Fréttablaðið - 29.10.2010, Blaðsíða 34
6 föstudagur 29. október
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n
Jóhanna Vilhjálms-
dóttir kvaddi Kast ljósið
fyrir ekki svo löngu og
íhugar nú að setjast
aftur á námsbekk og
nema náttúrulækning-
ar. Fjölskyldan, óhefð-
bundnar lækningar og
heilbrigði heillar þjóð-
ar er það sem á huga
hennar núna.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
É
g útskrifaðist með
BA-gráðu í stjórn-
málafræði frá Há-
skóla Íslands og
meðfram náminu
starfaði ég meðal annars sem
þula, sem var ágæt aukavinna.
Auk þess starfaði ég sem flug-
freyja um tíma og kynntist þar
Brynju Nordquist, eiginkonu Þór-
halls Gunnarssonar. Hann vissi
af því að ég hafði unnið sem
þula og fékk mig til að koma í
prufu fyrir sjónvarpsþáttinn Ís-
land í bítið og ég endaði á því að
stýra þeim þætti með honum,
síðar vorum við saman í Íslandi í
dag og loks í Kastljósinu. Þannig
hófst sjónvarpsferill minn eig-
inlega,“ útskýrir Jóhanna. Hún
segir áhuga sinn á hollu líferni
hafa spilað inn í þá ákvörðun
hennar að taka starfinu því hana
langaði að miðla því sem tengd-
ist forvörnum og heilsu til áhorf-
enda.
„Þessi áhugi minn á öllu sem
viðkemur heilsu hefur í raun
alltaf verið undirliggjandi, svo
hefur hann ágerst með árunum,“
segir hún og hlær. „Ég hef lengi
verið að grúska í þessu og það
hefur leitt mig á þá braut sem ég
er á í dag. Ég hef mikinn áhuga
á að fara og læra meira í kring-
um þetta, hvort sem ég fer beint
í náttúrulækningar, eða byrja á
lífefnafræðinni eða jafnvel hefð-
bundinni læknisfræði.“
Jóhanna segir þennan áhuga
vera sjálfsprottinn og að hún hafi
með aldrinum farið að velta því
fyrir sér hvort það væri eðlilegt
að flestir væru meira og minna
sjúkir á einhvern hátt. „Og svar-
ið var nei. Náttúrulegt ástand
líkamans getur ekki verið sjúkt!
Það hlýtur að vera heilbrigt. Og
líkaminn hefur yfir alveg mögn-
uðu viðgerðarkerfi að ráða sem
virðist ekki ná að sinna sínu
hlutverki vegna skorts á nær-
ingarefnum og neyslu á nær-
ingarsnauðum hitaeiningum og
unnum matvælum. Sem betur fer
eru alltaf fleiri og fleiri að verða
meðvitaðir um hve mikil áhrif
þeir geta haft á heilbrigði sitt
og valið aðrar leiðir en að taka
lyf við öllum meinum. Ég hef til
dæmis verið að rannsaka áhrif
mataræðis og hugans á krabba-
mein og niðurstöðurnar eru slá-
andi. Mataræði og friðsæll hugur
getur haft ótrúlega mikið að
segja um það hvort fólk nái bata
eða ekki. Eins finnst mér skrít-
ið hvað heilbrigðiskerfið stuðlar
lítið að forvarnastarfsemi og ein-
blínir þess í stað á viðgerðir eftir
að fólk er orðið veikt. Við höfum
nefnilega komið upp sjúkdóma-
kerfi en ekki raunverulegu heil-
brigðiskerfi,“ segir Jóhanna.
„Auðvitað geta lyf verið nauð-
synleg en þessi ofnotkun getur
ekki gengið til lengdar. Ég spyr:
Hvernig getum við bara horft
upp á heiminn verða veikari og
veikari eins og það sé eitthvað
náttúrulögmál og ætlað síðan
bara að finna ný og ný lyf. Það
er eitthvað alveg galið í þessari
heimsmynd.“
FJÖRUGT FJÖLSKYLDULÍF
Jóhanna er í sambúð með Geir
Sveinssyni, fyrrverandi landsliðs-
kappa í handbolta, og saman
reka þau stórt og fjörugt heim-
ili. Parið á saman þrjú börn en
fyrir átti Jóhanna eina dóttur og
eins átti Geir einn son frá fyrra
sambandi. „Ég átti dóttur mína
rétt rúmlega tvítug og fannst því
mikil gjöf að fá að upplifa það
að eignast barn aftur á „gamals“
aldri, orðin þroskaðri og gildin
í lífinu önnur. Maður einhvern
veginn upplifir svo miklu sterk-
ar hvað þessi sköpun er mikið
kraftaverk og það má eiginlega
segja að ég sé uppfull af þakk-
læti á hverjum degi fyrir að eiga
þessa fjölskyldu.”
Aðeins átján mánuðir eru á
milli tveggja yngstu barnanna og
þó þeim geti fylgt mikil læti og
VERÐUR ALLTAF UNG Í ANDA
Jóhanna Vilhjálmsdóttir er sátt við lífið. Hún sinnir áhugamálum sínum af mikilli ástríðu.
Nýjustu kaupin?
Veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því
en það er svona rúllukraga peysusjal.
Uppáhalds hljómsveitin?
Lenny Kravitz, Dikta, Muse, Queen, 10 CC
svo einhverjir eru nefndir.
Uppáhalds staðurinn?
Bústaðurinn okkar við Laugarvatn. Það er
bara yndislegt að komast í kyrrðina og róna
í sveitinni og hafa það kósí
með fjölskyldunni.
Helsta fyrirmyndin?
Allir sem lifa lífinu lifandi og
hafa hugrekki til að synda á
móti straumnum.
Uppáhalds bíó-
myndin?
Fer ótrúlega sjald-
an í bíó og man ekki
eftir neinni alveg í
svipinn. Uppáhalds
heimildarmyndin mín
heitir Dying to have
known og fjallar um
alveg einstaka krabba-
meinsmeðferð sem
gengur undir heitinu The
Gerson Therapy. Önnur
er Food Inc. eftir
Michael Pollan sem
enginn má láta fram
hjá sér fara.
Vinsælu blúndu
aðhaldstopparnir
komnir aftur.
Blúnda að framan
og aftan.
Litir: Svart og húðlitur
Stærðir: S–XXL
Verð aðeins
3.450 kr.
Grensásvegur 16 - sími 553 7300 - Opið mán-fös 14–19. Laugd. 12–17
SOHO / MARKET
Á FACEBOOK
„Það var mikil gjöf að fá að upplifa það að eign-
ast barn aftur á „gamals“ aldri, orðin þroskaðri
og gildin í lífinu önnur.“