Fréttablaðið - 29.10.2010, Page 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Sérblað fylgir um
Kvikmyndaverðlaun
Norðurlandaráðs
2010
Föstudagur
skoðun 18
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
Popp
veðrið í dag
29. október 2010
254. tölublað 10. árgangur
29. október 2010 FÖSTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
M ataráhugi er útbreidd-ur í fjölskyldu rithöf-undarins Lilju Sigurð-ardóttur og þegar hún eldar er allur heimurinn undir. Glæpasagan hennar Fyrirgefning kom út hjá Bjarti í vikunni og hefur hún lánað aðalsögupersón-unni Magna fjölda uppskriftaÞað má
Lilja Sigurðardóttir hefur brennandi mataráhuga. Þann áhuga ljær hún aðalsöguhetjunni í nýrri bók.
Allur heimurinn undir
Lilja getur ekki stillt sig um að hafa hvítlauksristaða humarhala með humarsúpunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Um það bil ½ kíló smá-humar eða skelbrotvatn svo fljóti vel yfir1 fiskiteningur eða lúðu-bein til að fá k f
í blandara og maukið. Færið blönduna aftur ípottinn l
HUMARSÚPA MEÐ HVÍTLAUKSRISTUÐUM HUMARHÖLUM
Forréttur fyrir fjóra, aðalréttur FYRIR TVO
Þjóðarspegillinn 2010 Ráðstefna í félagsvísindum
XI verður í Háskóla Íslands í dag en henni er ætlað að
kynna og miðla því sem er efst á baugi í rannsóknum í
félagsvísindum á Íslandi á hverju ári. Um 160 fyrirlestrar
verða fluttir í 43 málstofum og verður fjallað um allt frá
þjóðfræði miðalda til afleiðinga efnahagshrunsins.
Verð 8.490 kr.
Villibráðar-hlaðborð
21. október - 17. nóvemberMatreiðslumeistarar Perlunnar velja hráefni frá öllum
heimshornum til að útbúa bestu villibráð sem hægt
er að bjóða upp á. Nú getur þú notið þess besta í villibráðarhlaðborði Perlunnar.
Góð tækifærisgjöf!
Jólahlaðborð Perlunnar hefst 18. nóvemberTilboð mán.-mið. 7.290 kr. — Verð: 8.290 kr.
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 29. október 2010
JÓHANN
Sinnir áhugamálinu og hefur aldrei verið ánægðari
ÞORBJÖRG ROACH ER Í
MINNIHLUTA Í HEITUSTU
HLJÓMSVEIT LANDSINS
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS • NÓVEMBER 2010
STELPAN
Í RETRO
STEFSON
ARI ELDJÁRN
OG STEINDI
Maier á Langjökli
Einn fremsti skíðakappi
heims í heimsókn.
fólk 42
Sturlunga endurútgefin
Sturlunga hefur verið
ófáanleg um árabil en er
nú aðgengileg á ný.
tímamót 68
Í takt við
breytta tíma...
Frábær opnunartilboð!
Hvert þó í
strumpandi!
STRUMPAR
STJÓRNMÁL „Það er þverpólitísk sátt um að endur-
skoða þetta og það verður gert,“ segir Oddný G.
Harðardóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Reyna á að milda áhrif efnahagsástandsins á starf-
semi heilbrigðiskerfisins úti um land.
„Það er augljóst á sumum stöðum að við verð-
um að skila til baka einhverjum af þessum niður-
skurði,“ sagði Guðbjartur Hannesson heilbrigðis-
ráðherra í fréttum Ríkisútvarpsins í gær.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu ber að skera
starfsemi heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni
niður um allt að fjörutíu prósent. Áformin hafa
mætt mikilli andstöðu og tillögur þar um sagðar
óraunhæfar. Oddný segir ekki hægt að lofa því að
ekkert verði skorið niður, útgjöld ríkisins verði að
vera í samræmi við tekjur þess. Hún vill ekki segja
til um hve háar fjárhæðir um er að tefla, né um hve
margar stofnanir sé að ræða. - bþs / sjá síðu 6
Formaður fjárlaganefndar segir hlustað á háværar raddir um óraunhæfar tillögur:
Niðurskurðurinn mildaður
FERÐAÞJÓNUSTA „Sú stund er upp-
runnin að það sé eðlilegt að taka
gjald fyrir veitta þjónustu,“ segir
Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum, um þá sam-
þykkt Þingvallanefndar að nýta
lagaheimildir til að taka gjald af
ferðamönnum í þjóðgarðinum.
Ólafur segir eingöngu rætt
um að taka gjald fyrir aðgang
að aðstöðunni á Hakinu á barmi
Almannagjár en ekki annars stað-
ar í þjóðgarðinum.
„Síðasta árið hefur verið mjög
mikil uppbygging á Þingvöllum,
meðal annars með átján salernum í
tveimur húsum með öllum nýtísku
búnaði. Þetta hefur kostað gríðar-
mikla peninga,“ segir Ólafur.
