Fréttablaðið - 28.10.2010, Blaðsíða 24
28. október 2010 FIMMTUDAGUR
MÉR FINNST
GAMAN AÐ
MÆTA Á LEIKI
HJÁ HONUM,
ÉG ER YFIRLEITT
RÓLEGASTA
FORELDRIÐ
Á STAÐNUM“
Miðvikudagurinn 3. nóvember er forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Ofangreind fullyrðing er byggð á áralöngum rannsóknum fræðimanna við
Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík á hegðun ungmenna og hvað skilar árangri í forvörnum. Forvarnardagurinn er samstarfsverkefni ofantaldra aðila.
Verkefnið er styrkt af
Rannsóknir sýna að ein besta
forvörnin gegn fíkniefnum er
Kynntu þér málið á www.forvarnardagur.is
eða vertu með okkur á facebook.com/forvarnardagur
þátttaka í skipulögðu
íþrótta- og æskulýðsstarfi
„
Að undanförnu hef ég þurft að glíma við frekar óskemmti-
lega reynslu þar sem fjölmiðill ber
upp á mig rangar sakir. DV hefur
haldið því ítrekað fram að ég hafi
skipulagt árás á íslensku krónuna
ásamt alþjóðlegum vogunarsjóð-
um. Við það andrúmsloft sem nú
ríkir er sennilega auðveldast fyrir
mann sem starfar í viðskiptum að
gefast upp og hætta að reyna að
hafa áhrif á að því er virðist stjórn-
lausa umræðu og leyfa henni ein-
faldlega að ganga yfir. Mig lang-
ar hins vegar í þessari grein að
hrekja viðkomandi fullyrðingar DV
og benda á hve veikum grunni þær
eru byggðar.
Ásakanir DV hafa verið studd-
ar með langsóttum rangtúlkunum
á tölvupóstum sem ég sendi árið
2007. „Ja eg er.I NYC og hitti Soros
adan og BRuce Kovner. Thad freist-
ar theirra ad radast a kronuna.“
Á fundinum var ég að kynna
hlutabréf Straums fyrir viðkomandi
fjárfestum en á þessum tíma þótti
okkur spennandi að fá alþjóðlega
fjárfesta að félaginu, slík kynning
bar að sjálfsögðu ekki þau skilaboð
að ráðast ætti á gjaldmiðilinn. Á
fundinum hafði hins vegar skapast
umræða um krónuna þar sem fjár-
festarnir töldu hana geta veikst.
Í tölvupóstinum er ég að vara við
mögulegum fyrirætlunum þessara
fjárfesta enda alvarlegt mál fyrir
mig og mína samstarfsmenn sem
áttu mikið af innlendum eignum ef
slíkt stæði til.
DV styður ásakanir sínar einnig
með því að ég hafi sagt „… en mer
blaedir a hverjum degi“
Ég hafði lengi verið svartsýnn á
íslensku krónuna. Til þess að draga
úr áfalli við fall íslensku krónunnar
í fjárfestingum hafði ég um
nokkurn tíma varið hluta íslenskra
eigna fyrir verðfalli gjaldmiðils-
ins. Það var gert með því að gera
framvirkan samning sem virkaði
í raun sem trygging gegn lækkun
gjaldmiðilsins, en á alþjóðlegum
verðbréfamörkuðum er vísað til
kostnaðar við slíkar tryggingar
sem „bleed“ vegna vaxtakostnaðar
sem þær hafa í för með sér. Ég
nýtti slíkar tryggingar sem lið í
áhættustýringu en á engum tíma-
punkti var ég hins vegar með
skortstöðu á íslensku krónuna
þar sem eignir á Íslandi voru það
miklar að ógerlegt hefði verið að
verja þá áhættu að fullu. Það sést
best á því að Novator og ég sjálf-
ur töpuðum miklum fjármunum á
hruni íslenska markaðar ins og er
einnig í fullu samræmi við skýrslu
Rannsóknarnefndar Alþingis sem
rannsakaði hreyfingar á gjaldeyr-
ismarkaði fyrir hrun.
Ástæðan fyrir því að ég keypti
tryggingar gegn gengisleiðrétt-
ingu íslensku krónunnar var að
ég hafði miklar áhyggjur af stöðu
krónunnar og íslenska hagkerfis-
ins allt frá árinu 2005 og fram að
hruni. Ég reyndi á þessum tíma-
punkti opinberlega að benda á veik-
leika kerfis ins og vara við mögu-
legu hruni markaðarins og reyndi
að takmarka tjón mitt og Novator
af þessu með ýmsum hætti eins og
rakið er hér að neðan:
Ég varaði bankastjóra Lands-
bankans við hættunni af því að
alþjóðlegir lánamarkaðir myndu
lokast með tilheyrandi áföllum á
gjaldeyrismarkaði árið 2005.
