Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 2
2 14. október 2010 FIMMTUDAGUR MENNING „Ég setti Fimmvörðuháls- hraun í hringinn til að hafa hluta af nýja Íslandi í honum,“ segir Sigurð- ur Ingi Bjarnason, gullsmiður og skartgripahönnuður í Sign í Hafn- arfirði, sem sérsmíðaði afmælis- gjöf fyrir Sean Ono Lennon sam- kvæmt pöntun Yoko Ono um síðustu helgi. Á laugardaginn var, 9. október, sem er sameiginlegur afmælis- dagur feðganna Johns og Seans Lennon, fékk Sigurður Ingi sím- hringingu. „Yoko Ono vantaði hring fyrir son sinn og ég var beðinn að koma. Ég hitti hana uppi á hóteli og teiknaði hring fyrir hana og smíð- aði hann síðan á tveimur klukku- tímum,“ segir Sigurður Ingi, sem kveður ansi mikið líf og fjör hafa verið í tuskunum þennan dag, bæði hjá Yoko og honum sjálfum. Fljótlega eftir að Sigurður Ingi var búinn að skila hringum til Yoko fór hann upp á fæðingardeild til Kolbrúnar Róberts konu sinn- ar. Þar fæddist þeim hjón- um fjórði sonurinn um kvöldmatarleytið. „Þetta var mikill dagur hjá henni og stór dagur hjá mér líka,“ segir hann. Sigurður Ingi selur silf- urskartgripi úr vöru- línunni Piece of Iceland á Hilton hótelinu í Reykjavík þar sem Yoko dvel- ur gjarnan. Hann segir Yoko hafa gert sér margar ferðir til að skoða og kaupa. „Hún var mjög hrifin og lét ekki duga að kaupa nokkur stykki heldur tæmdi skápinn,“ segir Siguður Ingi, ánægður með að hin heims- fræga listakona kunni svo vel að meta verk hans. Hún hafi svo sem sagst áður hafa séð áþekka hönnun þar sem hraun sé notað en ekki eins skemmtilega og hans. Hlutirnir hafi gengið hratt og vel fyrir sig á fundi þeirra á Hilt- on hótelinu í hádeginu á laugardag. „Yoko vildi ekki mikið vesen og var að vonast til að geta fengið eitthvað sem ég ætti en ég sagði henni að ég vildi gera eitthvað sér- stakt og hún féllst á það. Það var mjög gaman og mikill heiður að fá að smíða fyrir hana,“ segir Sigurð- ur, sem ber Yoko vel söguna. Hún hafi verið laus við allan hroka og stjörnustæla. „Yoko er kurteis kona með þægi- lega nærveru. Ég upplifði hana þannig að hún vildi ekki láta hafa mikið fyrir sér. Það var mikið að gera hjá henni og hún var afar hnit- miðuð í því sem hún bað um. Ég vona bara að hringurinn hafi fall- ið í góðan jarðveg,“ segir Sigurður Ingi Bjarnason. gar@frettabladid.is Smíðaði hring handa Ono og eignaðist son Sigurður Ingi Bjarnason, gullsmiður í Sign, sérsmíðaði afmælishring sem Yoko Ono gaf syninum Sean. Sigurður eignaðist sinn eigin son seinna sama dag. Yoko tæmdi söluskáp Sigurðar á Hilton. Tilkomumikill dagur segir Sigurður. ÁNÆGJA MEÐ NÝJAN SON Sigurður Ingi Bjarnason og Kolbrún Róberts listmálari með fjórða soninn sem fæddist á miklum annríkisdegi um síðustu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA – Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is  YOKO ONO STJÓRNSÝSLA Eva Joly lét í gær af störfum sem ráðgjafi sérstaks sak- sóknara. Hún ætlar að einbeita sér að forsetaframboði sínu fyrir Græn- ingja í Frakklandi og segist kveðja starfið með söknuði. Samningur hennar átti að renna út um áramót en gert var samkomulag um að hún hætti fyrr. Niðurstaðan var tilkynnt á blaða- mannafundi í gær. Þar sagðist Joly vera ánægð með það hvernig emb- ættið hefði verið byggt upp frá því að hún kom þangað til starfa skömmu eftir bankahrun. Í upp- hafi störfuðu hjá embættinu fimm manns. Um næstu áramót er stefnt að því að þeir verði áttatíu talsins. Joly sagði að það teymi væri jafn- öflugt og franska efnahagsbrotalög- reglan, sem er með aðsetur í París. Joly sagðist sannfærð um að fjár- munir myndu endurheimtast eftir dómsmál sem höfðuð yrðu eftir rannsóknir embættisins. Þá sagði hún mikilvægt að leita áfram lið- sinnis til útlanda vegna smæðar kunningjasamfélagsins á Íslandi. Þá sagði hún að stjórnvöld ættu að skoða að koma á fót sérstöku dóms- valdi sem tæki á efnahagsbrotum. - sh Eva Joly er opin fyrir hugmynd um sérstakan efnahagsbrotadómstól: Joly hætt hjá sérstökum saksóknara EVA OG SÉRSTAKUR Nú skilja leiðir með þeim Evu og Ólafi Haukssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sunna, var þetta bara spurn- ing um að vera í réttum blóðflokki? „Er Bloodgroup ekki bara sér blóð- flokkur út af fyrir sig?