Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 8
8 14. október 2010 FIMMTUDAGUR TÆKNI Einungis er greitt fyrir um fimm prósent þeirrar tónlistar sem notendur hlusta á og sækja á Netinu. Þetta segir Jakob Frímann Magnússon, varaformaður STEF. Jakob segir vegið alvarlega að íslenskum tónlistariðnaði með ólöglegu niðurhali og bráðnauðsyn- legt sé að gera eitthvað í málinu. STEF lagði fram hugmyndir fyrr í mánuðinum um að leggja gjald á nettengingar notenda og borga höf- undaréttarhöfum fyrir tónlist sem er notuð ólöglega á Netinu. „Það hefur aldrei verið meiri notkun á tónlist í heiminum heldur en nú með til- komu Netsins. Það hefur haft það í för með sér að hljómplötu- bransinn er að hrynja innan frá og tekjur sem tónlistarmenn hafa af sköp- un sinni eru að gufa upp,“ segir hann. Fyrir tveimur árum hóf danska símafyrirækið TDC að reikna út ákveðið gjald á hvern netnotanda og borga fyrir þá til höfundarétt- arhafa og útgefenda. Jakob segist ekki vita hvaða leið verði ákveðin hér á landi. Hann segir að einungis sé um lágt gjald að ræða, um 100 krónur á mánuði, sem myndu bætast ofan á netgjöldin. „Hundrað krónur á mánuði samsvara einu símtali – og myndu veita notendum aðgang að einhvers konar banka tónlistar sem leiddi þá áfram inn í kauphallir tónlist- arinnar þar sem fólk borgar fyrir niðurhal og þjónustu,“ segir Jakob Frímann. - sv Varaformaður STEF segir að greitt sé fyrir tæp fimm prósent af tónlist á Netinu: Hundrað króna gjald á mánuði JAKOB FRÍMANN MAGNÚSSON FIFTEEN YEARS ON Finland and Sweden in the European Union Hvenær: Föstudaginn 15. október, frá kl. 9.00 til 17.00 | Hvar: Fundarsalur Þjóðminjasafnsins Málþing á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands, Evrópufræðaseturs Svíþjóðar og Alþjóðamálastofnunar Finnlands um 15 ára reynslu Finnlands og Svíþjóðar af ESB aðild. Fundurinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. ULKOPOLIITTINEN INSTITUUTTI UTRIKESPOLITISKA INSTITUTET THE FINNISH INSTITUTE OF INTERNATIONAL AFFAIRS Dagskrá málþingsins er að finna á www.hi.is/ams Vinnuréttardagur Háskólans á Bifröst verður haldinn í dag, 14. október, kl. 13:30 í Hriflu, Háskólanum á Bifröst. Í ár verður umfjöllunarefnið Stéttarfélög – hlutverk og áskoranir. Á vinnuréttardeginum fjallar Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur, um kjarasamninga og þjóðarsátt en auk þess munu Elín Blöndal, Erna Guðmundsdóttir og Magnús Norðdahl fjalla um valin efni sem tengjast hlutverki stéttarfélaga og áskorunum sem þau standa frammi fyrir, m.a. vegna efnahagsástandsins. Dagskrá Kl. 13:30 Elín Blöndal, prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst: Stéttarfélög og Evrópusamvinna. Kl. 13:50 Erna Guðmundsdóttir, lögmaður KÍ og BHM: Starf stéttarfélaga á krepputímum. Kl. 14:10 Magnús Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ: Skipulag ASÍ; breytingar og áskoranir. Kl. 14:30 Kaffihlé. Kl. 14:50 Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur: Kjarasamningar og þjóðarsátt. Kl. 15:30. Umræður og fyrirspurnir. Kl. 15:50 Ráðstefnulok. Fundarstjóri er Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst. Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála við Háskólann á Bifröst stendur að vinnuréttardeginum í samstarfi við lagadeild. