Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 10.09.2010, Blaðsíða 50
30 10. september 2010 FÖSTUDAGUR menning@frettabladid.is Sinfóníuhljómsveit Íslands stefnir á að vera í sínu allra besta formi þegar hún flyt- ur í Hörpu í vor. Hljóm- sveitin byrjar starfsárið af krafti í kvöld, þar sem Vík- ingur Heiðar Ólafsson leikur meðal annars öndvegisverk eftir Liszt og Rakmaninoff. Fjölbreytt dagskrá er á upphafs- tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói í kvöld. Vík- ingur Heiðar Ólafsson leikur eitt af öndvegisverkum Franz Liszt fyrir píanó og hljómsveit, sem og Paganini-rapsódíu Rakmaninoffs. Litrík balletttónlist Stravinskíjs við Eldfuglinn setur endapunkt- inn við efnisskrána. Að sögn Árna Heimis Ingólfs- sonar tónlistarstjóra vildi Sinfón- ían byrja starfsárið af krafti. „Þetta eru glæsiverk af ýmsum toga,“ segir hann. „Víkingur Heið- ar Ólafsson fær að láta gamminn geisa og við byrjum veturinn með trukki. Gefum tóninn fyrir árið og gefum svo í.“ Þetta er síðasta árið sem Sin- fóníuhljómsveitin verður til húsa í Háskólabíói en í vor flytur hún í tónlistarhúsið Hörpu. Árni Heimir segir mikla eftirvæntingu meðal hljómsveitarmeðlima. „Þetta er auðvitað búin að vera löng bið. Háskólabíó hefur verið heimili hljómsveitarinnar í næst- um því fimmtíu ár. Það er því mikið tilhlökkunarefni að fá loks- ins aðstöðu sem sæmir því starfi sem er unnið hér.“ Árni Heimir segir stór og lit- rík hljómsveit- arverk verða í öndvegi í vetur, þar sem mik- ill massi ólíkra hljóðfæra fái að njóta sín, til dæmis tvær sinfóníur eftir Mahler; Rómeó og Júlíu Prokofíevs, sinfóníur eftir Sjostakovitsj og Porgy og Bess eftir Gerswhin-bræður, sem hefur verið kallað fyrsta banda- ríska óperan. „Við ætlum að reyna að spanna eins vítt svið og við getum í ár,“ segir Árni Heimir. „Sýna eins margar hliðar á okkar starfsemi og mögulegt er. Við fáum líka fullt af frábærum hljómsveitarstjórum og einleikurum til liðs við okkur og stefnum á að vera í okkar allra besta formi þegar við flytjum í Hörpu í vor.“ Uppselt er á upphafstónleika Sinfóníunnar í kvöld en þeim verð- ur útvarpað á Rás eitt. bergsteinn@frettabladid.is Víkingur lætur gamminn geisa ÁRNI HEIMIR INGÓLFSSON FRÁ ÆFINGU Sinfónían byrjar vetrardagskrána með trukki. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Manneskjan í gangverki sjálfgeng- issamfélagsins, er heitið á fyrir- lestri sem Kolbeinn Stefánsson félagsfræðingur heldur í Háskóla Íslands í dag. Í erindi sínu fjallar Kolbeinn um samfélagssýn frjáls- hyggjunnar og þær hugmyndir um einstaklinginn sem hún hvílir á. „Ég ætla að reyna að sýna fram á að þessar hugmyndir standast ekki nánari skoðun og fyrir vikið geng- ur samfélagssýn frjálshyggjunar ekki upp.“ Kolbeinn ritstýrði bókinni Eilífðarvélin – Uppgjör við nýfrjálshyggjuna, sem kom út fyrr á árinu. Frjálshyggjumenn gagn- rýndu bókina fyrir að gera of mikið úr áhrifum hennar á Íslandi. „Þetta svar byggir á þeirri hug- mynd að Ísland hafi ekki verið hreint frjálshyggjusamfélag,“ svarar Kolbeinn. „Og það er alveg rétt í sjálfu sér, enda er ekki hægt að hrinda hreinu frjálshyggjusam- félagi í framkvæmd af því að það byggir á því að manneskjan sé eins og frjálshyggjumenn halda fram: alltaf skynsöm, alltaf sjálfselsk og alltaf hagsýn. En það breyt- ir því ekki að helstu áhrifaþættir í íslensku samfélagi á undanförn- um árum einkenndust af frjáls- hyggju.