Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.10.2010, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 28.10.2010, Qupperneq 24
 28. október 2010 FIMMTUDAGUR MÉR FINNST GAMAN AÐ MÆTA Á LEIKI HJÁ HONUM, ÉG ER YFIRLEITT RÓLEGASTA FORELDRIÐ Á STAÐNUM“ Miðvikudagurinn 3. nóvember er forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Ofangreind fullyrðing er byggð á áralöngum rannsóknum fræðimanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík á hegðun ungmenna og hvað skilar árangri í forvörnum. Forvarnardagurinn er samstarfsverkefni ofantaldra aðila. Verkefnið er styrkt af Rannsóknir sýna að ein besta forvörnin gegn fíkniefnum er Kynntu þér málið á www.forvarnardagur.is eða vertu með okkur á facebook.com/forvarnardagur þátttaka í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi „ Að undanförnu hef ég þurft að glíma við frekar óskemmti- lega reynslu þar sem fjölmiðill ber upp á mig rangar sakir. DV hefur haldið því ítrekað fram að ég hafi skipulagt árás á íslensku krónuna ásamt alþjóðlegum vogunarsjóð- um. Við það andrúmsloft sem nú ríkir er sennilega auðveldast fyrir mann sem starfar í viðskiptum að gefast upp og hætta að reyna að hafa áhrif á að því er virðist stjórn- lausa umræðu og leyfa henni ein- faldlega að ganga yfir. Mig lang- ar hins vegar í þessari grein að hrekja viðkomandi fullyrðingar DV og benda á hve veikum grunni þær eru byggðar. Ásakanir DV hafa verið studd- ar með langsóttum rangtúlkunum á tölvupóstum sem ég sendi árið 2007. „Ja eg er.I NYC og hitti Soros adan og BRuce Kovner. Thad freist- ar theirra ad radast a kronuna.“ Á fundinum var ég að kynna hlutabréf Straums fyrir viðkomandi fjárfestum en á þessum tíma þótti okkur spennandi að fá alþjóðlega fjárfesta að félaginu, slík kynning bar að sjálfsögðu ekki þau skilaboð að ráðast ætti á gjaldmiðilinn. Á fundinum hafði hins vegar skapast umræða um krónuna þar sem fjár- festarnir töldu hana geta veikst. Í tölvupóstinum er ég að vara við mögulegum fyrirætlunum þessara fjárfesta enda alvarlegt mál fyrir mig og mína samstarfsmenn sem áttu mikið af innlendum eignum ef slíkt stæði til. DV styður ásakanir sínar einnig með því að ég hafi sagt „… en mer blaedir a hverjum degi“ Ég hafði lengi verið svartsýnn á íslensku krónuna. Til þess að draga úr áfalli við fall íslensku krónunnar í fjárfestingum hafði ég um nokkurn tíma varið hluta íslenskra eigna fyrir verðfalli gjaldmiðils- ins. Það var gert með því að gera framvirkan samning sem virkaði í raun sem trygging gegn lækkun gjaldmiðilsins, en á alþjóðlegum verðbréfamörkuðum er vísað til kostnaðar við slíkar tryggingar sem „bleed“ vegna vaxtakostnaðar sem þær hafa í för með sér. Ég nýtti slíkar tryggingar sem lið í áhættustýringu en á engum tíma- punkti var ég hins vegar með skortstöðu á íslensku krónuna þar sem eignir á Íslandi voru það miklar að ógerlegt hefði verið að verja þá áhættu að fullu. Það sést best á því að Novator og ég sjálf- ur töpuðum miklum fjármunum á hruni íslenska markaðar ins og er einnig í fullu samræmi við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsakaði hreyfingar á gjaldeyr- ismarkaði fyrir hrun. Ástæðan fyrir því að ég keypti tryggingar gegn gengisleiðrétt- ingu íslensku krónunnar var að ég hafði miklar áhyggjur af stöðu krónunnar og íslenska hagkerfis- ins allt frá árinu 2005 og fram að hruni. Ég reyndi á þessum tíma- punkti opinberlega að benda á veik- leika kerfis ins og vara við mögu- legu hruni markaðarins og reyndi að takmarka tjón mitt og Novator af þessu með ýmsum hætti eins og rakið er hér að neðan: Ég varaði bankastjóra Lands- bankans við hættunni af því að alþjóðlegir lánamarkaðir myndu lokast með tilheyrandi áföllum á gjaldeyrismarkaði árið 2005. Ég setti árið 2006 saman hagfræðihluta minnisblaðs dag- sett 17. janúar 2006 sem var sent á 2 menn í bankaráði Lands bankans og sýndi hversu brothætt kerfið væri. Minnisblaðið fjallaði um áhættustýringu Landsbankans og hvernig mætti undirbúa bankann fyrir lokun lánamarkaða, gengis- fall krónu og lækkun hlutabréfa- verðs. Hagnaður yrði af gengis- vörnum og hlutabréfavörnum sem myndu draga úr tapi Landsbankans við lækkun markaða. Í janúar 2006, á opnum fundi sem Arnór Sighvatsson, þáverandi aðal- hagfræðingur Seðlabankans stýrði, sagði ég að krónumarkaður væri á sama stað og hlutabréf í net bólunni í febrúar 2000, mánuði fyrir þá miklu leiðréttingu sem varð. Ég greiddi fyrir komu Nouriel Roubini til landsins haustið 2006, þar sem hann hitti Seðlabanka- stjóra, hagfræðinga Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins og hann varaði við miklum alþjóð legum áföllum, sem myndu hafa neikvæð áhrif á Ísland og undirritaður sagði á þessum fundum að efla þyrfti gjaldeyrisforðann og huga að upp- töku nýrrar myntar. Sumarið 2007 bauð ég sérfræð- ingi AGS, Manuel Hinds, til lands- ins, sem sagði að skuldir landsins væru of miklar og fall krónunnar myndi auka þær frekar. Efni fund- arins var dreift á alþingismenn. Manuel Hinds lagði til einhliða upptöku nýrrar myntar og ef farið hefði verið að ráðum hans væri skuldastaða fyrirtækja og heimila allt önnur en hún er í dag. Í myndinni Draumalandið færði ég ítarleg rök fyrir því að íslenska hagkerfið myndi ganga í gegnum gríðarlega erfitt samdráttarskeið, en viðtalið er óstytt í ítarefni DVD útgáfunnar. Viðtalið var tekið árið 2007. Ég kom minnisblöðum um brot- hætt ástandið og leiðir til úrbóta á marga ráðherra í ríkisstjórn og til starfsmanna Seðlabanka. Ég hafði milligöngu um að Alonzo Perez kom til landsins til að ræða við ráðamenn um reynslu sína en hann dollaravæddi Equador. Ég ræddi við John Greenwood, föður Hong Kong dollarsins og bað hann um að segja frá reynslu Hong Kong, sem hann gerði á fyrirlestri á Íslandi 2008. Eftir hrun fékk ég Lee Buchheit til landsins, 12. desember 2008, og hann bauð fram aðstoð sína við samninga um IceSave, en Lee er virtasti lögfræðingur heims á sviði samninga um uppgjör á ríkisskuldum. Lee var síðar ráðinn til að leiða samninganefnd Íslands í IceSave málum. Af ofangreindu má vonandi sjá að ég lýsti skoðunum mínum margoft opinberlega og það mátti því vera öllum ljóst frá 2005 að ég teldi gengisleiðréttingu geta átt sér stað á Íslandi og því ekkert óeðli- legt þótt ég reyndi að hluta til að verja þessa áhættu. Ég vann hins vegar aldrei á neinn hátt gegn hagsmunum Íslands, heldur þvert á móti, varaði við og reyndi að vinna gegn mörgum þeim veikleikum sem á endanum ollu hruninu. Ég hef margoft reynt að útskýra mál mitt fyrir DV en án árangurs. Tímasetning umfjöllunar blaðs- ins er án efa ekki tilviljun þar sem undirritaður á í lokaviðræðum um möguleg kaup á Sjóvá ásamt hóp fjárfesta. Mér finnst að fjölmiðlar jafnt sem aðrir verði að starfa af ábyrgð og hef ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn DV til að fá full- yrðingar blaðsins dæmdar dauðar og ómerkar. Áhættuvarnir og rangar sakir Viðskipti Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir Tímasetning umfjöllunar blaðsins er án efa ekki tilviljun þar sem undirrit- aður á í lokaviðræðum um möguleg kaup á Sjóvá ásamt hóp fjárfesta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.