Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 24
24 14. október 2010 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Þúsundir smárra og meðalstórra fyrir-tækja eru enn of skuldsett og treysta sér sökum þessa ekki í fjárfestingar eða nýr- áðningar starfsfólks. Það er sameiginlegt verkefni banka og stjórnvalda að brjótast úr þessari kyrrstöðu. Forsenda hagvaxtar í landinu er endurskipulagning þessara fyrirtækja. Bankarnir hafa boðið fyrirtækjum ýmsar lausnir en betur má ef duga skal. Mikil- vægt er að fyrirtækin verði ekki skilin eftir of skuldsett og þurfi að 1-3 árum liðnum að semja við bankana á nýjan leik. Því hlýtur krafan að vera sú að greiðslugeta fyrirtækj- anna ráði skuldsetningu þeirra og að eig- endur þeirra hafi hvata til þess að endur- heimta fyrri eignarstöðu, með eiginfjár- eða vinnuframlagi. Þá eiga bankarnir að gefa eftir skuldir komi eigendur með nýtt eigið fé. Þrátt fyrir óvissu tengda gengisbundnum lánum eiga forsvarsmenn fyrirtækja að flýta endurskipulagningu því bankarn- ir hafa lagt á það áherslu að viðskiptavinir muni ætíð njóta betri réttar ef t.d. dómar í gengistryggðum lánum færi fyrirtækjun- um betri stöðu en fæst með núverandi end- urskipulagningu. Fyrirtækin og bankarn- ir hafa þannig allar forsendur til að hraða þessari vinnu, með það að markmiði að fyrirtækin geti staðið traustum fótum án þess að vera of skuldsett. Alþingi getur einnig lagt hönd á plóg. Undirritaður hefur lagt til að efnahags- og skattanefnd þingsins hafi forgöngu um lagasetningu til að setja inn skattalega hvata sem hvetji fyrirtæki til fjárfestinga hið fyrsta. Fyrirtækin geti þannig gert ráð fyrir afslætti á skattgreiðslum framtíðar ef þau t.d. ráða nýja starfsmenn eða fjárfesta í vélum eða húsnæði strax á þessu eða næsta ári. Hins vegar eigi ekki að koma til kostn- aðar fyrir ríkissjóð fyrr en þegar betur árar eða eftir 1-2 ár. Hröð endurskipulagn- ing skuldsettra fyrirtækja og skattalegir hvatar til fjárfestinga og nýráðninga munu hjálpa til við endurreisn atvinnulífsins. Atvinnulífi til aðstoðar Atvinnulífið Magnús Orri Schram alþingismaður Bankarnir hafa boðið fyrir- tækjum ýmsar lausnir en betur má ef duga skal. Mikilvægt er að fyrirtækin verði ekki skilin eftir of skuldsett og þurfi að 1-3 árum liðnum að semja við bankana á nýjan leik. Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus · www.lífrænt.is Láttu hjartað ráða ESB-andstaðan sameiginleg Líkt og greint var frá á þessum stað í gær hefur Jón Bjarnason, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, ráðið Bjarna Harðarson í starf upplýsinga- fulltrúa ráðuneytisins. 28 aðrir sóttu um starfið, sem ráðið er í tímabundið. Eins og við er að búast var reynsla umsækjendanna misjöfn en Bjarni er bóksali og fyrrverandi alþingismaður, ritstjóri og blaðamaður. Auk þess að hafa setið á þingi hefur Bjarni það fram yfir aðra umsækjendur að vera í stjórn Heimssýnar, sem er félagsskapur fólks sem er andvígt aðild Íslands að Evrópusambandinu. Skoðanir þeirra Jóns og Bjarna á þeim málum fara því saman. Það hefur líklega ekki spillt fyrir mögu- leikum Bjarna á að hreppa hnossið. Spurt Fyrirspurnir sem þingmenn beina til ráðherra eru af mis- jöfnum toga og gæðum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vill vita hvort mennta- málaráðherra hafi upplýsingar um hvort og þá hvernig fjölmiðlar hafa brugðist við umfjöllun og athuga- semdum rannsóknarnefndar Alþingis um starfsemi fjölmiðla. Gunnar Bragi Sveinsson vill hins vegar vita hvað áætlað sé að margir missi