Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 34
8 föstudagur 10. september
af öðrum vörum
20%
afsláttur
Skokkar
Áður 16.990
NÚ 12.990
Kjólar
Áður 16.990
NÚ 12.990
Í FLASH
Stærðir 38-48
Stærðir 38-48
NÝ SENDING FRÁ PARÍS
Tískan verður á óformlegu nótunum en þó snyrtileg í haust og vetur. Köflóttar
skyrtur verða vinsælar hjá karlmönnum á meðan konurnar klæðast síðum
prjónapeysum sem þær reyra saman í mittið. Fylltir hælar, stígvél og reimaðir
skór verða áfram áberandi. Föstudagur fékk nokkra vel valda spekúlanta til að
lýsa hauststraumum tískunnar.
TÍSKULÖGGUR
LEGGJA LÍNURNAR
Afslappað og snyrtilegt. Þannig
lýsir Stefán Svan Aðalheiðarson,
starfsmaður hjá GK, herratísk-
unni í haust og vetur.
„Tískan verður nokkuð óform-
leg á næstunni, mikið um köfl-
óttar skyrtur og chinos-buxur,
sem hafa notið nokkurra vin-
sælda. Við þetta er svo sniðugt
að nota jakka og skó í fínni kant-
inum, einhneppta, aðsniðna og
fremur stutta jakka og svo ljós-
brúna eða koníakslitaða skó í
svona „Camebridge-lúkki“. Reim-
uð ökklastígvél eru líka mjög
heit.“ Jarðlitir, gráir og brúnir
tónar í bland við sterkari liti á
borð við rauðan og bláan og fjólu-
bláan verða að hans sögn áber-
andi á næstunni og sömuleiðis
gallaefni. „Hvað gallaföt varðar,
þá heldur þessi ljósi litur sem var
í sumar áfram og við bætist þessi
eilítið dökki litur sem er vinsæll
á veturna.“
Dömutískuna í haust og vetur
segir Stefán einkennast af kven-
legum sniðum. „Við eigum eftir
að sjá nokkuð af aðsniðnum kjól-
um úr fínu efni, svo sem silki og
flaueli, sem ná niður að hnjám.
Þetta er mjög klæðileg sídd sem
hentar konum á öllum aldri. Svo
eru það buxurnar sem ná hátt
upp í mitti, eru svolítið „loose“
efst og mjókka svo niður. Við þær
eða gott pils er tilvalið að klæð-
ast fallegri blússu og girða ofan
í. Nú, notalegar, víðar og fallegar
prjónapeysur eiga alltaf vel við á
veturna og ekki verra ef þær eru
úr kasmír.“ Þá getur hann þess að
gróf stígvél og „turna-hælar“ séu
það sem verði áberandi í skótísku
kvenna á næstunni.
Köflóttar skyrtur &
koníakslitaðir skór
Fylltir hælar, stígvél og her-mannaklossar. Í stuttu máli
sagt er þetta og á eftir að verða
heitast,“ segir Hildur Guðrún
Halldórsdóttir hjá GS skóm í
Kringlunni, innt út í skótísku
kvenna í haust og vetur. Stígvél-
in og hermannaklossana segir
hún fást bæði í fínum og gróf-
um afbrigðum sem henti jafnt
við hversdagsleg sem og fínni
tilefni. „Brúnt, hermannagrænt
og grátt er í tísku og svo er svart
alltaf inni.“ Þótt þetta séu vin-
sælustu skógerðirnar um þessar
mundir segir Hildur margt fleira
í boði. „Við erum ekki eingöngu
bundin af þessari tísku hjá GS
skóm heldur leggjum áherslu á
að hafa úrvalið sem fjölbreyti-
legast svo allir fái eittvað við
sitt hæfi.“
Fjölbreytnin ræður sömuleið-
is ríkjum í skótísku herra að
sögn Sindra Snæs Jenssonar, hjá
Sautján í Kringlunni. „Auðvitað
eru samt vissar gerðir heitari en
aðrar og sem dæmi get ég nefnt
að ökklastígvél og „desert boots“
frá Samso eru inni.“ Skóna segir
hann henta við öll tilefni. „Svo
eru líka í tísku sparilegir skór
með reimum og rúnaðri tá, en
támjóir skór eru úti.“ Svart og
dökkbrúnt segir hann einkenna
skóna, auk þess sem skór með
mynstruðum tám þyki flottir.
„Strigaskór frá Coverse standa
svo alltaf fyrir sínu.“
Eyðimerkurstígvél
& grófir klossar
Stefán Svan hjá GK segir herratískuna fremur afslappaða í haust og vetur.
Kvenleg snið og fín efni munu hins vegar ráða ríkjum í kventískunni.
Svöl tíska Stígvél og reimaðir skór með rúnaðri tá eru og verða áfram áberandi að
sögn Sindra hjá Sautján í Kringlunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tískan í haust verður fyrst og
fremst kósý eftir því sem Anna
Soffía Árnadóttir og Svala Lind
Þorvaldsdóttir í Rokki og rósum
komast næst. Stórar prjónapeys-
ur verði áberandi og mittin reyrð
saman með beltum.
„„Fifties“ tímabilið er að koma
mikið inn núna, með áherslu á
mittið. Litirnir verða camel, eld-
rauður, blár og brúnn og bolir,
skyrtur og peysur verða bundin
saman í mittið,“ segir Anna Soff-
ía. Hún segir ullarslár og ponsjó
einnig verða vinsæl í haust og
samfestingar af öllum gerðum
haldi vinsældum sínum, bæði
stuttbuxna og síðir. Þá sé gott
að vera í þykkum grófum ullar-
sokkabuxum við stuttbuxurnar.
- rat
Reyrð mitti
Anna Soffía Árnadóttir og Svala Lind Þorva
segja hausttískuna einkennast af kósýheitu