
hana inn eiginlega upp á djókið,“
segir Ómar Örn Hauksson, einn
af handritshöfundunum. Hann
viðurkennir að boðið á hátíðina
hafi komið sér á óvart bæði vegna
þess að Örstutt jól er fjögurra
ára gömul og að hún hefur hvergi
verið sýnd erlendis.
Ómar hefur tvívegis farið á
Fantastic Fest, sem er nokkurs
konar nördahátíð þar sem fant-
asíu- og hryllingsmyndir eru í
hávegum hafðar. Hann hefur
bæði farið sem aðdáandi og sem
blaðamaður kvikmyndasíðunn-
ar Twitchfilm.net en núna ræt-
ist gamall draumur með því að
eiga sjálfur mynd á hátíðinni.
„Fantastic Fest er búin að festa
sig í sessi sem hátíð sem vert er
að fara á. Þetta er sú hátíð sem
mig langar mest að komast inn á
með eitthvað,“ segir hann. „Þarna
gefst manni kannski tækifæri til
að koma stóru útgáfunni á fram-
færi því planið var að gera þessa
mynd í fullri lengd. En við sjáum
bara til,“ segir hann um Örstutt
jól.
Mikið verður um að vera á
Fantastic Fest í ár. Frumsýning-
armyndin verður Let Me In, end-
urgerð sænsku vampírumynd-
arinnar Låt den rätte komma in,
og einnig verður Buried, nýjasta
mynd Ryans Reynolds, frumsýnd
og fólk verður grafið lifandi í
kynningarskyni. Heiðursgestur
verður Woo-ping Yuen, slagsmála-
höfundur mynda á borð við The
Matrix, Kill Bill 2 og Crouching
Tiger, Hidden Dragon. Á síðasta
ári voru leikararnir Sam Rock-
well, Woody Harrelson og Alex-
ander Skarsgård úr þáttunum
True Blood á meðal gesta hátíð-
arinnar og árið áður mætti þang-
að Bill Murray. Ómar verður því
væntanlega í góðum félagsskap í
Texas í lok september.
Örstutt jól er blóðug, tíu mín-
útna mynd sem segir frá hópi
afvegaleidds ungs fólks sem held-
ur langt upp í sveit til að losa sig
frá öllum sínum djöflum. Með
helstu hlutverk fara Laufey Elías-
dóttir, Ísgerður Elfa Gunnarsdótt-
ir, Stefán Hallur Stefánsson og
Ari Matthíasson. freyr@frettabladid.is
ÓMAR ÖRN HAUKSSON: BÓNUS AÐ FÁ MYNDINA ÞARNA INN
Myndin Örstutt jól keppir á
þekktri nördahátíð í Texas
ÓMAR ÖRN HAUKSSON Ómar er einn af handritshöfundum stuttmyndarinnar Örstutt
jól sem verður sýnd á Fantastic Fest í Texas. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Það er einna helst djass og þá
Miles Davis og John Coltrane.
Ég hef stundum verið með fólk
rétt yfir tvítugt í vinnu og þá er
það Haukur Morthens sem á í
því hvert bein. Það er melódían,
laglínan og ekki síður textarnir
sem skipta þar mestu máli.“
Viktor Smári Sæmundsson, forvörður.
ÖRSTUTT JÓL Atriði úr stuttmyndinni
blóðugu, Örstutt jól.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 10.
1 Valur.
2 Katrín Ólafsdóttir.
3 Christchurch.
Sjónvarpið auglýsir eftir lögum til þátttöku í
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2011.
Þátttökueyðublað og reglur keppninnar eru á
heimasíðu RÚV: www.ruv.is/songvakeppnin
Höfundar skili lögum til Ríkisútvarpsins
ohf., Efstaleiti 1, 150 Reykjavík, merkt
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2011 eigi síðar
en mánudaginn 18. október 2010.