Fréttablaðið - 29.10.2010, Qupperneq 67
Áskorun
Við undirrituð félagar og stuðningsfólk Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hvetjum forystu flokksins til að beita sér gegn
aðild Íslands að Evrópusambandinu og aðlögunarferli sem hefur slíka aðild að markmiði.
Á því rúma ári sem liðið er frá því naumur meirihluti Alþingis tók ákvörðun um aðildarumsókn hafa forsendur
breyst í grundvallaratriðum. Umsóknin snýst ekki lengur um að kanna hvað í boði er af hálfu ESB, eins og áður var
látið í veðri vaka, heldur er nú að hefjast flókið ferli aðlögunar að regluverki og stofnanakerfi ESB með milljarða
fjáraustri frá Brussel. Slíkar greiðslur frá Evrópusambandinu gera að engu þær vonir að hér fari fram lýðræðisleg og
hlutlæg umræða um kosti og galla aðildar.
Í öðru lagi hefur komið skýrt fram hjá stækkunarstjóra ESB að Evrópusambandið veitir ekki varanlegar undanþágur frá
meginreglum Lissabonsáttmálans, m.a. þeirri reglu að Evrópusambandið tekur sér úrslitavald til yfirráða yfir sjávarauðlindum
aðildarríkjanna. Nýleg viðbrögð Evrópusambandsins við veiðum íslenskra skipa á makríl í íslenskri lögsögu sýna áþreifanlega
hvers er að vænta ef þjóðin afsalar sér samningsrétti um veiðar úr deilistofnum í hendur ESB.
Í þriðja lagi hafa allar skoðanakannanir seinasta árið sýnt andstöðu yfirgnæfandi meirihluta kjósenda við aðild Íslands að ESB.
Áframhaldandi aðlögunarferli er því gróf ögrun við lýðræði í landinu.
Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur margítrekað andstöðu sína við ESB-aðild, m.a. fyrir seinustu alþingiskosningar. Öll
þessi atburðarás er í fullkominni andstöðu við stefnu VG og fyrirheit forystumanna flokksins. Við undirrituð gerum skýlausa
kröfu um að trúnaðarmenn VG fylgi stefnu flokksins, bæði í orði og á borði.
Andrés Rúnar Ingason nemi og formaður VG í Árborg
Anna Guðrún Þórhallsdóttir, Hvanneyri
Anna Gunnlaugsdóttir myndlistakona, Reykjavík
Anna Margrét Birgisdóttir kennari og
bókasafnsfræðingur, Breiðdalsvík
Anna Ólafsdóttir Björnsson tölvunarfræðingur, Álftanesi
Ari Matthíasson leikari og varaþingmaður, Reykjavík
Ágúst Valves Jóhannesson matreiðslunemi, Ólafsvík
Árni Bergmann rithöfundur, Reykjavík
Árni Björnsson cand mag, Reykjavík
Ásdís Bragadóttir talmeinafræðingur, Álftanesi
Ásmundur Þórarinsson skógarbóndi, Fljótsdalshéraði
Ásta Svavarsdóttir sveitarstjórnarkona, Þingeyjarsveit
Birgir Stefánsson kennari, Hafnarfirði
Bjarki Þór Grönfeldt nemi og ritari UVG í Borgarbyggð
Bjarni Harðarson bóksali og blaðafulltrúi, Selfossi
Bjarni Jónsson fiskifr. og forseti sveitarstjórnar, Sauðárkróki
Björgvin Gíslason gítarleikari, Reykjavík
Björn Vigfússon menntaskólakennari, Akureyri
Brynja B. Halldórsdóttir nemi og formaður
Ísafoldar, Reykjavík
Drengur Óla Þorsteinsson laganemi, Reykjavík
Edda Óskarsdóttir fv. framhaldsskólakennari, Hafnarfirði
Einar Ólafsson rithöfundur og bókavörður, Kópavogi
Finnur T. Hjörleifsson fv. héraðsdómari, Borgarnesi
Friðrik Dagur Arnarson kennari, Reykjavík
Garðar Mýrdal eðlisfræðingur, Reykjavík
Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikri, Berlín
Gísli Árnason rafvirkjameistari, formaður VG í Skagafirði
Guðbergur Egill Eyjólfsson bóndi, Eyjafirði
Guðbrandur Brynjúlfsson bóndi, Borgarbyggð
Guðjón Sveinsson rithöfundur, Breiðdalsvík
Guðmundur Brynjólfsson rithöfundur,
Eyrarbakka, fv. félagsmaður í VG
Guðrún Guðmundsdóttir bóndi, Húnaþingi
Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur, Reykjavík
Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi, Selfossi
Gunnar Guttormsson vélfræðingur, Reykjavík
Gunnar Pálsson bóndi, Refsstað, Vopnafirði
Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðingur, Reykjavík
Gyrðir Elíasson rithöfundur, Reykjavík
Hafsteinn Hjartarson verktaki, Kópavogi
Halldór G. Jónasson sjómaður, formaður VG Vopnafirði
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir varaþingmaður og
formaður VG í Borgarbyggð
Hannes Baldvinsson fv. síldarmatsmaður, Siglufirði
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur, Reykjavík
Helgi F. Seljan fv alþingismaður, Reykjavík
Helgi Guðjón Samúelsson
byggingarverkfræðingur, Reykjavík
Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari, Reykjavík
Hjalti Kristgeirsson fv. ritstjóri, Hafnarfirði
Hjálmdís Hafsteinsdóttir félagsliði, Reykjavík
Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur, Reykjavík
Hjörtur Gunnarsson kennari, Hafnarfirði
Hrafnkell Lárusson héraðsskjalavörður, Egilsstöðum
Ingibjörg Daníelsdóttir kennari og
sveitarstjórnarmaður VG í Borgarbyggð
Ingibjörg Hjartardóttir rithöfundur, Svarfaðardal
Ingunn Snædal kennari, Fljótsdalshéraði
Ingvar Hallgrímsson mag scient, Reykjavík
Jóhanna Aradóttir umsjónarmaður, Álftanesi
Jónsteinn Haraldsson fv. bóksali, Reykjavík
Júlíana Garðarsdóttir, Reykjavík
Karl Tómasson forseti bæjarstjórnar, Mosfellsbæ
Karólína Einarsdóttir kennari, Kópavogi
Kjartan Ágústsson bóndi og formaður
kjördæmisráðs VG á Suðurlandi
Kjartan Benediktsson verkamaður, Akureyri
Kjartan Ólafsson, fv. ritstjóri, Reykjavík
Kolbeinn Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður, Akureyri
Loftur Guttormsson prófessor emeritus, Reykjavík
Magnús Stefánsson ritstjóri, Fáskrúðsfirði
Margrét Guðnadóttir veirufræðingur, Reykjavík
Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur, Reykjavík
Margrét Jóhannsdóttir skrifstofumaður, Reykjavík
Málmfríður Sigurðardóttir fv. þingkona, Akureyri
Njáll Sigurðsson námstjóri, Kópavogi
Ólafía Jakobsdóttir framkvæmdastjóri, Kirkjubæjarklaustri
Ólafur Gunnarsson framkvæmdastjóri, Mosfellsbæ
Ólafur Þ. Jónsson skipasmiður, Akureyri
Páll Bergþórsson veðurfræðingur, Reykjavík
Rafn Gíslason húsasmiður, Þorlákshöfn, fv. VG félagi
Ragnar Arnalds rithöfundur og fv. ráðherra, Reykjavík
Ragnar Óskarsson framhaldsskólakennari, Vestmannaeyjum
Ragnar Ragnarsson verkamaður, Kópavogi
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur,
Laugasteini, Svarfaðardal
Ragnheiður Jónasdóttir kennari, Hellu
Reynir Jónasson organisti, Reykjavík
Rúnar Sveinbjörnsson rafvirki, Reykjavík
Sigurður Flosason bifreiðastjóri, Kópavogi
Sigurlaug B. Gröndal skrifstofumaður, formaður VG í Ölfusi
Sigursveinn Magnússon skólastjóri, Reykjavík
Snjólaug Guðmundsdóttir textíllistakona, Borgarbyggð
Sólveig Anna Jónsdóttir leikskólaliði, Reykjavík
Sólveig Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur, Reykjavík
Steinarr Bjarni Guðmundsson verkamaður,
Höfn í Hornafirði
Svanur Jóhannesson bókbindari, Hveragerði
Sveinn Ragnarsson sveitarstjórnarmaður, Reykhólasveit
Sædís Ósk Harðardóttir kennari, Eyrarbakka,
fv. formaður VG í Árborg
Telma Magnúsdóttir bankastarfsmaður og
varaþingmaður VG, Húnaþingi
Trausti Aðalsteinsson sveitarstjórnarmaður, Húsavík
Tryggvi Guðmundsson skrifstofustjóri, Dalvík
Unnsteinn Kristinn Hermannsson bóndi, Dölum
Valgeir Sigurðsson fyrrv. blaðamaður, Kópavogi
Þorleifur Gunnlaugsson varaborgarfulltrúi VG, Reykjavík
Þorsteinn Bergsson bóndi, Fljótsdalshéraði
Þorsteinn Ólafsson dýralæknir, Selfossi
Þorvaldur Örn Árnason líffræðingur, Vogum
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir nemi og formaður
UVG í Borgarbyggð
Þórarinn Magnússon bóndi, Frostastöðum,
Akrahreppi, Skagafirði
Þórður Guðmundsson bóndi, Brautartungu,
Stokkseyrarhreppi