vinnuna á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni nái niður- skurðartillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Svara við báðum spurningunum er að vænta innan fárra daga eða vikna. bjorn@frettabladid.isE inhverra hluta vegna hafa hugmyndir um almenna skulda- niðurfellingu skotið upp kollinum á ný, meira en ári eftir að þær voru slegnar af og taldar óraunhæfar. Ríkisstjórn- in leikur nú eitthvert skrýtið leikrit með stjórnarandstöð- unni og hagsmunasamtökum, þar sem látið er eins og það komi til greina að færa niður skuldir fólks um 18%. Ekkert vit er í þeirri leið, eins og raunar er margbúið að færa rök fyrir, en staðfestist enn frekar með þeim upplýsingum, sem bætzt hafa við að undanförnu. Almenn skuldaniðurfelling myndi koma þeim bezt, sem þurfa sízt á henni að halda, þ.e. fólki sem tók hæstu lánin og skuldar mikið en hefur háar tekjur og á jafnvel miklar eignir á móti og getur vel staðið undir afborgunum af lánunum sínum. Aðgerðin nýttist ekki þeim sem verst standa, því að þótt 18% yrðu slegin af láninu, myndi greiðslubyrðin af húsnæðisláni til áratuga ekki léttast svo mikið að það skipti sköpum fyrir þá verst settu. Frá upphafi hefur verið bent á að leið flatrar skuldaniðurfellingar yrði gríðarlega dýr – og það er alltaf einhver sem borgar það verð. Talið er að 18% lækkun kosti á bilinu 220-230 milljarða króna. Þann kostnað mun almenningur (fólkið sem átti að hjálpa með skulda niður- fellingunni) greiða sjálfur, með einum eða öðrum hætti. Rökin um að búið sé að gera ráð fyrir afskriftum í efnahagsreikningi bank- anna halda ekki. Af hverju ættu kröfuhafar að fallast á að gefa eftir skuldir, sem allar líkur eru á að innheimtist að óbreyttu? Skattgreið- endur yrðu væntanlega að bæta bönkunum tjónið. Íbúðalánasjóður getur heldur ekki staðið undir afskriftum lána og færi lóðbeint á hausinn, nema skattgreiðendur hlypu undir bagga og/eða lánveitendur sjóðsins, lífeyrissjóðir og bankar, felldu niður skuldir sjóðsins. Það kæmi svo aftur í bakið á skattgreiðendum og lífeyrisþegum. Niðurstaðan af almennri skuldaniðurfellingu væri með öðrum orðum bæði óréttlát (af því að fólk sem þyrfti ekki á því að halda fengi milljónir slegnar af lánunum sínum) og leiddi til skattahækk- ana eða enn meiri niðurskurðar á ríkisútgjöldum. Nóg er nú samt. Skuldavandinn er vissulega fyrir hendi. Allir skulda meira en þeir gerðu og bera þyngri greiðslubyrði. En meirihlutinn ræður við það. Hinn raunverulegi vandi er afmarkaður við minnihluta heimilanna í landinu. Í gær birtust tölur um að 20% heimila skulda meira en sem nemur fasteignamati eignarinnar. Samtals skuldar fimmtungur heimila nærri helming af veðtryggðum skuldum. Þetta eru heimilin, sem eru verst sett og stjórnvöld eiga að einbeita sér að því að finna lausnir á vanda þeirra. Mörg úrræði eru þegar í boði, en það einkennilega er að samkvæmt könnun umboðsmanns skuldara hefur stór hluti þeirra allra verst settu, sem eru að fara að missa eignir sínar á nauðungaruppboð, ekki nýtt sér nein þeirra. Kannski er það vegna þess að fólk vonar enn að skuldir þess verði strikaðar út með einföldu pennastriki. Ríkisstjórnin á alls ekki að ýta undir falsvonir fólks um almenna skuldaniðurfellingu. Menn eiga að einbeita sér að vanda þeirra sem þurfa raunverulega á hjálp að halda og fella tjaldið á þetta leikrit í Þjóðmenningarhúsinu. Ríkisstjórnin leikur skrýtið leikrit þar sem látið er eins og almenn skuldalækkun sé möguleiki. Falskar vonir Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.