Fréttablaðið - 29.10.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 29.10.2010, Blaðsíða 30
2 föstudagur 29. október núna ✽ Lifðu lífinu augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon og Álfrún Pálsdóttir Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is sími 512 5432 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 blogg vikunnar KLASSÍSK Leikkonan Rosario Dawson mætti í þessum klassíska kjól á opnun nýrrar verslunar hönnuð- arins Vanessu Bruno í Los Angeles. Fyrirsætublogg Tískubloggið www. fashionistablogg.blog- spot.com fjallar um allt sem viðkemur tísku. Stúlkan sem heldur úti síðunni er fyrirsæta sem lifir og hrærist í heimi tísk- unnar og skrifar um nýjustu tískustraumana, fötin sem hana dreym- ir um að eignast og ýmis- legt annað sem viðkemur tísku. Bresk fínheit Bloggið www.kayla- hadlington.blog- spot.com var valið eitt af fimmtíu skemmtilegustu nýju bloggunum í ár. Stúlkan á bak við bloggið er bresk og er hennar helsti veikleiki skyrtur og blússur í öllum stærðum, litum og gerðum. Hún kaupir helst notuð föt því hún segir verðlag í tísku- verslunum vera hreinan þjófnað. Stúlkan er fínn penni og gaman er að lesa færslur hennar. Óskiljanleg tíska Www.electricdreamerr.blogspot. com er pólskt tískublogg og því óskiljanlegt öllum nema þeim sem tala það tungumál. Myndirnar sem fylgja blogginu eru þó afskap- lega skemmtilegar og gaman er að skoða þær, þrátt fyrir tungumála- örðugleika. HATTAR FYRIR ALLA Hattar eru meðal þeirra tískustrauma sem koma sterkir inn í vetur. Hattar eru skemmtileg viðbót fylgihlutatískunnar í vetur. Þessi fæst í Nostalgíu og kostar 7.900 kr. Nýtt vídeóverk gjörn- ingahópsins Weird Girls var sýnt á lista- hátíðinni Edinburgh‘s Hidden Door festi- val um síðustu helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir hóp- inn er sýnt á erlendri grundu. Að sögn Kitty Von Sometime, sem fer fyrir hópnum, var mik- ill heiður að fá að sýna á hátíðinni því mik- ill fjöldi listamanna hafði sótt um þátttöku en aðeins fáir kom- ist að. Í verkinu sem sýnt var á hátíðinni sjást stúlkurnar ganga um skóglendi klædd- ar engu nema blóma- kransi sem þær bera á höfði sér og undir ómar tónlist eftir Ólaf Arnalds. „Við frétt- um mjög seint af því að við höfðum feng- ið inn á hátíðina og þess vegna gátum við ekki verið viðstadd- ar. Klippari verksins býr aftur á móti í Ed- inborg og gat því sótt sýninguna. Hún sagði að þetta hefði gengið mjög vel og að gest- irnir hefðu verið mjög hrifnir af verkinu og þema þess,“ segir Kitty. Heimildarmynd var gerð um verkefnið og vinnur Kitty nú að því að fá þá mynd sýnda annaðhvort í sjón- varpi eða kvikmynda- húsum. - sm Weird Girls með verk á listahátíð í Skotlandi: Skrítnar í Edinborg Í útrás Vídeóverk eftir listahópinn Weird Girls var sýnt á listahátíð í Edinborg. Kristín og Þóra Tómasdætur skrifa bók fyrir stelpur um stelpur STELPUR FARA Í MÚTUR EINS OG STRÁKAR „Okkur systrum fannst vanta svona bók á markaðinn, svona almennilegan stelpufræð- ara um allt milli himins og jarðar,“ segir Krist- ín Tómasdóttir en hún hefur nú gefið út bók ásamt systur sinni Þóru. Bókin ber ekki flókinn titil en hún nefnist Stelpur. Bókin kemur í búðir í dag og er markhópurinn stúlk- ur frá 10 ára aldri og upp í 19 ára. „Bókin er fyrst og fremst ætluð þeim aldri en er örugglega skemmtileg og fræðandi fyrir konur á öllum aldri,“ segir Kristín en í hverj- um kafla bókarinnar, sem eru ellefu talsins, er tekið á einu málefni. Allt frá kynþroska, kyn- lífi, fjármálum og útliti að sam- böndum við vini. Í bókinni eru við- töl og reynslusögur úr ýmsum áttum sem hægt er að læra mikið af. Einn- ig eru próf og kannanir lesendum til gamans. „Það má eiginlega segja að hug- myndin hafi kviknað einn daginn við eldhúsborðið og við byrjuðum vinnuferlið í febrúar á þessu ári,“ segir Kristín en þar sem þær systur búa hvor í sínu landinu er samvinnan búin að vera örlítið snúnari en geng- ur og gerist. „Við Þóra höfum ekki látið landamærin stöðva okkur en það má kannski segja að símareikningarnir hafi verið háir um tíma,“ segir Kristín en var það eitthvað sem kom henni sjálfri á óvart við vinnslu bókarinnar? „Já, það var sko margt og mikið. Til dæmis það að stelpur fara líka í mútur á kynþroska- aldrinum eins og strákar. Ekki jafn mikið en raddir stúlkna dýpka líka töluvert. Það kom mér í opna skjöldu,“ segir hún og bætir við að kaflinn sem snerist um útlit hafi verið henni erfiður viðfangs. „Það er ekki alveg mín deild. Ég á erfitt með setja stelpum einhverjar sérstakar útlitsregl- ur. Ég var búin að skrifa eitthvað en svo las Þóra það yfir og sagði mér hreint út að þetta væri glatað og tók þar með kafl- ann í sínar hendur. Hún hefur alltaf haft meira vit á útliti en ég,“ segir Kristín létt í bragði en þær systur ætla að vera í Ey- mundsson á Skólavörðustíg milli 15-17 á morgun og spjalla um bókina. - áp Eins og að fæða barn Kristín Tómas- dóttir líkir bókaútgáfunni við fæðingu barns og hlakkar mikið til að sjá hana í hillum búðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.