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. KÍNA Hópur aldraðra félaga í Kommúnistaflokki Kína krefst þess að hömlum verði létt af tján- ingarfrelsi í landinu. Í bréfi sem þeir hafa ritað til þjóðþingsins segja öldungarnir að ritskoðun sú sem nú tíðkist í Kína sé bæði skömm og hneisa. Undir bréfið skrifa 23 félagar í Kommúnistaflokknum, sem allir eru komnir til ára sinna. Margir þeirra hafa gegnt áhrifastöðum innan flokksins og einn þeirra, Li Rui, var um skeið ritari Mao Zedong, leiðtoga kínversku bylt- ingarinnar. Annar bréfritara var í eina tíð ritstjóri Dagblaðs alþýðunnar, sem er opinbert mál- gagn Kommúnistaflokksins, og aðrir hafa verið hátt settir innan ríkisfjölmiðla og áróðursyfirvalda landsins, þar sem þeir gegndu því hlutverki að hafa stjórn á opin- berri umræðu. Bréfritararnir hafa áður birt opinberlega bréf þar sem þeir hvetja til gagnsæis í kínverskri stjórnsýslu og stjórnmálum. Öldungarnir benda á að í stjórn- arskrá landsins sé ákvæði um tjáningarfrelsi en það ákvæði sé ekki virt af núverandi stjórnvöld- um. Norska Nóbelsnefndin benti á þetta sama í lok síðustu viku, þegar hún skýrði frá því að kín- verski andófsmaðurinn Liu Xiaobo hlyti friðarverðlaunin í ár. Hann afplánar ellefu ára fangelsi fyrir það sem kínversk stjórnvöld kalla undirróður gegn ríkisvaldinu. Öldungarnir vilja meðal annars afnema það kerfi að allir fjölmiðlar landsins séu tengdir stjórnvöldum. Þeir vilja að ríkið styðji stofnun nýrra fjölmiðla í einstaklingseigu og leyfi óhefta dreifingu fjölmiðla frá Hong Kong og Makaó. Þá vilja þeir breyta hlutverki áróðursyfirvalda, þannig að í stað þess að þau einbeiti sér að því að koma í veg fyrir upplýsingaleka snúi þau sér að því að tryggja að upplýsingar sem berist frá stjórn- völdum séu áreiðanlegar. Þeir vilja afnema lögreglueftirlit með netmiðlum. Bréfið er birt stuttu eftir að norska Nóbelsnefndin tilkynnti um friðarverðlaunin. Kínversk stjórn- völd brugðust ókvæða við ákvörð- un Nóbelsnefndarinnar og hafa hótað því að samskiptin við Noreg muni versna. gudsteinn@frettabladid.is Öldungar hvetja til málfrelsis í Kína Tuttugu og þrír háttsettir félagar í kínverska Kommúnistaflokknum krefjast þess að tjáningarfrelsi verði virt og að réttur fólks til upplýsinga verði tryggður. REYNIR AÐ STÖÐVA MYNDATÖKUR Kínverskur lögreglumaður reynir að hafa hemil á ljósmyndurum fyrir utan heimili Liu Xia, eiginkonu friðarverðlaunahafans Liu Xiaobo, í Peking. NORDICPHOTOS/AFP 1 Hversu mikið atvinnuleysi mælist hérlendis? 2 Hver skoraði eina mark íslenska landsliðsins gegn Portúgölum á þriðjudag? 3 Hverjir hanna Airwaves-bol- ina í ár? SVÖR: 1. 7 prósent 2. Heiðar Helguson- 3. Fata- hönnuðurinn Mundi og ljósmyndarinn Jói Kjartans DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Akureyri hefur ákært konu á fimmtugsaldri fyrir fjárdrátt. Konunni er gefið að sök að hafa dregið sér ríflega 1,6 milljón- ir króna út af reikningi Leikfé- lags Dalvíkur. Fjárdrátturinn er sagður hafa átt sér stað á árunum 2008 og 2009 en þá gegndi konan starfi gjaldkera hjá leikfélaginu. Í ákæru segir að hún hafi notað debetkort félagsins til að kaupa muni til eigin nota auk þess að taka fé út af reikningi í eigu félagsins. - jss Fjárdráttur hjá leikfélagi: Kona sökuð um að draga sér fé VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.