Fréttablaðið - 29.10.2010, Qupperneq 81
FÖSTUDAGUR 29. október 2010 37
Leikstjóranum Christopher Nolan
hefur tekist hið ómögulega. Hann
hefur sannfært yfirmenn Warner
Bros. um að gera þriðju myndina um
Bruce Wayne og Leðurblökumann-
inn í tvívídd. Þetta þykir nokkuð
merkilegt þar sem allar stóru has-
armyndirnar í draumaverksmiðj-
unni eru gerðar í þrívídd um þess-
ar mundir. Þetta kemur fram í Los
Angeles Times. Myndin, sem hefur
verið gefið nafnið The Dark Knight
Rises, verður sumarsmellur ársins
2012 en hinar tvær Batman-mynd-
ir Nolans slógu rækilega í gegn,
Dark Knight er til að mynda í ell-
efta sæti á lista imdb.com yfir 250
bestu myndir sögunnar.
Nolan upplýsti einnig í Los Ang-
eles Times að Gátumeistarinn eða
The Riddler yrði ekki höfuðóvin-
ur Bruce Wayne í þriðju mynd-
inni. En miklar vangaveltur hafa
verið uppi um við hvern hann fær
að glíma. Hann hefur nú þegar
komið Jókernum fyrir kattarnef en
eins og blaðamenn Empire Online
benda á; þá er enginn algjörlega
farinn yfir móðuna miklu þegar
kemur að myndasögumyndum.
„Við munum nota mikið af sömu
persónunum eins og við höfum
alltaf gert og munum kynna til
leiks nýjar eins og alltaf,“ var það
eina sem Nolan var reiðubúinn að
segja.
Batman þrjú verður í tvívídd
SANNFÆRINGARKRAFTUR Nolan hefur
tekist að sannfæra Warner Bros. um að
gera næstu Batman-mynd í tvívídd.
George Lucas er af flestum álitinn
vera frumkvöðull í kvikmynda-
gerð. Það kemur því fæstum á
óvart að hann skuli vera farinn
að leggja drög að því að uppfæra
Stjörnustríðs-myndirnar sínar og
setja þær í þrívídd. Lucas á öll
réttindi sem við koma Stjörnu-
stríði og því hægur leikur fyrir
hann að gera alls kyns tilraunir
með þær myndir.
Samkvæmt Empire Online er
Lucas einnig sagður vera að íhuga
þann möguleika að uppfæra Indi-
ana Jones-myndirnar. En þar gætu
hlutirnir verið aðeins flóknari því
Lucas deilir þeim réttindum með
Steven Spielberg. Samkvæmt
Empire-vefnum er Spielberg sagð-
ur lítið spenntur fyrir þeim hug-
myndum en hann er nú á fullu við
að gera Tinna-myndina í þrívídd.
Lucas í þrívídd
ÞRÍVÍDDARKARL Georg Lucas hyggst
yfirfæra Stjörnustríðsmyndirnar yfir á
þrívíddar-formið. Og langar að gera það
sama með Indiana Jones. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Leikarinn Mel Gibson var
ekki rekinn úr myndinni The
Hangover 2. Þetta fullyrðir leik-
stjórinn Todd Phillips. Gibson
átti að leika hlutverk sem húð-
flúrari en Liam Neeson var feng-
inn í hans stað. Því var haldið
fram að aðrir leikarar myndar-
innar hefðu krafist þess að
Gibson yrði rekinn vegna per-
sónulegra vandamála hans en
Phillips vísar því á bug. „Enginn
var rekinn. Þetta er líka ógeð-
fellt hugtak. Einhver ætlaði að
gera mér greiða með því að leika
tveggja mínútna hlutverk en við
breyttum atriðinu. Enginn var
rekinn. Hann var bara að gera
okkur greiða,“ sagði hann.
Gibson var
ekki rekinn
MEL GIBSON Gibson var ekki rekinn úr
The Hangover 2 að mati Todds Phillips.
Enn einn tónlistarmaðurinn
hefur nú stigið fram og tjáð
heimsbyggðinni að hann sé skot-
inn í hinni snoppufríðu Cheryl
Cole. Corey Taylor, söngvari
þungarokkshljómsveitarinn-
ar Slipknot, segir í viðtali við
dagblaðið Daily Star að hann
hafi séð hana á hinum og þess-
um forsíðum og fundist hún afar
kynþokkafull.
„Ég hef ekki hugmynd um
hvernig hún hljómar, enda horfi
ég ekki á X-Factor. Ég þoli ekki
raunveruleikasjón-
varp,“ sagði hann
og nú er spurn-
ing hvort hann láti
verða af því að
bjóða dömunni
út.
Skotinn í
Cheryl Cole
HRIFINN AF COLE Corey Taylor í Slipknot
er smekkmaður.
SÆT Það er ekki
skrítið að þunga-
rokkarinn sé
skotinn í þessari.
Í FULLUM GANGI Í PERLUNNI
FRÁ 29. OKT. TIL 21. NÓV.
GÍFURLEGT ÚRVAL AF ÖLLUM TEGUNDUM
TÓNLISTAR, HLJÓÐBÓKA OG DVD MYNDA