“ Að erindinu loknu verða umræð- ur. Kolbeinn vonar að frjálshyggju- menn mæti á fyrirlesturinn. „Það er eitt af einkennum íslenskrar umræðu að menn skiptast gjarnan í fylkingar, sem tala á hver aðra. Ég vona að frjálshyggjumenn mæti og það skapist raunveruleg sam- ræða um þetta mál.“ Fyrirlesturinn verður haldinn klukkan 12.30 í dag, í stofu 104 á Háskólatorgi. - bs Rýnt í frjálshyggjuna Bókaútgáfan Opna hefur endurútgefið grundvallarritið Íslenska þjóðhætti eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili. Bókin kom upphaflega út árið 1934 en hefur verið ófáan- leg frá því fjórða prentun kom út fyrir um 35 árum. Í bókinni má finna heildstætt yfirlit yfir íslenska þjóðhætti. „Þetta er gríðarlega mikill fróðleikur,“ segir Sigurður Svavarsson, forleggjari hjá Opnu, „og ótrúlegt til þess að hugsa að einn maður hafi tekið þetta allt saman, samhliða öðrum krefjandi störfum.“ Bókin hefur vel staðist tímans tönn að mati Sigurðar. „Þarna er svo marga forvitnilega og skemmtilega fróð- leiksmola að finna, sem margir eru algjörlega tímalausir,“ segir hann og tekur dæmi: „Skyrtur voru þvegnar á hálfs- mánaðar- til mánaðarfresti, en nærbuxur miklu sjaldnar.“ „Ég held að þessa bók hafi sárvantað mjög lengi,“ segir Sigurður „og hún sé kjörin til að fylgja eftir velgengni matreiðslubókar Helgu Sig, sem við gáfum út í fyrra.“ Merkilegur og tímalaus fróðleikur Tvær óperusýningar verða haldn- ar í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ, í dag og á morgun. Sýningarnar eru afrakstur tveggja vikna óperu- smiðju í Vídalínskirkju, undir stjórn Mörthu Sharp, pró fessors við Mozarteum tónlistarháskól- ann í Salzburg. Þátttakendur í ár voru fjórtán talsins, allir í fram- haldsnámi eða ungir atvinnu- söngvarar. Á sýningunum verða settar upp senur úr ýmsum óperum, til dæmis Brúðkaupi Fígarós og Madömu Butterfly. Sýningin í dag er klukkan 20 en á morgun klukk- an 16. Nánari upplýsingar má nálgast operaworkshop.org. Óperusmiðja í Kirkjuhvoli FRÁ ÓPERUSMIÐJUNNI Í FYRRA Fjórtán söngvarar tóku þátt í smiðjunni í ár. Klukkan 22 Hljómsveitirnar Bob, Nóra og Nolo ásamt raftónlistarmanninum Fukaisha halda tónleika á Venue, Tryggvagötu (neðri hæð gamla Gauks á Stöng). Húsið verður opið frá 21 en tónleikarnir hefjast klukk- an 22. > Ekki missa af ... Endurfrumsýningu Mögu- leikhússins á barnaleikritinu Prumpuhóllinn eftir Þorvald Þorsteinsson í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi, klukkan 14 á morgun. Verkið var frumsýnt 2002 og gekk í tvö leikár. Nú er það tekið aftur til sýninga í tilefni af 20 ára afmæli Möguleikhússins. FJÖREGG Barnamenning í Norræna húsinu Uppskeruhátíð og sultukeppni fyrir fjölskylduna Í gróðurhúsi Norræna hússins laugardaginn 11. september kl. 14.00 Tækifæri fyrir unga og eldri ræktendur að taka þátt í sultukeppni með afurðum úr eigin garði. Leikreglur eru einfaldar: · Keppt er í tveimur sultutegundum, súrri og sætri · Hver keppandi getur skilað inn eins mörgum sultutegundum og hann vill · Skila skal sultunni í Norræna húsið í síðasta lagi kl. 12.00 þann 11. september í íláti með nafni, heimilisfangi og/eða netfangi keppandans á botninum · Góð verðlaun í boði Kynnir og stjórnandi er danski matfræðingurinn Mads Holm. Dómari er meistarakokkur veitingahússins Dills í Norræna húsinu, Gunnar Karl Gíslason. Tónlist og skemmtun, Felix Bergsson leikari og söngvari. Norræna húsið | Sturlugötu 5 | 101 Reykjavík | Sími 551 7030 | www.norraenahusid.is FYRIRLESTUR Í DAG Kolbeinn Stefánsson félagsfræðingur segir samfélagssýn frjáls- hyggjunnar ekki stand- ast nánari skoðun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.