Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 78
58 14. október 2010 FIMMTUDAGURAIRWAVES Ég ætla allavega að sjá Mínus á Gauknum á laugardagskvöldið en þeir eru að frumflytja nýtt efni. Í ár er ég spenntari fyrir að sjá íslensku böndin en þau erlendu. Agent Fresco, Blood- group, Ourlives og For a Minor Reflection eru til dæmis sveitir sem ég vil ekki missa af. Hrefna Björk Sverrisdóttir framleiðandi „Það er verið að kæra mig fyrir að vinna vinnuna mína,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sverrir Þór Sverrisson – Sveppi. Sveppi keyrði upp Laugaveginn ásamt Audda í þætti þeirra síðasta föstudag. Lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært Sveppa fyrir verknaðinn og skýrsla var tekin af honum í gær. „Vissulega var ég að brjóta lögin. Ég viðurkenni það,“ segir Sveppi. „Ég var beðinn um að koma í yfirheyrslu niður á lögreglustöð og svara til saka. Það var mjög skemmtilegt – yndisleg stund.“ Sveppi hefur verið kærður fyrir fjögur brot. Þrjú af þeim eru að aka gegn einstefnu og eitt að keyra á gangstétt. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu gæti Sveppi átt von á allt að 20.000 króna sekt ásamt refsipunktum. Sveppi segist vona að sektin verði krúttleg. „Ég lofaði í skýrslu- tökunni að gera þetta aldrei aftur. Það er skjalfest,“ segir hann. Spurður hvort þetta sé í fyrsta skipti sem hann kemst í kast við lögin segir hann svo ekki vera, en bætir við að langt sé síðan hann var yfirheyrður. „Síðast þegar ég var yfirheyrður sat maður á móti mér með ritvél – það er það langt síðan.“ En ertu búinn að læra þína lexíu? „Já. Líklega. En þetta er mjög erfið staða sem ég er í. Annars vegar er ég að brjóta lögin og hins vegar er þetta vinna. Maður er alltaf að lenda í veseni fyrir að reyna að vera fyndinn.“ - afb Sveppi kærður YFIRHEYRÐUR Í GÆR Brotavilji Sveppa var einbeittur enda setti hann ekki fyrir sig að hátt í tuttugu prósent þjóðarinnar yrðu vitni að glæpnum þegar hann var sýndur í þætti hans og Audda. Leita að stúlkum til að bera brjóstin „Þeir voru mjög hressir og skemmtilegir,“ segir Bento Guer- reiro, annar eigenda veitingastað- arins Tapasbarsins við Vestur- götu. Portúgölsku landsliðsmennirn- ir Nani og Raul Meireles heils- uðu upp á starfsfólk Tapasbarsins eftir landsleik Íslands og Portú- gals á þriðjudagskvöldið. Portú- galski hópurinn flaug til Lissabon eftir leikinn en Nani og Meireles, sem leika á Englandi, flugu ekki fyrr en í gærmorgun. Þeim gafst því stund milli stríða. „Þeir borðuðu með landslið- inu eftir leikinn en komu svo til okkar þegar liðið var farið út á flugvöll,“ segir veitingamaðurinn Bento. Hann segir að þeir Tapas- menn séu vel tengdir og hafi verið búnir að tala við knattspyrnu- mennina áður og bjóða þeim til sín. „Við erum tveir Portúgalar sem eigum staðinn, ég og Nuno, svo þetta var auðvitað mjög gaman fyrir okkur. Þetta var nú alls ekk- ert partí, þetta var bara starfsfólk- ið og nokkrir gestir sem fengu að sitja áfram og spjalla við þá. Þeir stoppuðu samt alveg í tvo tíma hjá okkur en drukku bara kók,“ segir Bento. Var ekki kvenfólkið ánægt með að fá svona glæsilega menn í heim- sókn? „Ja, hvað heldur þú? Við vorum auðvitað ekkert að opna út á götu og auglýsa þetta, þetta var bara starfsfólkið hérna og þær kunna sig.“ Nani spilar með Manchester United og Meireles spilar með Liverpool. Rígurinn milli þeirra félaga var þó ekki sýnilegur í heimsókninni á Tapasbarinn. „Nei, alls ekki,“ segir Bento. „Það voru einhverjir sem héldu með Liver- pool og sjálfur held ég meira að segja með Chelsea.“ Heimsóknin mun setja svip sinn á Tapasbarinn til framtíðar. Þeir Nani og Meireles komu nefnilega færandi hendi. „Þeir komu með Real Madrid-treyju sem var árit- uð af Portúgölunum í liðinu – þeim Ronaldo, Pepe og Ricardo Carval- ho. Við verðum ekki lengi að hengja hana upp á vegg hjá okkur,“ segir Bento Guerreiro, hæstánægður með heimsókn landa sinna. hdm@frettabladid.is BENTO GUERREIRO: ÁRITUÐ TREYJA RONALDOS KOMIN UPP Á VEGG Nani og Meireles í stuði á Tapasbarnum eftir leikinn STOLTIR PORTÚGALAR Bento og Nuno, veitingamenn á Tapasbarnum, eru hæstánægðir með Real Madrid-treyjuna sem þeir fengu gefins. Treyjan er árituð af Cristiano Ronaldo, Ricardo Carvalho og Pepe. