Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 26
Nytjasveppir í náttúru Íslands er yfirskrift fræðslufundar og göngu
sem haldin verður í Sesseljuhúsi á Sólheimum í Grímsnesi á laugardag-
inn klukkan 13. Gestum er bent á að taka með sér hnífa og bastkörfur
til að geta tínt sveppi.
Uppskeruhátíð Norræna hússins
verður haldin á morgun klukk-
an 14 en þá gefst gestum kostur
á að bragða á hinum ýmsu mat-
jurtum sem ræktaðar hafa verið
í eldhúsgarðinum við Norræna
húsið í sumar. Verkefnastjóri mat-
jurtargarðsins er matfræðingur-
inn Mads Holm en hann verður
einnig kynnir og stjórnandi hátíð-
arinnar.
„Þetta er annað árið sem ég er
með matjurtagarðinn og við rækt-
um eingöngu norrænar matjurtir
í honum. Við erum til dæmis með
alls konar kál, danskar baunir,
fjórar gerðir af íslenskum kartöfl-
um, rófur, radísur og dill en kokk-
urinn á veitingastaðnum Dill sem
er hérna í Norræna húsinu, Gunn-
ar Karl Gíslason,
notar eingöngu nor-
rænt hráefni í sína
matargerð og hann
hefur notað efni
úr þessum garði,“
segir Mads.
Á uppsker u -
hátíðinni verður
líka sultukeppni og
eru börn og fullorðnir
hvött til að taka þátt. „Allir
mega skila inn sultu en það er
gaman þegar fjölskyldan gerir
sultu saman,“ segir Mads. Dóm-
ari í sultukeppninni er kokkurinn
Gunnar Karl en þeir
sem ætla að taka
þátt verða að skila
sultunni inn fyrir
klukkan 12 á morg-
un í íláti merktu
nafni og heimil-
isfangi eða net-
fangi á botnin-
um.
„Svo verður
Felix Bergsson
með okkur og það
verður svona hátíð-
arstemning hérna,“
segir Mads og hvetur fjöl-
skyldufólk sérstaklega til að líta
við.
Nánari upplýsingar á www.nord-
ice.is. emilia@frettabladid.is
Norræn matjurtaveisla
Gestum verður boðið að smakka á uppskerunni úr eldhúsgarði Norræna hússins og veitingastaðarins
Dills á morgun á uppskeruhátíð í Norræna húsinu. Þeir sem vilja geta líka tekið þátt í sultukeppni.
Mads Holm og kokkurinn Gunnar Karl Gíslason huga að jurtunum í matjurtagarði Norræna hússins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leiklistarsmiðja fyrir börn á
aldrinum 8 til 12 ára verður
haldin í Gerðubergi á sunnudag-
inn.
Gerðuberg, í samvinnu við Mögu-
leikhúsið, stendur fyrir leiklistar-
smiðjunni sem fram fer í Gerðu-
bergi á sunnudaginn frá 14 til
16.
Umsjón með smiðjunni hafa Pétur
Eggerz og Alda Arnórsdóttir.
Smiðjan hefst með nokkrum
kynningarleikjum en síðan er
farið í gegnum ákveðna sögu eða
ævintýri. Krakkarnir sem verða á
aldrinum 8 til 12 ára spinna sína
útgáfu af sögunni. Til að ljá upp-
lifuninni enn meiri ævintýraljóma
fá krakkarnir að velja sér búninga
úr safni ævintýravagnsins. Leik-
ritið er síðan æft í fullum skrúða
og að lokum sýnt aðstandendum.
Einungis sextán krökkum býðst
að taka þátt í hverri smiðju en
skráning er á gerduberg@reykja-
vik.is. Þess má geta að smiðjan
verður endurtekin 3. október og
14. nóvember.
Ferð í ævintýravagni
Krakkarnir í leiklistarsmiðjunni fá að klæða sig upp á í búninga ævintýravagnsins.
Árleg fjölskylduganga á umhverfisdegi Kópavogs
fer fram á morgun. Lagt verður af stað frá Náttúru-
fræðistofu Kópavogs klukkan 11 og gengið
niður á Kópavogstún, síðan um Borgar-
holt og loks er hringnum lokað
með heimsókn á Náttúrufræði-
stofu Kópavogs.
www.kopavogur.is
LÍN DESIGN LAUGAVEGI 176, GAMLA SJÓNVARPSHÚSIÐ | SÍMI: 533 2220 | NETFANG: LINDESIGN@LINDESIGN.IS
TILBOÐIN ERU
EINNIG Í VEFVERS
LUN
LINDESIGN.IS
25% afsláttur af öllu í barnadeild fram á
laugardag. Falleg íslensk hönnun unnin
úr bestu fáanlegri bómull.
MJÚKT FYRIR BÖRNIN
Kópavogsdeild Rauða kross Íslands óskar eftir sjálfboðaliðum til
þess að sinna margvíslegum verkefnum deildarinnar.
Kynningarfundur verður haldinn í húsnæði deildarinnar
Hamraborg 11, 2. hæð mánudaginn 13. september kl. 18-19.
Heimsóknavinir
Föt sem framlag, prjónahópur
Plúsinn, starf fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára
Nýttu tímann, opið hús fyrir atvinnuleitendur
Starf með innflytjendum, ýmis verkefni
Námsaðstoð
Átaksverkefni
Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 - Opið alla virka daga kl. 10-16 - raudikrossinn.is/kopavogur
Við þurfum
fleiri sjálfboðaliða
Vertu með!
Um er að ræða verkefni sem henta körlum jafnt sem konum
og fólki á öllum aldri:
Nánari upplýsingar í síma 554 6626 og á kopavogur@redcross.is
Áhugasamir hvattir til að mæta!
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
Flóamarkaður í Frostaskjóli
ÝMIS VARNINGUR VERÐUR TIL SÖLU Á FLÓAMARKAÐI SEM HALDINN VERÐUR Í
HÚSNÆÐI FRÍSTUNDAMIÐSTÖÐVARINNAR VIÐ FROSTASKJÓL Á MORGUN.
Hefð hefur skapast fyrir flóamarkaði sem haldinn er í húsnæði Frístunda-
miðstöðvarinnar við Frostaskjól 2. Markaðurinn í ár er haldinn á morgun, 11.
september, og stendur yfir frá kl. 13-16. Fyrirkomulagið er það sama og áður
þar sem öllum er velkomið að koma og selja dótið
sitt, svo sem kompumuni, föt, sultur, prjónavörur,
eða annað sem fólk er að föndra, sér að kostnaðar-
lausu. Það er Frístundamiðstöðin Frostaskjóli sem
stendur að flóamarkaðinum í samstarfi við KR og
best er að senda póst á floamarkadur@gmail.
com til að skrá þátttöku. - jma