Fréttablaðið - 28.10.2010, Blaðsíða 56
40 28. október 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Útgáfuröðin Bootleg Series sem er helguð sjaldheyrðum upptökum frá
ferli Bobs Dylan er einstök í tónlistarútgáfusögunni. Það hafa auðvitað
komið út flottir pakkar með fágætu efni annarra listamanna, en það
sem gerir Bootleg-röð Dylans sérstaka er sú staðreynd að þrátt fyrir
magnið (15 diskar komnir) fara
gæðin ekkert minnkandi.
Í síðustu viku kom níundi hlutinn
í verslanir – The Witmark Demos:
1962-1964. Þetta eru 47 lög á tveim-
ur diskum og eins og nafnið gefur
til kynna eru þetta demó-upptökur
sem Dylan gerði fyrir þá tvo aðila
sem hann gerði fyrst samning við
um útgáfurétt á lögunum sínum.
Fyrstu lögin eru tekin upp í janúar
1962 fyrir Lou Levy hjá Leeds
Music, en meginhluti efnisins er
hljóðritaður fyrir M Witmark &
Sons á árunum 1962-1964. Dylan
er þarna einn með kassagítarinn
og munnhörpuna og tekur aðeins
í píanó líka. Þarna eru mörg fræg
Dylan-lög (Blowin‘ in the Wind, A
Hard Rain’s a-Gonna Fall, Masters of War, Don‘t Think Twice …), en
líka lög sem aldrei náðu á plötu og voru jafnvel aldrei spiluð á tónleik-
um. Hljómurinn er góður og andrúmsloftið afslappað. Dylan hóstar,
stoppar af því hann man ekki textann og kynnir stöku lög.
The Witmark Demos er enn eitt púslið í heildarmyndina fyrir aðdá-
endur Dylans. Ómetanlegt er að heyra þetta efni. Að auki fylgir 60
síðna bók með. Í henni eru meðal annars myndir og handskrifaðir og
vélritaðir textar frá þessum tíma. Aðalefnið er samt texti eftir Colin
Escott sem rekur sögu þessara hljóðritana og varpar ljósi bæði á feril
Dylans og það ástand sem ríkti á þessum árum í bandarískri plötu-
útgáfu. Blautur draumur poppnördsins ...
Aftur til upphafsins
FLOTT ÚTGÁFA Níunda útgáfan í
Bootleg-röð Bobs Dylan veldur ekki
vonbrigðum.
> Plata vikunnar
Retro Stefson - Kimbabwe
★★★★
„Gleðisveitin úr Austurbæjar-
skólanum klikkar ekki á plötu
númer tvö.“ - tj
> Í SPILARANUM
Ensími - Gæludýr
Belle & Sebastian - Write About Love
Just Another Snake Cult - The Dionysian Season
Prinspóló - Jukk
S.H. Draumur - Goð+
ENSÍMI S.H. DRAUMUR
Ryan Bingham og T-Bone Burnett áttu
besta frumsamda lagið sem var samið
fyrir kvikmynd á verðlaunahátíðinni
World Soundtrack Awards sem var haldin í
Belgíu. Lagið nefnist The Weary Kind og er
úr myndinni Crazy Heart með Jeff Bridges
í Óskarsverðlaunahlutverki.
Jónsi í Sigur Rós var tilnefndur
í sama flokki fyrir lagið Sticks &
Stones úr teiknimyndinni How to
Entertain Your Dragon en þurfti
að lúta í lægra haldi fyrir Bing-
ham og Burnett, rétt eins og Bítill-
inn Paul McCartney fyrir lagið
(I Want to) Come Home úr
myndinni Everybody´s Fine.
Jónsi var ekki viðstaddur
verðlaunaathöfnina því
sama kvöld var hann staddur hinum megin
Atlantshafsins á tónleikum í Arizona í
Bandaríkjunum. Tónleikaferð hans vestan-
hafs lýkur 10. nóvember og þá verður ein-
mitt Belgía næsti viðkomustaður hans.
Alexandre Desplat var kjörinn kvik-
myndahöfundur ársins og hann átti einnig
bestu tónlistina í kvikmynd (Fantastic
Mr. Fox). Þetta var annað árið í röð sem
hann bar sigur úr býtum í síðarnefnda
flokknum. Hinn margreyndi John
Barry fékk verðlaun fyrir æviframlag
sitt til kvikmyndatónlistar. -fb
Jónsi og McCartney töpuðu
Hljómsveitin Suede er lögð
af stað í stutta tónleikaferð
eftir að hafa legið í dvala í
sjö ár. Tilefnið er ný safn-
plata, The Best of Suede.