Að sögn Ólafs eru stundum tólf
til fimmtán rútur með ferðamenn
á alltof litlu bílaplani við Hakið.
Ferðaþjónustan kalli eftir bættri
þjónustu og eðlilegt sé að greitt sé
fyrir þá þjónustu sem sé á Hakinu;
leiðsögn, margmiðlun, salernisað-
stöðu, bílastæði og fleira, sérstak-
lega þegar um sé að ræða fólk á
vegum atvinnufyrirtækja.
„Ég tek skýrt fram að það er
ekki verið að loka þjóðgarðinum
eða taka aðgangsgjald heldur er
þetta eingöngu gjald fyrir veitta
þjónustu,“ undirstrikar þjóðgarðs-
vörður, sem leggur til að gjaldið
verði 200 til 300 krónur á hvern
gest.
Ólafur kveðst hafa kynnt málið
fyrir fjölda hagsmunaaðila enda
verði málið ekki unnið nema í sam-
vinnu við þá. „Ég hef alltaf feng-
ið góðar viðtökur. Ferðaþjónust-
an leggur bara áherslu á að þetta
verði gjald sem allir borgi. Kann-
anir sýna að menn eru alveg sáttir
við að greiða lágmarksupphæð svo
lengi sem hún fari í endurbætur á
þjónustunni og náttúrunni. Og það
er okkar sómi að við höfum mynd-
arlega aðkomu að Þingvöllumm.“
- gar
Þjónustugjald á gesti
í Þingvallaþjóðgarði
Nýta á heimildir til gjaldtöku af ferðamönnum sem nota aðstöðuna á Hakinu
við Almannagjá. Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður segir ferðaþjónustuna
taka þessu vel. Það er okkar sómi að hafa myndarlega aðkomu að Þingvöllum.
FÓLK Stórfyrirtækið N1 bland-
ar sér í slaginn um jólabækurn-
ar þetta árið. Fyrirtækið hefur
tryggt sér dreifingarrétt á ævi-
sögu Jónínu Benediktsdóttur og
bók Björgvins G. Sigurðssonar
um bankahrunið. Þær verða ein-
göngu seldar í verslunum N1.
Bækurnar tvær verða prent-
aðar í stærra upplagi en almennt
tíðkast á Íslandi. Bók Björgvins
verður prentuð í sjö þúsund ein-
tökum og ævisaga Jónínu í tíu
þúsund eintökum.
„Við höfum trú á þessari bók
og ég ætla að selja þetta upplag
og helst meira,“ segir Hermann
Guðmundsson, forstjóri N1.
- hdm/ sjá síðu 42
N1 í jólabókaslaginn:
Jónína prentuð í
10.000 eintökum
VAXANDI VINDUR OG úrkoma
um landið austanvert þegar líður á
daginn og vonskuveður allra aust-
ast í kvöld. Suðvestanlands verður
bjartviðri og fremur hægur vindur
fram eftir degi.
VEÐUR 4
3 4
3
2
3
FLOGIÐ VIÐ FELLIÐ Henrik Pácíejewskí sveif fagmannlega í mótordrifnum svifvæng við Úlfarsfell
í gærdag. Hann hafði flogið æfingaflug í rúmar fimmtán mínútur og var að búast til lendingar þegar ljósmyndara
Fréttablaðsins bar að garði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Norðurlöndin líflínan
Helgi Hjörvar, forseti Norður-
landaráðs, býr sig undir Norður-
landaráðs þing í næstu viku.
föstudagsviðtalið 16
Hannes samdi við KR
Hannes Þór Halldórsson
gerði samning við KR í gær.
sport 38
ÚKRAÍNA, AP Litarhaft og heilsu-
far Vladimírs Pútíns forsætisráð-
herra Rússlands var til umfjöll-
unar í fjölda rússneskra og
úrkraínskra fjölmiðla í gær. Á
fundi Pútíns með ráðamönnum í
Kænugarði á
miðvikudag var
eftir því tekið
að þrátt fyrir
mikla andlits-
málningu mátti
greina dökka
flekki undir
augum Pút-
íns. Hann þótti
þreytulegur og
leyfði ekki spurningar.
Fjölmiðlar veltu því fyrir sér
hvort hann hefði meiðst á júdóæf-
ingu, farið í lýtaaðgerð eða hvort
hann hafi þjáðst af flugþreytu.
Dmítrí Peskov, talsmaður Pút-
íns hafnaði því að forsætisráð-
herrann væri marinn. „Hann
hefur ferðast mikið undanfarið og
farið á fjölda funda,“ sagði hann
og kvað ljós á fundarstað einnig
kunna að hafa að fallið óheppilega
á Pútín. - óká
Júdómeiðsli eða flugþreyta:
Spáð í flekki
framan í Pútín
VLADIMÍR PÚTÍN