Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 14. október 2010 41
Kötlumót
Söngmót sunnlenskra karlakóra
á flúðum
Laugardaginn 16. október
Í Límtréshöllinni
syngja eftirtaldir kórar kl. 14:30:
Karlakór Selfoss
Karlakórinn Þrestir
Í Félagsheimili Hrunamanna
syngja eftirtaldir kórar kl. 14:30:
Karlakórinn Stefnir
Tónleikarnir fara fram í Límtréshöllinni og
Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum
Setningarathöfn hefst kl. 13:30 í Límtréshöllinni -
Söngur karlakóra hefst kl. 14:30
Stórsveit Suðurlands kemur fram og leikur undir með
söng Kötlukórsins í Límtréshöllinni
Kl. 17:30 hefst samsöngur allra karlakóranna í Límtréshöllinni
Katla
SAMBAND SUNNLENSKRA KARLAKÓRA
2010
Landsbankinn
Sigurður Ingvi Snorrason,
klarinettuleikari og bæjar-
listamaður Mosfellsbæjar
2009, heldur upp á sextugs-
afmæli sitt með tónleikum
í Langholtskirkju í kvöld. Á
tónleikunum verður leikinn
Kvartett um endalok tímans
eftir Olivier Messiaen og nýtt
verk eftir Þórð Magnússon
verður frumflutt en Sigurður
Ingvi pantaði verkið sérstak-
lega í tilefni afmælisins.
Sigurður hefur starfað á
Íslandi frá árinu 1972 og hefur
verið í Sinfóníuhljómsveitinni
megnið af þeim tíma, en hann
lætur af störfum í vor. Auk
Sigurðar Ingva leikur Sigrún
Eðvaldsdóttir á fiðlu, Bryndís
Halla Gylfadóttir á selló og
Anna Guðný Guðmundsdóttir
á píanó.
Tónleikarnir hefjast klukk-
an 20 í kvöld.
Nýtt verk í til-
efni afmælis
Myndlist ★★★
SPOR
Listhjúkkurnar Anna Hallin og Ósk
Vilhjálmsdóttir
Listasafn ASÍ. Stendur til 24.
október.
Í listasögunni hafa listamenn
stundum tekið saman höndum og
unnið í hóp. Oftast er þá um mál-
efnalega vinnu að ræða, listamenn
deila skoðunum og vilja koma
þeim á framfæri. Fyrir hundrað
árum komu fram framúrstefnu-
legir karlahópar, undir nafni dada-
isma, fútúrisma eða súrrealisma, í
takt við samfélagsgerð þeirra tíma
voru konur meðal þeirra fáar. Á
síðustu áratugum hafa listhópar
frekar verið stofnaðir af konum,
ekki síst til þess að benda á stöðu
listakvenna í listheiminum, eða
stöðu kvenna og minnihlutahópa
almennt.
Viðfangsefni Listhjúkkanna
einskorðast ekki við stöðu kvenna
heldur einbeita þær sér að brýn-
um málefnum samfélagsins. Mark-
miðið felst í nafninu, sem túlka
má á víðan hátt, ætlun þeirra er
að hjúkra, samfélaginu og list-
inni. Þessi nálgun við ímynd lista-
mannsins er í takt við þróun í list-
um yfir langan tíma. Á nítjándu öld
varð til ímynd listamannsins sem
snillings, egóista sem vann að list
sinni í fílabeinsturni. Þessi ímynd
var brotin niður á tuttugustu öld
og í staðinn varð til ímynd lista-
manns í samhengi við umhverf-
ið, samfélagið, pólitíska rétthugs-
un o.s.frv. Þetta er auðvitað ekki
alveg svona einfalt, en Listhjúkk-
urnar starfa samkvæmt hinu síð-
arnefnda, sem þó hlýtur að fara að
renna sitt skeið eins og allt annað í
síbreytilegri listinni.
Inntak SPOR er eiginlega heim-
spekilegt: Hvernig ber að lifa? Og
því vel við hæfi að fá heimspeking
til þess að skrifa grein í sýning-
arskrá og Sigríður Þorgeirsdóttir
heimspekingur varpar hér áhuga-
verðu ljósi á listaverkin. Listhjúkk-
urnar slá saman tveimur ólíkum
fyrirbærum síðustu ára, byggingu
Hörpunnar og eldgosinu í Eyja-
fjallajökli með öllu sínu öskufalli.
Í meðförum þeirra verður hvort
tveggja líkt tákn fyrir kreppuna
sem við erum í, efnahagslega en
líka hugmyndalega og samfélags-
lega. Ljósmyndir af Hörpunni eru
teknar af kranamanninum Ægi
Ólafssyni sem er áhugamaður um
ljósmyndun.
Kjarni sýningarinnar er stór
krosssaumur með mynd af hálf-
karaðri Hörpunni ásamt stórri,
svarthvítri ljósmynd af Listhjúkk-
unum við útsaum, stóískar mitt í
hamförunum. Ég held að áhorfend-
ur megi líka sauma nokkur spor
ef þeim sýnist svo. Krosssaum-
urinn minnir á mikilvægi þess
að fara okkur hægt, halda rónni,
nálgast stór verkefni af yfirveg-
un og útsjónarsemi – allt það sem
gleymdist í góðærinu. Hvert spor
skiptir máli, samfélagið allt er
byggt upp af smáum einingum,
framlagi hvers og eins. Höldum
vöku okkar hvað sem á gengur,
horfum, sjáum, eins og Ægir Ólafs-
son gerir í ljósmyndum sínum.
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: List og boðskapur togast
á en sumar ljósmyndir Ægis Ólafs-
sonar, stór svarthvít ljósmynd og
krosssaumsverk ná að skapa myndir
sem lifa lengur en augnablikið.
Horfum, sjáum
SIGURÐUR INGVI Pantaði nýtt verk
frá Þórði Magnússyni í afmælisgjöf.