Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 62
42 14. október 2010 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Það er útbreiddur misskilningur að þeir, sem ekki náðu í armband á Airwaves í tíma, séu búnir að missa af hátíðinni. Aukadagskráin, sem er ókeypis og öllum opin, er nefnilega mögnuð. Hún hefur verið viða- mikil undanfarin ár, en slær öll met í ár. Það eru tónleikar alla dag- ana frá tíu að morgni og fram á kvöld á um það bil tuttugu stöðum og bara á föstudag er hægt að sjá ein 50 tónlistaratriði. Dagskráin í heild sinni er birt á www.icelanda- irwaves.is (undir nafninu „off- venue schedule“), en hér á eftir koma nokkur dæmi. Mál og menning, Havarí, Hemmi og Valdi, Nikita, Reykjavík Downtown Hostel, Prikið og Bar 11 eru meðal þeirra staða sem taka þátt í aukadagskránni. Fyrstu tón- leikarnir hvern dag eru á Prikinu kl. 10, en kl. 11 er svo hægt að halda áfram á Havaríi. Og það eru engin b-nöfn sem spila á aukadagskránni. Í dag er t.d. hægt að sjá Snorra Helgason kl. 15 í Máli og menningu, SH Draum kl. 16 í Havaríi, hina dönsku Penny Police á Bar 11 kl. 17, Frakkana í Gablé í Havaríi kl. 18 og bresku sveitina We Aeronauts í Reykjavík Downtown Hostel kl. 19. Á morgun er hægt að sjá á ýmsum stöðum Nolo, Miri, Moses Hightower, Diamond Rings (frá Kanada), Sudden Weather Change, Sing for me Sandra, Retro Stefson, Hafdísi Huld og Bombay Bicycle Club (í Reykjavík Downtown Hostel kl. 19.00). Á laugardaginn er dagskráin ekkert slor heldur. Þá má sjá t.d. Miri, Reykjavík!, Moses Hightower og Ham í Nikitagarðinum, Rolo Tomassi og The Vandelles á Bar 11 og Hjálma í Vesturbæjarlauginni, en þar verða tónleikar klukkan 18 alla dagana. Auk alls þessa verður órafmögnuð dagskrá í Norræna húsinu alla dagana og opnir tónleikar í Hressógarðinum. Þar má til dæmis sjá öll kanadísku nöfnin sex á laugardaginn. Góða skemmtun! Glæsileg aukadagskrá BÓNUS Bombay Bicycle Club spilar ókeypis á aukatónleikum á Airwaves í ár. Tónlistarunnendur hafa beðið spenntir eftir Iceland Airwaves-hátíðinni sem er nýhafin. Fjölmargar erlend- ar hljómsveitir streyma til landsins og kröfur þeirra eru stundum óraunhæfar. Um áttatíu erlendar hljómsveitir koma fram á Iceland Airwaves- hátíðinni og eru þær byrjaðar að streyma til landsins með allt sitt hafurtask. „Því stærri bönd, því metnaðar- fyllri kröfur,“ segir Róbert Aron Magnússon sem hefur annast erlendu sveitirnar ásamt Agli Tóm- assyni. „Það eru búnar að vera alls konar kröfur um tæki og tól sem eru ekki til á Íslandi. Menn hafa tekið því misjafnlega en við erum búnir að semja um þetta allt.“ Nokkuð umstang er í kringum tónleika sænsku söngkonunnar Robyn í Hafnarhúsinu á laugar- daginn. Þrjú trommusett verða á sviðinu, þar af eitt rafmagns- trommusett. Einnig verða þar tvö stór hljómborðssett. „Við höfum séð á Twitter- og Face- book-samskiptasíðum hennar að hún er mjög spennt fyrir þessum tónleikum. Hennar fólk er dálítið kröfuhart en við erum að reyna að koma því niður á jörðina og láta það átta sig á því að við erum á Íslandi,“ segir Róbert. Breska poppsveitin Hurts spilar í Hafnarhúsinu á föstudagskvöld. Hún flýgur til landsins á einka- þotu, hvorki meira né minna. Ell- efu manns verða um borð, þar á meðal óperusöngvari sem syngur með sveitinni á tónleikum. „Þegar við bókuðum þá voru þeir ekki búnir að gefa út eina smáskífu eða plötu. Þetta eru menn sem var búið að bóka á venjulegu farrými, ekki einu sinni á Saga Class, og núna eru þeir að koma hingað með einka- þotu,“ segir Róbert, en þess má geta að fyrsta plata sveitarinnar kom út í síðasta mánuði. Ástæðan fyrir einkaþotunni er reyndar ekki Einkaþota og risaskjáir AIRWAVES-HÁTÍÐIN HAFIN Sænska söngkonan Robyn og breska hljómsveitin Hurts spila í Hafnarhúsinu á Airwaves-hátíðinni. Róbert Aron Magn- ússon skipuleggur komu þeirra. sú að Hurts sé svona stór og merki- leg með sig heldur er þotan kost- uð af þýskri sjónvarpsstöð. „Þeir eru svo vinsælir í Þýskalandi. Þeir vildu fá þá í eitthvað viðtal á þýskri sjónvarpsstöð og eina leiðin til að láta það ganga var að fljúga með þá hingað yfir í einkaþotu. Þeir þýsku tækluðu það.