“ Sunna Margrét Þórisdóttir er nýgengin til liðs við hljómsveitina Bloodgroup (Blóðflokk.) ATVINNUMÁL Orkuveita Reykja- víkur (OR) ætlar að segja upp um áttatíu starfsmönnum sínum í lok mánaðarins, samkvæmt fréttum RÚV í gærkvöld. Um 580 starfsmenn vinna nú hjá OR, sem þýðir að um sjöundi hver starfsmaður mun fá upp- sagnarbréf. Ekki er enn ljóst hvaða fólk það er sem verður sagt upp eða á hvaða sviðum það starf- ar. Ekki er heldur búið að taka ákvarðanir um það hvort deildir verði lagðar niður eða sameinað- ar innan fyrirtækisins. - sv OR fækkar starfsmönnum: Sjöundi hver verður rekinn NESKAUPSTAÐUR Búið er að koma upp strandblakvelli í Neskaupstað með innfluttum sandi frá Póllandi. Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, formaður blakdeildarinn- ar í Neskaupstað, segir að mun dýrara hafi verið að flytja sand frá Suðurlandi sökum þess að flutning- urinn frá Póllandi var ókeypis. „Það er fínn sandur bæði á Stokkseyri og Eyrar- bakka en flutningurinn er svo dýr,“ segir Þorbjörg. Kostnaðurinn við völlinn í heild er rúmar tvær milljónir króna. Þorbjörg segir völlinn mikinn gleðigjafa fyrir íbúa svæðisins og býst við því að hann verði mikið notaður næsta sumar. „Þetta er svo flott staðsetning, rétt við tjaldsvæð- ið, þannig að völlurinn mun nýtast ferðafólki sem og heimamönnum,“ segir hún. Í nóvember verða haldnir dagar myrkurs í Nes- kaupstað og stendur þá til að vera með rökkurblak á vellinum. „Sólin hverfur hérna í nóvember og við fáum ekki að sjá hana aftur fyrr en í febrúar, þannig að við ætlum að koma upp kyndlum og hafa skemmtilega stemningu hérna í myrkrinu,“ segir Þorbjörg. Hluti Íslandsmótaraðarinnar í strandblaki verður haldinn á vellinum næsta sumar. - sv Nýr strandblakvöllur opnaður í Neskaupstað með sandi frá Póllandi: Dýrara að nota íslenskan sand STRANDBLAK UM HAUST Norðfirðingar létu haustkulið ekki aftra sér frá því að spila strandblak á stuttbuxum fyrr í vikunni. LÖGREGLUMÁL Ungur karlmaður gekk berserksgang á skrifstofu umboðsmanns skuldara fyrir hádegi í gær. Hann braut rúðu og skilrúm og kastaði tölvu ráð- gjafa í gólfið. Starfsfólki umboðsmanns var boðið upp á áfallahjálp eftir atvikið. Ráðgjafinn sem mað- urinn var hjá tók uppákomuna sérstaklega nærri sér. „Henni var mjög brugðið eins og öllum öðrum,“ segir Svanborg Sigmars- dóttir, upplýsingafulltrúi emb- ættisins. Ekkert atvik í líkingu við þetta hefur komið upp frá því umboðsmaður skuldara tók til starfa. - eh Læti hjá umboðsmanninum: Maður gekk berserksgang STANGVEIÐI Verndarsjóður villtra laxastofna, NASF, spáir að lax- veiði á stöng á Íslandi í sumar hafi numið 75 þúsund fiskum. Spáin um heild- arveiðina er byggð á lokatöl- um sem þegar liggja fyrir úr tilteknum ám. Samsvarandi spár fyrri ára hafa ekki skeikað um meira en eitt prósent. Orri Vigfússon, forvígismað- ur NASF, segir að stangveiði í hefðbundnum ám hafi tvöfald- ast á tíu árum og þrefaldast ef veiðin í svokölluðum hafbeitar- ám sé talin með. Ástæða þess- arar jákvæðu þróunar sé meðal annars uppkaup á netaveiði á laxi í sjó, aukning í því að stang- veiðimenn sleppi veiddum laxi og hlýnandi veðurfar. - gar NASF spáir fyrir um lokatölur: Sumarveiðin er 75 þúsund laxar ORRI VIGFÚSSON VÍSINDI Úrgangur úr hvölum þjón- ar þeim tilgangi að bera næring- arefni úr hafsdjúpum og upp á yfirborðið, og er því afar mikil- vægur hringrás lífsins í höfun- um. Þetta er niðurstaða vísinda- manna við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Vísindamennirnir segja þetta kollvarpa hugmyndum um að hvalir og fiskar keppi um fæð- una, og segja verndun hvala hafa góð áhrif á fiskistofna. Þeir segja úrganginn fljóta upp á yfirborðið, brotna niður og verða fæðu fyrir svif. Áhrifin eru þó mun minni í dag en fyrr á árum vegna hvalveiða. - bj Úrgangur hvala vanmetinn: Verndun hvala góð fyrir fiska VERNDUN Með því að vernda hvali er hægt að hjálpa fiskistofnum að dafna, segja vísindamenn við Harvard-háskóla. NORDICPHOTOS/AFP BÚRMA Leiðtogi stjórnarandstöð- unnar í Búrma, Aung San Suu Kyi, ætlar ekki að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fer í landinu á næstunni. Er það í fyrsta sinn í 20 ár sem slík atkvæðagreiðsla fer fram í Búrma. Suu Kyi hefur verið í stofufang- elsi síðustu ár en hefur barist fyrir lýðræðislegum umbótum í landinu sem stjórnað er af her- foringjum. - sv Leiðtogi greiðir ekki atkvæði: Fyrsta kosning í Búrma í 20 ár SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.