Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 30
4 föstudagur 10. september tíðin ✽ dansaðu! SJAMPÓ Í SPREYFORMI Batiste þurrsjampó er duft í sprey- formi sem þurrkar upp umframfitu í hárinu, án þess að þurrka sjálft hárið. Hárið lítur út fyrir að vera nýþvegið, ilmar vel og fær flotta fyll- ingu. Það er með sjö mismunandi ilmum og með brúnum litatóni. Þ að er klárt mál að þarna verður af nógu að taka, dansverk, gjörningar, innsetning- ar og tónlistaratriði og því eitthvað við allra hæfi,“ segir Hrafnhildur Einarsdóttir dansari, sem er um þessar mundir önnum kafin ásamt alþjóðlegum hópi listamanna við undirbúning á dans- og tónlistarhelgi sem fer fram í Klass- íska Listdansskólanum dagana 17.-19. sept- ember. Dans- og tónlistarhelgin er haldin að undir- lagi Raven dans- og sviðslistahópsins sem var stofnaður árið 2008 og er skipaður danslista- mönnum víðs vegar að úr heiminum og með- limum hollensku hljómsveitarinnar ATOS. Ákveðið var að blása til viðburðarins í tilefni af því að meðlimir hópsins, sem hafa aðset- ur í ólíkum löndum, eru nú í fyrsta skipti allir staddir á einum stað. Mismunandi verk verða sýnd, sem meðlimir hafa annað hvort unnið saman eða hvert í sínu lagi. „Við ætlum til að mynda að sýna nútíma- dansverkið Huldu - falið verk, sem tengist ís- lenskri náttúru og sögum, aðallega sögum af hinu dularfulla huldufólki,“ bendir Hrafnhild- ur á og bætir við að danslistaverkið hafi fyrst verið frumsýnt í London árið 2008. Síðan þá hafi hópurinn unnið áfram með verkið sem verður sýnt í lengri útgáfu og með lifandi tón- list í Klassíska Listdansskólanum um aðra helgi. Hún getur þess að þetta verk ásamt sóló- verki hennar Hrefnu verði sýnt á kvöldin en á sunndaginn standi svo yfir sýningar allan dag- inn á gjörningum, spennandi tónlistaratriðum og videólistaverkum af ýmsum toga. „Að gefnu tilefni vil ég geta þess að við stöndum fyrir námskeiði í Klassíska Listdans- skólanum núna um helgina, bæði á laugardag og sunnudag, spunanámskeiði þar sem þátt- takendum gefst færi á að kynnast því hvern- ig Raven-hópurinn vinnur. Áhersla er lögð á að draga fram listræna sköpun einstaklings- ins í hreyfingum og túlkun í samvinnu við lif- andi tónlist. Rúsínan í pylsuendanum er svo að þátttakendur í námskeiðinu fá að taka þátt í stuttu spunaatriði sem verður sýnt um dans- og tónlistarhelgina í næstu viku,“ segir Hrafn- hildur og tekur fram að þótt einhver reynsla af dansi sé æskileg sé öllum velkomið að mæta og spreyta sig, en þáttttökugjald er 2.000 krón- ur. Hún bætir við að allar nánari upplýsinn- gar sé að finna á vefsíðu Raven hópsins www. raven.is. - rve Alþjóðlegur hópur listamanna undirbýr nú dans- og tónlistarhelgi í Klassíska Listdansskólanum: INNSETNINGAR & ÞJÓÐSÖGUR Spuni Hrafnhildur Einarsdóttir er meðlimur í Raven dans- og sviðslistahópnum sem stendur fyrir spunanámskeiði í Klassíska Listdansskólanum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Verslunin Eyja opnaði í gær en þar er einungis boðið upp á íslenska hönnun. Þar selur eigandinn Eyrún Huld Árnadóttir eigin hönnun ásamt því að vera með vörur tíu annarra hönnuða í umboðssölu. Eyrún býr til fylgihluti úr roði og leðri ásamt því að gera armbönd úr áli og strútsleðri. Hún hafði orðið vör við nokkra eftirspurn og ákvað því að láta slag standa og opna verslun. „Ég hef valið inn hluti sem mér þykja fallegir og tek mér til fyrirmyndar litlar sætar versl- anir sem er að finna á víð og dreif erlendis.“ Búðin er staðsett að Hrísa- teig 19, í námunda við Frú Laugu. „Það á eftir að koma í ljós hvern- ig staðsetningin hentar en hér er í það minnsta mikil umferð enda Laugardalslaugin og Laugar stein- snar frá auk þess sem túrista- straumurinn er mikill á sumr- in. Eyrún býður aðallega upp á heimilismuni og fylgihluti í versluninni en sér svo fyrir sér að bæta við úrvalið þegar fram líða stundir. „Ég er svo með góða vinnu- aðstöðu og ætla mér jafnvel að bjóða þeim hönnuðum sem eru með vörur hjá mér að nýta sér hana til- tekna daga. Þannig geta þeir hitt viðskiptavini og við jafnvel skipst á innblæstri.“ - ve Ný verslun með íslenska hönnun í Laugarnesinu: Leður, roð og heimilismunir Eyrún selur eigin hönnun ásamt því að vera með muni eftir aðra íslenska hönnuði í umboðssölu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kemur út laugardaginn 11. september Sérblaðið Heimili og hönnun Auglýsendur vinsamlegast hafið samband: Hlynur Þór • hlynurs@365.is • sími 512 5439
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.