Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 54
34 10. september 2010 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Wayne Rooney varð um helgina nýjasta íþróttastjarnan sem verður uppvís að því að hafa
haldið framhjá eiginkonu sinni. Hann er þar með kominn í ansi vafasaman hóp íþrótta-
stjarna sem hafa átt erfitt með buxnastrenginn að undanförnu. Íþróttastjörnur eru mikl-
ar fyrirmyndir og stórfyrirtæki eru því ekki eingöngu að veðja á hæfileikana heldur einn-
ig framkomu leikmanna utan vallar. Enda ljóst að foreldrar vilja helst ekki leggja lag sitt
við íþróttastjörnu sem notfærir sér þjónustu vændiskonu á meðan eiginkonan er ólétt.
MEÐ MILLJARÐA Í LAUN OG
BUXURNAR Á HÆLUNUM
TIGER WOODS
Besti kylfingur heims
breyttist á einni nóttu úr
mestu fyrirmynd heims
í versta skúrk allra tíma.
Sá gríðarlegi fjöldi
hjákvenna sem Tiger
hafði lagt lag sitt
við kom heims-
byggðinni í opna
skjöldu enda héldu
flestir að hann væri
hinn fullkomni
íþróttamaður og
heimsins besti
eiginmaður.
FRANCK RIBERY
Frönsku útgáfunni af Lionel Messi
hafði verið spáð frægð og frama.
Öðru nær. Ribery hefur verið í
nánast stanslausum yfir-
heyrslum vegna gruns
um að hann hafi
átt í sambandi við
ólögráða vændis-
konu og hefur verið
kærður fyrir athæfi
sitt. Ferill Ribery
inni á vellinum hefur
eingöngu legið niður
á við.
JOHN TERRY
Allt varð brjálað á Bretlandseyjum
þegar upp komst að leiðtogi enska
landsliðsins hefði gamnað sér með
unnustu Wayne Bridge, liðsfélaga
síns hjá bæði Chelsea og enska
landsliðinu. Terry var í kjölfarið
sviptur fyrirliðabandinu og hefur
ekki náð sér almennilega á strik
eftir fjaðrafokið PETER
CROUCH
Sláninn frá Tot-
tenham komst í
mikil vandræði
þegar vændiskona
á Spáni upplýsti
að hún hefði veitt
Crouch sína þjón-
ustu en Crouch er
kvæntur Abbey
Clancy, velþekktri
fyrirsætu á Bret-
landseyjum.
ASHLEY COLE
Bakvörður Chelsea og enska lands-
liðsins er sennilega hataðasti maður
Bretlandseyja. Ekki vegna þess að
hann hélt framhjá, heldur vegna
þess að hann sveik óskadóttur ensku
þjóðarinnar, Cheryl Cole. Ashley
sendi hjákonum sínum meðal annars
símamyndir af sjálfum sér. Skilnaður
hans og Cheryl gekk í gegn fyrir
skemmstu.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
KRÍSUFUNDUR
Wayne Rooney hefur
samkvæmt fréttum bresku
pressunnar hringt nokkrum
sinnum í eiginkonu sína og
beðist afsökunar á fram-
ferði sínu. Breskir fjölmiðlar
eru hins vegar sannfærðir
um að hjónabandi hans
og æskuástarinnar, Coleen
Rooney, sé nú lokið enda
virðist leikmaðurinn ekki
hafa verið við eina fjölina
felldur.
> Á UPPLEIÐ
Leikkonan Christina Hendricks
hefur landað hlutverki í kvik-
myndinni Drive sem spáð er
miklum vinsældum. Þar mun
hún leika á móti Ryan Gosl-
ing, Carey Mulligan og Al-
bert Brooks. Hendricks
hefur slegið í gegn í
Mad Men en er nú
tilbúin að færa sig
yfir á hvíta tjaldið.
Kevin Federline dúkkar upp í banda-
rískum fjölmiðlum með reglulegu milli-
bili. Ekki þó vegna þess að þeir séu
svo áhugasamir um dans-eða rappferil
hans heldur af því að þeir vilja vita
hvað honum finnist um hin og þessi mál
sem tengjast fyrrum eiginkonu hans,
popp-prinsessunni Britney Spears. Fed-
erline, eða K-Fed eins og hann er jafnan
kallaður, hefur aldrei legið á skoðun-
um sínum en það kom mörgum á óvart
þegar hann óvænt tók upp hanskann
fyrir Britney.
Fyrrum lífvörður hefur kært Britn-
ey fyrir kynferðislega áreitni í sinn
garð og vanrækslu barna sinna. Líf-
vörðurinn, Fernando Flores, heldur
því fram að Spears hafi fimm sinnum
sært blygðunarkennd hans með kyn-
ferðislegum hætti og þar að auki fóðrað
syni sína á krabbakjöti þrátt fyrir að
búa yfir þeirri vitneskju að þeir væru
með ofnæmi fyrir slíkum mat.
Federline segir þessar ásakanir út
í hött en hann fer með forræði yfir
strákunum tveim. Lögfræðingur Fed-
erline, Mark Vincent Kaplan, sagði við
fjölmiðla að í huga skjólstæðings hans
væru þessar ásakanir eingöngu settar
fram með peninga í huga. „Hann veit að
þessar ásakanir eru tilhæfulausar með
öllu,“ sagði Kaplan en Federline fór
fram á það við barnaverndaryfirvöld í
Los Angeles að þau rannsökuðu málið.
Niðurstöður þeirrar rannsóknar leiddu
ekkert saknæmt í ljós.
K-Fed kemur Britney til varnar
TRÚIR BRITNEY Kevin Federline segir að ásak-
anir á hendur fyrrum eiginkonu sinni, Britney
Spears, eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.
Þær séu eingöngu settar fram til að græða
peninga. NORDICPHOTOS/GETTY
AULINN ÉG
BOLIRNIR FÁST Í EYMUNDSSON
Austurstræti, Kringlunni, Smáralind,
Hafnarfirði, Akureyri og Ísafirði
Hvítir bómullarbolir í barnastærðum.
Flottir bolir með prentun bæði að framan og aftan.
1.990 kr.