“ Þess má geta að umboðsmenn bæði Robyn og Hurts vinna saman og þeir ætla að nýta tækifærið og skoða norðurljósin þegar hingað kemur. „Þeir ætla að reyna að finna norðurljósin. Þeir eru búnir að bóka bílaleigubíl og ætla að fara á fínt sveitahótel og þefa þetta uppi,“ segir Róbert. Mikið umstang verður einnig í kringum tónleika þýsku danssveit- arinnar Moderat í Hafnarhúsinu á fimmtudagskvöld. Þrír risaskjá- ir verða hífðir upp fyrir tónleika- gesti en sveitin er þekkt fyrir flott sjónarspil á sínum tónleikum. freyr@frettabladid.is N O R D IC PH O TO S/ G ET TY > Í SPILARANUM Kings Of Leon - Come Around Sundown Sufjan Stevens - The Age Of Adz Noise - Divided Belle & Sebastian - Write About Love Hljómsveitin Ég - Lúxus upplifun KINGS OF LEON HLJÓMSVEITIN ÉG Tónlist ★★★★ Allt er eitthvað Jónas Sigurðsson Jónas Sigurðsson vakti fyrst athygli sem meðlimur Sólstrand- argæjanna, en lögin þeirra Rang- ur maður og Sólstrandargæi náðu miklum vinsældum seint á síðustu öld. Árið 2007 kom svo fyrsta sóló- plata Jónasar, Þar sem malbikið svífur mun ég dansa, og þar kvað við alveg nýjan tón. Nú er önnur platan komin, Allt er eitthvað. Vinsælasta lagið á Malbikinu var Baráttusöngur klansins á skíta- dreifurunum, en í því datt Jónas niður á alveg ómótstæðilega blöndu af rammíslensku popprokki og ein- hverri óskilgreindri sígaunastuð- tónlist með lúðrablæstri og flottum töktum. Frábært lag. Góðu frétt- irnar eru að Jónas heldur áfram að vinna með þetta sambland á nýju plötunni. Hamingjan er hér, sem hefur verið vinsælt undanfarið er til dæmis þessarar ættar, með viðbættum sálarbakröddum og það sama á við um hið framúrskarandi góða Skuldaólin og fleiri lög. Það er þó alls ekki þannig að það séu 12 tilbrigði við Skítadreifarana á Allt er eitthvað, en í flestum lög- unum er Jónas að vinna með þessi sömu grunnatriði í útsetningunum; taktana, blásturinn og bakradd- irnar. Og tekst bara fjári vel upp. Lagasmíðarnar eru margar mjög flottar. Auk þeirra laga sem ég hef þegar nefnt má bæta við Hleypið mér út úr þessu partýi, titillagið Allt er eitthvað, Nótt hinna ósögðu orða og fleiri. Jónas er skemmtilegur texta- smiður. Hann nær örvæntingu og firringu nútímans mjög vel, til dæmis í Skuldaólinni og Hleyp- ið mér út úr þessu partýi, en inni- hald textanna er undirstrikað með æstum söngnum og útsetning- unni. Allt er eitthvað er á heildina litið frábær plata. Ein af þeim bestu á árinu. Plata sem maður setur í tækið, hækkar vel í og nýtur þess að hlusta á kraftmikla tónlist með textum á íslensku. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Jónas Sigurðsson fylgir Malbikinu eftir með enn betri plötu. Ómótstæðileg blanda Hljómsveitin Weezer sendir í byrjun nóv- ember frá sér plötuna Death to False Metal. Platan inniheldur óútgefin lög sem voru samin og tekin upp á síðustu tveimur ára- tugum. Og já. Platan heitir í alvöru Death to False Metal og þetta er í alvöru umslagið hér til hliðar. „Þetta eru frábær lög og frábærar upptök- ur,“ sagði söngvarinn Rivers Cuomo í samtali við breska tónlistartímaritið NME. „En af einhverri ástæðu komust þau ekki í gegnum niðurskurð fyrir plöturnar á sínum tíma.“ Platan inniheldur tíu lög sem hafa aldrei heyrst áður. Á meðal laganna er útgáfa Weez- er-drengjanna á smellinum Un-Break My Heart, sem Toni Braxton söng svo eftir- minnilega á tíunda áratugnum. Óútgefin lög frá Weezer FURÐULEGT UMSLAG Strákarnir í Weezer senda frá sér tíu laga plötu í nóvember sem inniheldur aðeins óútgefin lög. Þetta er í alvöru umslagið. Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN Vetrarstarf Nýrrar dögunar hefst n.k. fimmtudagskvöld 14. október kl. 20:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Þá flytur sr. Halldór Reynisson erindi um sorg og sorgarviðbrögð. Allir velkomnir Samvera um sorg og sorgarviðbrögð www.nydogun. is nydogun@nydogun. is Vetrardagskrá 2010 14. okt. Sorg og sorgarviðbrögð. 11. nóv. Sorg vegna sjálfsvígs. 9. des. Sorgin og jólin. Samvera í Grensáskirkju. Samverurnar verða í safnaðarheimili Háteigskirkju kl. 20:30. Húsið opnar kl. 19:30 þar sem fólk getur komið, spjallað og fengið kaffi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.