Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 60
40 14. október 2010 FIMMTUDAGUR Bækur ★★★★★ Blóðhófnir Gerður Kristný Maður er konu úlfur Það var augljóst strax við útkomu Ísfréttar að Íslendingar höfðu eignast nýtt skáld, þótt Gerður Kristný væri þá ekki nema liðlega tvítug. Síðan hefur hún vaxið með hverri ljóðabók og eru þær nú orðnar fjórar. Blóðhófnir er tvímælalaust hennar besta verk til þessa og er þá langt jafnað. Hið knappa ljóðform sem er aðalsmerki hennar hæfir efninu og hugsunin er meitluð og skýr. Þetta er söguljóð í fornum stíl, upphaf, ris og endir. Danskvæði nánast, takturinn dimmur og höggþungur, sparlega farið með orðin og dulúðug undiralda magnar áhrifin. Hér yrkir Gerður Kristný upp hin fornu Skírnismál, sem oft hafa verið túlkuð sem dæmisaga um upphaf yrkingar jarðarinnar og þá litið á Gerði Gymisdóttur, sem frjósemisguðinn Freyr lætur Skírni skósvein sinn kúga til samræðis við sig, sem táknmynd jarðarinnar. Gerður Kristný lítur ekki á kúgun nöfnu sinnar sem jákvæðan atburð og lýsir angist og bræði Gerðar og draumum um hefnd í knöppu meitluðu formi sem eykur enn á ógnina: Skelfingin skorðaðist í kviði mínum þandist út og þyngdist Bjarg sem breiddi úr sér Og skelfingin er ekki ástæðulaus. Freyr er hér ekkert gæft góðmenni heldur vargur með úlfsaugu, sem nauðgar Gerði ítrekað, þótt hann raunar skammist sín á eftir og sjái eftir að hafa gefið Skírni hestinn Blóðhófni og sverð sitt að launum fyrir að brjóta mótstöðu konunnar á bak aftur og færa sér hana nauðuga. Valdbeitingin reynist enginn gleðigjafi og þegar upp er staðið ekki þess virði. Hvort sem fólk kýs að lesa ljóðið sem lýsingu á samskiptum kynjanna, þar sem karlinn brýtur konuna undir vilja sinn í nafni ástar, eða lýsingu á samskiptum mannskepnunnar við jörðina þá eru áhrifin ógnvænleg og ljóst að kona/jörð sem hefur verið misþyrmt fyrirgefur ekki heldur leitar hefnda. Ljóðið er allt lagt í munn Gerðar og henni fylgt í gegnum niðurbrot, valdbeitingu og aðskilnað frá heimalandi og ástvinum. Eina ljósið í angistar- myrkrinu sem umlykur hana er móðirin, en mynd hennar fylgir Gerði yfir í gósenland frjóseminnar og hjálpar henni að halda sönsum. Á karlpeninginn er lítt að treysta, elskhuginn vargur í véum og bræður og faðir fagna uppgjöf konunnar, því hún bjargar þeim frá bana. Og samskipti kynjanna flækjast enn þegar hún sjálf verður móðir drengs „með lófafylli af sól“ sem fyllir líf hennar gleði á ný, en sem hugsanlega yrði tortímt ef til hefnda kæmi: Ég bíð endalokanna Frændur munu flykkjast yfir brúna hefna horfinna kvenna Ég vona að þeir þekki son minn og þyrmi honum sem fékk ég þeim hlíft forðum daga Það er ekki nauðsynlegt að þekkja Skírnismál til hlítar til að njóta Blóðhófnis til fulls. Ljóðmál Gerðar Kristnýjar er kröftugt og hrífur lesandann með sér inn í þennan ógnarheim hvort sem hann þekkir söguna fyrir eða ekki. Enda stendur ljóðið fullvel fyrir sínu án skírskotananna til Skírnismála, byggir eigin heim og býður lesanda í ferðalag sem hann mun seint gleyma. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Besta ljóðabók Gerðar Kristnýjar. Meitlaður texti sem talar til lesandans á mörgum sviðum. Lestrarnautn. WWW.LEIKFELAG.IS NÆSTA SÝNING 15. OKT. Í HOFI MIÐASALA Á NETINU: LEIKFELAG.IS NETFANG: MIDASALA@LEIKFELAG.IS SALA AÐGÖ NGUMIÐA Á WWW.LE IKFELAG.IS „Hörkushow” Mbl. Au glý sin ga sím i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.