Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 36
 14. OKTÓBER 2010 FIMMTUDAGUR 1. 2. 4. 3. Toyo Open Country All Terrain Frábær alhliða jeppadekk fyrir allar aðstæður. Mjúk og hljóðlát dekk sem skila þér alla leið. Toyo Open Country Mud Terrain Níðsterkt og slit- sterkt jeppadekk sem þolir hvað sem er. Frábært akstursdekk á vegum og utan vega. Þolir auðveldlega mjög þunga bíla. Toyo Open Country Ice Terrain Neglanlegt vetrardekk fyrir jepplinga og jeppa. Mjúkt, hljóðlátt og virkilega end- ingargott dekk sem hefur slegið í gegn á Íslandi. Toyo Observe Neglanlegt vetrardekk fyrir fólksbíla. Endingargott vetrardekk, hægt að nota með og án nagla. Hjólbarðadeild Bílabúðar Benna hefur vaxið hratt und- anfarin ár, enda hefur Bílabúð Benna lagt mikla áherslu á þennan þátt í starfseminni og þá sérstaklega vörumerkin Toyo Tires og BFGoodrich. Einnig hefur Bílabúð Benna umboð fyrir Kleber, Kormoran og Accelera og unnið er að því að fjölga tegundum enn frekar. HÆGT AÐ DRAGA ÚR SVIFRYKS OG HÁVAÐAMENGUN Sala á ónegldum vetrardekkjum hefur aukist mikið síðustu ár, þó enn kjósi fjöldi fólks að nota negld dekk. Bílabúð Benna býður upp á harðskeljadekk, hefðbund- in vetrardekk með og án nagla og verksmiðjunegld dekk frá BFGoodrich. „Vinsælustu dekkin hjá okkur í dag eru Toyo harðskeljadekkin og ánægjulegt er að sjá hvað þau eru að sanna sig vel við erfiðari vetrar- aðstæður en hér í Reykjavík, eins og á Akureyri og Húsavík, þar sem veturinn er mun harðari en hér fyrir sunnan,“ segir Jón Hauksson, sölustjóri dekkjadeild- ar hjá Bílabúð Benna. „Verksmiðju- negldu dekkin frá BFGoodrich eru með léttmálmsnöglum sem slíta malbikinu mun minna en þyngri stálnaglar. Þau eru negld í BFGoodrich-verksmiðjunni með mikilli nákvæmni og henta mjög vel fyrir fólk sem vill hafa dekkin negld en er meðvitað um svifryksmengun.“ Þá segir Jón jeppadekkin frá BFGoodrich og Toyo Tires einnig njóta mikilla vinsælda meðal jepp- aeigenda, en sala þeirra hefur auk- ist ár frá ári. „Fólk hefur mun meiri áhuga á ónegldum vetrardekkjum í dag,“ bendir Jón á og kveður ástæðurnar vera nokkrar. „Til að mynda út af svifryksmengun, há- vaða frá nagladekkjum sem berst inn í bílinn og vegna þess að ekki má setja nagladekk undir bílinn jafn tímanlega. Það eru mikil þægindi fólg- in í því að setja harðskeljadekkin undir bílinn til dæmis í september, og hafa bílinn kláran þegar vetur- inn skellur á í stað þess að eyða deginum í biðröð fyrir utan hjól- barðaverkstæði.“ Hann bætir við að þá sé heldur engin hætta á nagladekkjasektum á vorin. MIKILVÆGT AÐ VELJA RÉTT DEKK Að sögn Jóns er mjög mikilvægt að greina þarfir hvers viðskiptavinar þegar selja á fólki dekk. „Kröfur viðskiptavina eru mjög mismun- andi sem og bílarnir þeirra og mikilvægt að dekk séu rétt valin fyrir hvern og einn,“ segir hann og nefnir sem dæmi að burðar- og hraðaþol dekkja þurfi að passa hverjum bíl. „Þungir bílar þurfa til að mynda burðarmeiri dekk og meiri loftþrýsting heldur en létt- ir fólksbílar. Það er gríðarlega mikilvægt og hagkvæmt að mæla loftþrýsting dekkjanna reglulega. Dekk með of litlu af lofti er hættu- legt í umferðinni, bíllinn eyðir meira eldsneyti og dekkið slitnar margfalt hraðar.“ Þá segir Jón einnig gott að láta skoða dekkin reglulega til að sjá hvort þau slitni rétt. „Vit- laust hjólastilltur bíll slítur dekkj- um einnig mjög hratt og grip dekkjanna minnkar verulega. Þá þarf að hjólastilla bílinn,“ bendir hann á og bætir við að hægt sé að fá loftmælingu og dekkjaskoðun frítt á Tangarhöfða eða hjá Nes- dekkjum. „Að baki okkar þjónustu liggur áratuga reynsla.“ Jón Hauksson, sölustjóri dekkjadeildar hjá Bílabúð Benna, segir fyrirtækið leggja mikla áherslu á að bjóða upp á gott úrval hjólbarða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Toyo-harðskeljadekkin eru jap- önsk framleiðsla sem hefur slegið í gegn á Íslandi. Dekkin eru með brot úr valhnetuskeljum í gúmmí- inu, sem er eitt sterkasta efni sem fáanlegt er úr náttúrunni. Skelja- brotin gefa dekkjunum aukið grip í hálku og erfiðum vetrarað- stæðum og reynslan á Ís- landi hefur verið gríðar- lega góð. HALDAST MJÚK Í KULDA ● Silica-íblöndunar- efni er í gúmmíblönd- unni, sem gefur dekk- inu aukið grip og held- ur gúmmíinu mjúku í miklum kulda. Auk þess eru dekkin gríð- arlega mikið „mic- roskorin“. ● Toyo-harðskelja- dekkin slíta malbik- inu minna og valda minna svifryki held- ur en nagladekk og eru því umhverfisvæn. ● Endingin í dekkj- unum er mjög góð og þau eru lungamjúk og hljóðlát. TOYOHARÐSKELJADEKK IN ERU FÁANLEG Í FJÓRUM GERÐUM ● Toyo Garit G4 undir minni og hefðbundna fólksbíla ● Toyo Garit KX undir stærri og kraftmeiri fólksbíla í „low prof- ile“ stærðum ● Toyo G-02 undir jepplinga og jeppa ● Toyo Winter Tranpath S1 undir jepplinga og jeppa Meira grip og minna svifryk Toyo-harðskeljadekkin eru þeim eiginleika gædd að slíta malbiki ekki eins mikið og margar aðrar dekkjategundir gera og valda því minna svifryki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fjölbreyttir hjólbarðar Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411 og Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.