Ég setti árið 2006 saman
hagfræðihluta minnisblaðs dag-
sett 17. janúar 2006 sem var sent á
2 menn í bankaráði Lands bankans
og sýndi hversu brothætt kerfið
væri. Minnisblaðið fjallaði um
áhættustýringu Landsbankans og
hvernig mætti undirbúa bankann
fyrir lokun lánamarkaða, gengis-
fall krónu og lækkun hlutabréfa-
verðs. Hagnaður yrði af gengis-
vörnum og hlutabréfavörnum sem
myndu draga úr tapi Landsbankans
við lækkun markaða.
Í janúar 2006, á opnum fundi sem
Arnór Sighvatsson, þáverandi aðal-
hagfræðingur Seðlabankans stýrði,
sagði ég að krónumarkaður væri á
sama stað og hlutabréf í net bólunni
í febrúar 2000, mánuði fyrir þá
miklu leiðréttingu sem varð.
Ég greiddi fyrir komu Nouriel
Roubini til landsins haustið 2006,
þar sem hann hitti Seðlabanka-
stjóra, hagfræðinga Seðlabankans
og fjármálaráðuneytisins og hann
varaði við miklum alþjóð legum
áföllum, sem myndu hafa neikvæð
áhrif á Ísland og undirritaður sagði
á þessum fundum að efla þyrfti
gjaldeyrisforðann og huga að upp-
töku nýrrar myntar.
Sumarið 2007 bauð ég sérfræð-
ingi AGS, Manuel Hinds, til lands-
ins, sem sagði að skuldir landsins
væru of miklar og fall krónunnar
myndi auka þær frekar. Efni fund-
arins var dreift á alþingismenn.
Manuel Hinds lagði til einhliða
upptöku nýrrar myntar og ef farið
hefði verið að ráðum hans væri
skuldastaða fyrirtækja og heimila
allt önnur en hún er í dag.
Í myndinni Draumalandið færði
ég ítarleg rök fyrir því að íslenska
hagkerfið myndi ganga í gegnum
gríðarlega erfitt samdráttarskeið,
en viðtalið er óstytt í ítarefni DVD
útgáfunnar. Viðtalið var tekið árið
2007.
Ég kom minnisblöðum um brot-
hætt ástandið og leiðir til úrbóta á
marga ráðherra í ríkisstjórn og til
starfsmanna Seðlabanka.
Ég hafði milligöngu um að Alonzo
Perez kom til landsins til að ræða
við ráðamenn um reynslu sína en
hann dollaravæddi Equador.
Ég ræddi við John Greenwood,
föður Hong Kong dollarsins og bað
hann um að segja frá reynslu Hong
Kong, sem hann gerði á fyrirlestri
á Íslandi 2008.
Eftir hrun fékk ég Lee Buchheit
til landsins, 12. desember 2008,
og hann bauð fram aðstoð sína
við samninga um IceSave, en Lee
er virtasti lögfræðingur heims
á sviði samninga um uppgjör á
ríkisskuldum. Lee var síðar ráðinn
til að leiða samninganefnd Íslands
í IceSave málum.
Af ofangreindu má vonandi
sjá að ég lýsti skoðunum mínum
margoft opinberlega og það mátti
því vera öllum ljóst frá 2005 að ég
teldi gengisleiðréttingu geta átt sér
stað á Íslandi og því ekkert óeðli-
legt þótt ég reyndi að hluta til að
verja þessa áhættu. Ég vann hins
vegar aldrei á neinn hátt gegn
hagsmunum Íslands, heldur þvert á
móti, varaði við og reyndi að vinna
gegn mörgum þeim veikleikum
sem á endanum ollu hruninu.
Ég hef margoft reynt að útskýra
mál mitt fyrir DV en án árangurs.
Tímasetning umfjöllunar blaðs-
ins er án efa ekki tilviljun þar sem
undirritaður á í lokaviðræðum um
möguleg kaup á Sjóvá ásamt hóp
fjárfesta. Mér finnst að fjölmiðlar
jafnt sem aðrir verði að starfa af
ábyrgð og hef ákveðið að höfða
meiðyrðamál gegn DV til að fá full-
yrðingar blaðsins dæmdar dauðar
og ómerkar.
Áhættuvarnir og
rangar sakir
Viðskipti
Heiðar Már
Guðjónsson
fjárfestir
Tímasetning umfjöllunar blaðsins er
án efa ekki tilviljun þar sem undirrit-
aður á í lokaviðræðum um möguleg
kaup á Sjóvá ásamt hóp fjárfesta.