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GÓÐIR GESTIR Á TAPAS Frá vinstri eru Bento, Nani, Nuno, Antonio og Raul Meireles. Fös 15.10. Kl. 20:00 frums. Lau 16.10. Kl. 20:00 2. sýn Fös 22.10. Kl. 20:00 aukas. Lau 23.10. Kl. 20:00 3. sýn Lau 30.10. Kl. 20:00 4. sýn Sun 31.10. Kl. 20:00 5. sýn Fös 5.11. Kl. 20:00 6. sýn Lau 6.11. Kl. 20:00 7. sýn Fim 11.11. Kl. 20:00 8. sýn Fös 12.11. Kl. 20:00 Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Lau 16.10. Kl. 13:00 Lau 16.10. Kl. 15:00 Sun 17.10. Kl. 13:00 Sun 17.10. Kl. 15:00 Lau 23.10. Kl. 13:00 Lau 23.10. Kl. 15:00 Sun 24.10. Kl. 13:00 Sun 24.10. Kl. 15:00 Lau 30.10. Kl. 13:00 Lau 30.10. Kl. 15:00 Sun 31.10. Kl. 13:00 Sun 31.10. Kl. 15:00 Lau 6.11. Kl. 13:00 Lau 6.11. Kl. 15:00 Sun 7.11. Kl. 13:00 Sun 7.11. Kl. 15:00 Lau 13.11. Kl. 13:00 Lau 13.11. Kl. 15:00 Sun 14.11. Kl. 13:00 Sun 14.11. Kl. 15:00 Fös 15.10. Kl. 20:00 Lau 16.10. Kl. 20:00 Fim 21.10. Kl. 20:00 aukas. Fös 22.10. Kl. 20:00 Lau 23.10. Kl. 20:00 Fim 28.10. Kl. 20:00 Fös 29.10. Kl. 20:00 Lau 30.10. Kl. 20:00 Sun 31.10. Kl. 20:00 Fim 4.11. Kl. 20:00 Fös 5.11. Kl. 20:00 Lau 6.11. Kl. 20:00 Fim 11.11. Kl. 20:00 Fös 12.11. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 20:00 Sun 17.10. Kl. 19:00 Sun 24.10. Kl. 19:00 Þri 26.10. Kl. 19:00 Mið 27.10. Kl. 19:00 Fim 28.10. Kl. 19:00 Mið 3.11. Kl. 19:00 aukas. Sun 7.11. Kl. 19:00 Mið 10.11. Kl. 19:00 Sun 14.11. Kl. 19:00 Mið 24.11. Kl. 19:00 aukas. Fim 25.11. Kl. 19:00 aukas. Lau 11.12. Kl. 19:00 aukas. Sun 12.12. Kl. 19:00 aukas. Fim 21.10. Kl. 20:00 Fös 29.10. Kl. 20:00 Fim 4.11. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 20:00 Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas. Fös 26.11. Kl. 20:00 Fös 3.12. Kl. 20:00 U Ö Ö Ö Ö U U U Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fíasól (Kúlan) Hænuungarnir (Kassinn) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) Gildir ágúst 2010 til jún í 2011 úsk orti ð 1 OPIÐ KORT Gildir á Leik hús kor tið 201 0/2 011 ÁSK khusi d.is I midas ala@ le Leikhúsk ort 4 miðar á aðeins 9.900 kr. Ö U U U Ö U Ö Ö U Ö U U Ö Ö Ö Ö U Ö Ö U Ö Ö Ö U U U Ö U Ö U Ö U Ö Ö Ö Ö U Ö U U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Auglýsingasími „Ég veit ekki hvort það sé rétt að segja að við ætlum að ganga lengra – en við ætlum að halda okkar striki,“ segir Nana Alfreðsdóttir, söngkona hljómsveitar- innar Elektru. Framleiðsla á myndbandi við nýjasta lag Elektru, Cobra on Heels, hefst á næst- unni, en leit stendur yfir að stúlkum til að koma fram í myndbandinu. „Þetta verður rokk og ról. Við erum að leita að stelpum sem eru töffarar í sér og eru til í að koma fram berar að ofan. Alls konar stelpum, ekkert endilega einhverjum módelum,“ segir Nana. Síðasta myndband Elektru við lagið I Don‘t Do Boys vakti talsverða athygli, en í stuttu máli fjallaði það um hóp stúlkna sem spiluðu flöskustút. Myndbandið hneykslaði einhverja en Nana segir að sér hafi ekki fundist það gróft. „Ég er vön því að sjá fólk kyssast í sjónvarp- inu. Mér fannst það aldrei gróft,“ segir hún. „Það er eins með nýja mynd- bandið. Við erum ekki að gera eitthvað sem okkur finnst ógeðslegt, en miðað við að hitt sjokkeraði þá býst ég við að fólk tali um það.“ Nana gefur ekkert upp um efn- istök myndbandsins og fullyrðir að ekki sé um klámfengið mynd- band að ræða. „Það verður eng- inn sleikur í nýja myndbandinu, en það verður nekt,“ segir hún. - afb EKKERT KLÁM Nana segir myndband Elektru ekki verða klámfengið – ekki frekar en síðasta myndband sem sýndi stúlkur spila flöskustút.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.