Enska hljómsveitin Suede kom
nýverið saman eftir sjö ára hlé,
mörgum tónlistarunnendum
til mikillar ánægju. Tilefnið er
ný tveggja diska safnplata sem
kemur út 1. nóvember og nefnist
einfaldlega The Best of Suede. Þar
eru öll smáskífulög sveitarinnar
í endurhljóðblandaðri útgáfu, B-
hliðarlög og annað efni.
Hljómsveitin er nýlögð af stað í
tónleikaferð til að fylgja plötunni
eftir og verða lokatónleikarnir í
O2-höllinni í London 7. desember.
Söngvarinn Brett Anderson segir
það óvíst hvort sveitin haldi áfram
eftir það. „Við erum ekki með
neinar langtímaáætlanir,“ sagði
hann. Spurður hvort ný plata væri
á leiðinni sagði söngvarinn: „Ég
held að enginn af okkur viti hvort
við munum gera nýja plötu. Við
yrðum að vera sannfærðir um að
hún yrði frábær. Annars myndum
við sleppa því. Það þarf að vera
eitthvað sérstakt sem rekur okkur
í að gera plötu.“
Suede hefur verið nefnd sem
sú hljómsveit sem kom Britpop-
bylgjunni af stað og hefur fyrir
vikið verið talin ein áhrifamesta
enska rokksveit tíunda áratugar-
ins. Fyrsta plata hennar, Suede,
kom út árið 1993 og átti heldur
betur eftir að slá í gegn. Hún fór
beint á topp breska vinsældalist-
ans og hafði fyrsta plata hljóm-
sveitar ekki selst jafnhratt í
tæpan áratug. Velgengnin hélt
áfram því platan hlaut einnig hin
virtu Mercury-verðlaun, enda var
þar að finna flott lög á borð við
Animal Nitrate og So Young.
Næsta plata Suede, Dog Man
Star, kom út ári síðar og fékk
fínar viðtökur. Hún er af mörg-
um talin meistarastykki sveitar-
innar en brotthvarf gítarleikar-
ans Bernards Butler rétt áður en
platan kom út skyggði á verkið.
Nýr gítarleikari, Richard
Oakes, tók við af Butler og árið
1996 kom út Coming Up, sem varð
til þess að vinsældir Suede jukust
gífurlega víða um heim. Fimm
lög komust í efsta sæti breska
smáskífulistans og platan varð
sú söluhæsta í sögu hljómsveit-
arinnar.
Sveitin gaf út tvær hljóðvers-
plötur til viðbótar, Head Music og
A New Morning, og olli sú síðar-
nefnda miklum vonbrigðum. Ári
síðar, 2003, var Suede öll. Í fram-
haldinu stofnuðu Anderson og
Butler hina skammlífu The Tears
en núna er röðin sem sagt komin
aftur að Suede, með sömu liðs-
uppstillingu og fyrir sjö árum,
að stíga fram í sviðsljósið.
freyr@frettabladid.is
Suede aftur í sviðsljósið
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 21. - 27. október 2010
LAGALISTINN
Vikuna 21. - 27. október 2010
Sæti Flytjandi Lag
1 Páll Óskar og Memfismafían .... Það geta ekki allir ...
2 Cee Lo Green ....................................... Forget You (F U)
3 Klassart ............................................. Gamli grafreiturinn
4 Kings of Leon ................................................Radioactive
5 Hurts ..........................................................Wonderful Life
6 Robbie Williams / Gary Barlow ........................Shame
7 Lifun ..................................................................Ein stök ást
8 Bjartmar og Bergrisarnir ........................................Negril
9 Sálin hans Jóns míns.........Fyrir utan gluggann þinn
10 Bubbi Morthens.............................................................Sól
Sæti Flytjandi Plata
1 Helgi Björnsson og reiðmenn... ....Þú komst í hlaðið
2 Prófessorinn og Memfismafían ................. Diskóeyjan
3 Jónas Sigurðsson ........................................ Allt er ekkert
4 Kammersveit Suðurlands ................................Taverner
5 Friðrik Ómar .................................................................Elvis
6 Retro Stefson ...................................................Kimbabwe
7 Ólöf Arnalds .............................................Innundir skinni
8 Kings of Leon ........................Come Around Sundown
9 Helgi Björnsson ........................... Ríðum sem fjandinn
10 Hjaltalín .................................................................Terminal
SUEDE 2010 Brett Anderson, Neil Codling, Simon Gilbert, Richard Oakes og Mat Osman úr Suede á Q-verðlaunahátíðinni þar sem
þeir fengu innblástursverðlaun. NORDICPHOTOS/GETTY
JÓNSI Jónsi úr Sigur Rós varð að lúta
í lægra haldi fyrir Ryan Bingham og
T-Bone Burnett á World Soundtrack
Awards. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA