Fréttablaðið - 28.10.2010, Qupperneq 36
28. OKTÓBER 2010 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● hillur og skápar
Rými-Ofnasmiðjan ehf. er eitt
rótgrónasta fyrirtæki landsins
sem selur hillur en á næsta
ári á fyrirtækið 75 ára afmæli.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa
langa reynslu af ráðgjöf og
sölu á hillum fyrir bókstaflega
alla muni.
Til að gera langa sögu stutta hefur
Rými-Ofnasmiðjan sett upp hillur
í 950 verslunum, 320 lagerum og
á 25 bókasöfnum á öllu landinu.
Þá má finna skjalaskápa frá Rými
á um 45 verkfræði- og arkitekta-
stofum og á heilsugæslustöðvum
um land allt. Thomas Möller hag-
verkfræðingur er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins.
„Fyrstu 30 árin sem fyrirtækið
var starfrækt var það eini sölu-
aðilinn hérlendis í hillum sem
voru þá ætlaðar til alls kyns
hugsanlegrar notkunar. Það vill
oft gleymast að hillur eru í öllum
fyrirtækjum, stofnunum, söfnum,
verkstæðum og heimilum á land-
inu,“ segir Thomas.
„Meðal þess sem er ofarlega
á okkar sölulista núna er ný lína
af bókasafnshillum sem kall-
ast Sysco. Þær eru léttar, ódýrar
og flottar og sérhannaðar fyrir
bókasöfn. Þá bjóðum við upp á
læsta skápa sem eru mikið tekn-
ir en í þeim má geyma hvers kyns
lyf, tóbak, áfengi, varahluti og
aðra verðmæta muni. Við seljum
mikið af hillum með læsanlegum
hurðum í bílskýli og sameignir
þar sem fólk getur geymt dekkin
sín, hreinsiefni og annað dót. Við
bjóðum upp á mikið af sérhönnuð-
um lausnum fyrir bílskýli og sam-
eignir,“ segir Thomas.
Fjöldi fyrirtækja leitar til
Rýmis til að fá ráðgjöf um
hvernig nýta megi lagerhúsnæði
til fulls og auka öryggið. „Algeng
mistök sem fólk gerir þegar það
festir kaup á hillum er að það
fjárfestir í ódýrum og óvönduð-
um lausnum, en óstöðugar hillur
geta orðið að hreinni slysahættu.
Þannig höfum við fengið við-
skiptavini eftir jarðskjálfta sem
reyndust vera með of veikburða
hillur frá okkar samkeppnisað-
ilum. Verslunareigendur ættu
líka að huga að þessu þegar þeir
leggja upp með að innrétta versl-
anir sínar.“
Thomas segir að undanfarin
misseri hafi verið gaman að
fylgjast með þeirri grósku sem
er í minni verslunarrekstri, svo
sem minjagripabúðum, hönnun-
arverslunum og slíku. „Fólk er
hugmyndaríkt og duglegt að koma
sinni starfsemi á koppinn en það
vefst fyrir mörgum hvernig best
sé að innrétta verslanirnar. Fyrir
þessa aðila höfum við meðal ann-
ars boðið upp á svokallaða „Shop
in a Box“ eða „Búð í kassa“ sem
inniheldur innréttingar, með af-
greiðsluborði og öllu tilheyrandi,
sem setja má upp á hálftíma.
Auk þess bjóðum við upp á inn-
kaupa- og flutningsgrindur en
þar sem við erum í stálbransan-
um framleiðum við ýmislegt, svo
sem okkar eigin starfsmanna-
skápa. Um 5.000 starfsmanna-
skápar frá Rými eru í notkun á
landinu en þeir eru framleiddir
með tækjum okkar í Kópavogi og
sprautaðir í næsta húsi. Þeir eru
okkar hönnun sem hefur staðist
tímans tönn í áratugi. Ef fólk er
að leita að góðum lausnum erum
við með góða ráðgjafa með ára-
tuga reynslu á þessum sviðum,“
segir Thomas.
Rými býður upp á hillur
fyrir alla mögulega hluti
Rými-Ofnasmiðjan hefur verið starfrækt í nærri 75 ár. Thomas Möller hagverkfræðingur er framkvæmdastjóri Rýmis-
Ofnasmiðjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rými-Ofnasmiðjan hefur hafið
sölu á svokölluðum sorpflokkunar-
kerfum, en fyrirtæki vilja nú vera
til fyrirmyndar á þessu sviði í
auknum mæli. Thomas Möller,
framkvæmdastjóri Rýmis-Ofna-
smiðjunnar, bjó í Þýskalandi fyrir
um 25 árum þar sem sorpflokk-
un var reglan. Hann segir mikla
vakningu í gangi hérlendis í þeim
málum.
„Á þeim tíma þótti sjálfsagt þar
ytra að flokka bókstaflega allt sorp
en það er fyrst allra síðustu árin
hér heima sem vakningin hefur
átt sér stað og þróunin er hröð.
Við seljum um 50 tegundir af sorp-
ílátum og má nefna að við erum
með nýja línu af ílátum sem eru
sérstaklega hönnuð fyrir flokkun.“
Þess má geta að Vestmannaeyja-
bær og Seltjarnarnesbær keyptu
sorpílát frá Rými-Ofnasmiðjunni
nýlega.
Sorpflokkun alls staðar
● ÖRYGGISEFTIRLIT MEÐ HILLUM Rými-Ofnasmiðjan er þessa
dagana að fara af stað með öryggiseftirlit með hillukerfum. Lagerar
geta verið hættulegt vinnuumhverfi og nokkur dæmi eru um að hillur
hafi hrunið. Erlendis hafa orðið alvarleg slys á lagerum en það eru fram-
kvæmdastjórar sem bera ábyrgð á lagerum og þurfa að passa upp á að
öryggisatriðin séu í lagi,“ segir Thomas Möller. „Við munum bjóða fyrir-
tækjum upp á öryggisúttekt á lagerum, sem er þá gerð í samræmi við
Evrópulöggjöf á þessu sviði sem er mjög ströng.“
Rými-Ofnasmiðjan býður upp á nýja línu
af ílátum sem eru sérstaklega hönnuð
fyrir flokkun.
● RÝMI-OFNASMIÐJAN
aðstoðar verslanir með allt frá
hönnun, smíði og uppsetningu
á innréttingum. Einnig býður fyr-
irtækið upp á hvers kyns verð-
merkingar, hillumerkingar, inni-
skilti og útiskilti. Þá eru til um
75 tegundir af gínum og 50 teg-
undir af fataslám fyrir verslanir
sem þurfa á þannig útbúnaði að
halda. Tilboðskörfur og framstill-
ingarbúnaður fæst í þúsund út-
færslum.