Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 18
 14. október 2010 FIMMTUDAGUR18 VIÐSKIPTI Söluandvirði seldra símtækja hjá Vodafone á Íslandi er 33 prósentum hærra fyrstu níu mánuði árs- ins en á sama tímabili í fyrra. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone á Íslandi, segir töluverðar sveiflur milli mánaða. Mest- ur munur er á sölutölum í ágúst, þegar salan var 55 prósentum meiri en árið á undan og í mars þegar munaði 50 prósentum. Í september segir hann að sölu- andvirði símtækjanna hafi verið 22 prósentum hærra en í fyrra. „Og það er rétt að taka fram að virðisauka- skatturinn er ekki inni í þessu þannig að hækkun á honum skýrir ekki hluta af þessu,“ segir Hrannar. Hluti af skýringunni segir Hrannar að kunni að vera að símatækjasala hafi verið fremur léleg í fyrra og kunni því óvenjumargir símar að hafa verið „komnir á tíma“. Þá noti fólk líkast til tækifærið þegar að endurnýjun komi og kaupi síma með fjöl- breyttari notkunarmöguleika en áður, svo sem síma sem auðvelda netnotkun, eða hafa þægilegt viðmót fyrir tölvupóst og samskiptaforrit á borð við Face- book. „Almennt er fólk að kaupa miklu flottari tæki en í fyrra því söluverðmæti seldra tæki hefur aukist miklu meira en magnið,“ segir hann og bendir á að þótt söluverðmætið í ágúst hafi verið 55 prósentum meira en í fyrra hafi ekki selst nema sautján pró- sentum fleiri símtæki. „Mestu munaði þar um nýja iPhone-símann, sem seldist fyrir tíu milljónir í mán- uðinum.“ - óká Eftir dapra sölu á nýjum símtækjum í fyrra hefur salan tekið kipp í ár: Fólk kaupir miklu dýrari síma SALAN TEKUR KIPP Upplýsingafulltrúi Vodafone segir fólk almennt kaupa flottari tæki í ár en í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Útgjöldin > Kílóverð á frystum rækjum HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS IBTGCAI2802 ½” TOPPLYKLASETT, 28 STK. Sterk plasttaska | Stærðir 8 - 32 mm 9.900 m/vsk Fullt verð 21.900 www.sindri .is / sími 5 75 0000 VERKFÆRI SEM HÆGT ER AÐ TREYSTA Á! Á T O P P U M A ug lý si ng as ím i hagur heimilanna Hjartamagnýl kostar um 800 krónur í smásölu hér á landi. Aspirín, sem inni- heldur sömu virku efnin, er fjórum sinnum ódýrara í verslunum Boots á Eng- landi. Ekki hægt að keppa við Bretlandsmarkað, segir markaðstjóri Actavis. Hjartamagnýl, 100 stykki af 75 milligramma töflum, er fjórum sinnum dýrara hér á landi en sam- bærileg lyf á Englandi. Hér á landi kostar hver pakkning um 800 krón- ur í smásölu og er heildsöluverðið í kringum 540 krónur. Í verslun- um Boots á Englandi kostar sama magnpakkning af Aspirin, sem er sambærilegt lyf, 1,09 bresk pund sem jafngildir um 192 íslenskum krónum. Bæði lyfin innihalda sömu virku efnin, asetýlsalisýlsýru og magnesíumhýdroxíð. Ólöf Þórhallsdóttir, markaðs- stjóri Actavis, segir að Boots framleiði lyf í gríðarlegu magni og nái þar með að halda verðinu niðri. Eftirspurnin eftir lyfjunum í Bretlandi sé einnig mun meiri en hér á landi, sökum stærðar markaðarins. „Hjartamagnýl er bara framleitt fyrir íslenskan markað. Það er dýrt í framleiðslu og álagningin er mjög lítil,“ segir Ólöf. „Við gerum okkur grein fyrir því að það er hægt að fá sambærileg lyf erlendis fyrir mun minni pening en við ráðum bara ekki við þetta verð á þessu tiltekna lyfi hér á íslenskum markaði.“ Rannveig Gunnarsdóttir hjá Lyfjastofnun segir ýmsar ástæð- ur geta verið fyrir því að verðið sé hærra hér á landi. „Þegar um litlar pakkningar á ódýrum lyfjum er að ræða eru álagningarreglur þannig að afgreiðslugjöld vega þungt þegar lyfin eru ódýr,“ segir Rannveig. „Hér áður fyrr var ákveðin pró- sentuálagning leyfð í smásölu, sem þýðir að því dýrara sem lyfið var, þeim mun meira fékk smásalinn fyrir að selja það, en þeim reglum hefur nú verið breytt.“ Rannveig bendir einnig á smæð íslenska markaðarins miðað við þann breska og segir afhending- ar- og pakkningagjöld hér á landi einnig vega þungt. Rúna Hauksdóttir, formaður Lyfjagreiðslunefndar, tekur undir orð Rannveigar með ósamræmi á mörkuðum landanna en bætir við að lyfin sem um ræðir, hjarta- magnýl og aspirín, séu ekki sam- bærileg. „Það er mun minna magn af virkum efnum í hjartamagnýl held- ur en í aspirín og styrkleikinn er þar af leiðandi minni,“ segir Rúna. „Hjartamagnýl er lausasölulyf og verðlagning á þeim er frjáls á Íslandi. Þau lyf sem Lyfjagreiðslu- nefnd hefur umsjón með eru það ekki og við berum okkur saman við Norðurlöndin, ekki Bretland.“ sunna@frettabladid.is Bresk lyf kosta fjórðung af verðinu hér á landi HJARTAMAGNÝL OG ASPIRÍN Breska aspirínið kostar 1,09 bresk pund í verslunum Boots í London. Hjartamagnýl, sambærilegt lyf í sömu magnpakkningum, kostar um 800 krónur í smásölu hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Ég er fræg fyrir að vera ekki góð húsmóðir, en veit þó hvernig þetta á allt að vera því móðir mín var myndarlegasta kona sem ég hef á ævi minni þekkt,” segir Andrea Jónsdóttir útvarpskona. Andrea segir það há sér að hún sé alltaf að koma og fara. „Það húsráð sem mér dett- ur helst í hug er að fólk ætti ekki að hafa áhyggj- ur af drasli eða ryki, því það fer ekki neitt,” Andrea Jónsdóttir. GÓÐ HÚSRÁÐ ENGAR ÁHYGGJUR AF DRASLINU 85 2 73 4 71 8 79 0 1. 12 0 2002 2004 2006 2008 2010 kr ón ur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.