Fréttablaðið - 29.10.2010, Blaðsíða 56
8 föstudagur 29. október
Í slenskir hönnuðir hafa verið að sækja í sig veðrið undanfarið og þykir íslensk hönnun orðin merki um gæði. Það er skemmtilegt að rölta í gegnum miðbæ Reykjavíkur og reka nefið inn í allar þær fallegu hönnunarbúðir sem
þar eru. Föstudagur náði tali af nokkrum hönnuðum og bað þá að velja sína uppáhaldsflík fyrir veturinn. - sm
Íslenskir hönnuðir velja uppáhaldsflíkina sína fyrir veturinn:
FLOTT HÖNNUN
Una Hlín Kristjánsdóttir, Royal
Extreme.
Af hverju varð þessi flík fyrir valinu? Því hún fangar anda
Royal Extreme. Kápan er mjög tignarleg og fær mann til að
líða eins og drottningu.
Hvað álítur þú vera lykilhluti í vetrartískunni? Frá Royal Ex-
treme eru það án efa fléttusokkarnir og fléttusokkabuxurnar,
tölvutöskurnar og síðast en ekki síst kápurnar.
Unnur Edda, Emami.
Af hverju varð þessi flík fyrir valinu? Þetta er bara svo æðisleg flík,
það er hægt að nota hana á marga vegu, til dæmis má nota hana
sem jólakjól eða sem slá yfir hversdagslegri fatnað.
Hvað álítur þú vera lykilhluti í vetrartískunni? Að klæða sig eftir
veðri er mjög mikilvægt að mínu mati. En auðvitað vill maður líka líta
vel út og því er ég mjög ánægð með alla ullina og loðfeldina sem
eru að koma sterk inn þennan vetur.
Mundi, hannar undir eigin nafni.
Af hverju varð þessi flík fyrir valinu? Af því ég elska galla.
Hvað álítur þú vera lykilhluti í vetrartískunni? Að passa upp á að láta myrkrið
ekki drepa niður litagleðina.
Birta Björnsdóttir, Júniform.
Af hverju varð
þessi flík fyrir val-
inu? Þessi flík er úr
silki og efnið alveg
óhemju fagurt, lit-
irnir upplífgandi í
haustinu og svo
eru nú að koma
jól og er þetta til-
valinn jólakjóll.
Hvað álítur þú
vera lykilhluti í
vetrartískunni?
Allavega mynst-
ur, stórmynstrað-
ar lausar peys-
ur, mynstrað-
ar buxur, síð
pils, stuttbuxur,
háir hlýir sokk-
ar, skrautlegar
sokkabuxur, skór
með fylltum botni,
leður, rúskinn,
feldir, dýramynstur
og svo bara sítt …
sítt …sítt.
Gunnar Hilmarsson
og Kolla, Andersen &
Lauth.
Af hverju varð þessi flík fyrir valinu? Hún
sameinar það sem við elskum að gera,
þetta er rómantísk, kvenleg og
tímalaus flík sem gerð er í hönd-
unum, pallíettu fyrir pallíettu.
Í ekta Andersen & Lauth lit,
sem er brúnbleikur litur með
gylltum undirtón. Í henni má
einnig finna samspil mis-
munandi lita af pallíettum og
„tulle“.
Hvað álítið þið vera lykilhluti
í vetrartískunni? Að blanda
saman grófum og fínum flíkum,
óhrædd og sjálfsörugg.
Erna Steina Guðmundsdóttir,
ELM.
Af hverju varð þessi flík fyrir valinu? Það var úr vöndu
að ráða þar sem við erum þrír hönnuðirnir, þannig að
flíkurnar urðu þrjár, eða eftirlætisflíkur mínar frá okkur
öllum!
Hvað álítur þú vera lykilhluti í vetrartískunni? Góðar
leggings og stór góð peysa, og svo auðvitað flottur
kjóll!!
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALLA DAGA FRÁ
YNGVI 13 – 17
TOPPNÁUNGI
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA