Fréttablaðið - 29.10.2010, Page 40

Fréttablaðið - 29.10.2010, Page 40
Þeir eru upptökustjórar og tón- listarmenn en umfram allt bræður. Þrír mánuðir eru liðnir síðan Börkur Hrafn og Daði Birgissynir tóku við sem „útibússtjórar“ í Stúdíó Sýrlandi í Skúlatúni. Það er eitt af þremur hljóðverum Sýrlands og er í eigu Þóris Jóhannssonar og Sveins Kjart- anssonar. Þeir bræður sjá um dag- legan rekstur hljóðversins og hafa í nógu að snúast, enda er Sýrland eitt rótgrónasta og flottasta hljóðver landsins. Þeir stofnuðu fönksveitina Jagúar á sínum tíma og spiluðu með henni í mörg ár en núna fer mestur þeirra tími í að taka upp fyrir aðra tónlist- armenn. Börkur er þó gítarleikari í hljómsveit Jónasar Sigurðssonar, Ritvélar framtíðarinnar, sem sendi einmitt frá sér sína aðra plötu á dögunum. Bræðurnir eiga fyrirtækið Benzín Music og ráku hljóðver í sjö ár á Eiðistorgi áður en þeir færðu sig yfir í Sýrland. „Það var töluvert lakari aðstaða en við sniðum okkur stakk eftir vexti,“ segir Daði um gamla hljóðverið. „Í gamla daga byrjuðu menn sem aðstoðarmenn eða upp- vaskarar í stóru hljóðverunum, unnu sig upp og tóku kannski við. Þetta er kannski nýja leiðin. Menn eru í smærri starfsaðstöðu og gera verk- efni fyrir kannski minni listamenn en svo stækka verkefnin. Þetta er bara eðlilegt framhald af því. Það er frábært að vera kominn í svona heimsklassa aðstöðu.“ Þessa dagana eru Börkur Hrafn og Daði að taka upp í Sýrlandi nýjar plötur með Bubba Morthens og Páli Rósinkrans. Þeir hafa áður unnið með stórum nöfn- um á borð við Pál Óskar, Ragnheiði Gröndal og Stefán Hilmarsson. Þeir eru því orðnir reynslumiklir í íslenska upptökubransanum. Bræðurnir eru umvafðir græjum allan ársins hring og hafa því frá nógu að segja í þeim efnum. Eins og gefur að skilja eru þeir báðir forfallnir græjukarlar. „Ef það er eitthvað sem stendur eftir um mánaðamótin er maður farinn í græjukaup. Þetta er algjör sjúkleiki,“ segir Daði. Hann er mikill hljómborðsáhugamaður og sankar að sér slíkum hljóðfærum af miklum móð. „Ástæðan fyrir því er að mér finnst ekki enn þá búið að ná þessum hljómi inn í þennan stafræna heim. Það er alltaf einhver kraftur og aukakjöt í þessum alvöru, gömlu hljóðfærum.“ Einn magnari er í sérlegu uppá- haldi hjá Berki Hrafni. „Það er 1963 Blackface Fender-magnari. Hann hefur verið á sviði með Miles Davis. Það var gítarleikari sem spilaði með honum í eitt ár sem notaði þennan magnara. Hann var svo rekinn reynd- ar,“ segir hann. Þeir bræður hafa nánast eingöngu keypt sér græjur á netinu. „Nema menn séu heppnir og einhver er á leiðinni að losa sig við græju og hringir í mann. Ég hef heyrt sögur um að menn fái heimsklassa græjur fyrir ekki neitt en ég hef ekki verið það heppinn sjálfur. Ef einhverjir vilja losa sig við græjur geta þeir alveg haft samband við okkur,“ segir Daði og hlær. freyr@frettabladid.is POPPGÚRÚ: BRÆÐURNIR BÖRKUR OG DAÐI REKA STÚDÍÓ SÝRLAND Í STÚDÍÓ SÝRLANDI Bræðurnir Daði og Börkur, upptökustjórar í Stúdíó Sýrlandi. Þeir hafa alla tíð verið forfallnir græjukarlar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GRÆJUR Í UPPÁHALDI DAÐI: COLES-HLJÓÐNEMI „Ég er með mikið hljóð- nemablæti. Þetta er afmælisút- gáfa af Coles 4038, sem eru hljóðnemar sem BBC hefur notað við sína vinnu í gegnum árin.“ TELETRONIX LA-2A- HLJÓÐÞJAPPARI „Hann bætir hljóðið og jafnar það út ef það er óstöðugt. Hann bætir aukaáferð á hljóminn sem má líkja við silki eða rjóma.“ VOCODER-HLJÓÐGERVILL „Ég er ofboðslega hrifinn af þessum. Þetta er Roland VP 330 Vocoder sem er frá áttunda áratugnum og getur breytt röddinni í upptökum.“ BÖRKUR: FENDER, HOFNER OG RED WING „Hvítur Fender Stratocaster „Jimi Hendrix“ 1963 „re- issue“. Þetta er aðalgítarinn minn. Svo er það Red Wing- magnari smíðaður á Íslandi sem ég er með í láni og verð- ur á sviði með Páli Óskari og Sinfó um þarnæstu helgi. Nýjasta græjan er síðan Hofner „New President“ gítar sem ég var að fjárfesta í. OVERDRIVE „Þetta er Boss Overdrive sem ég fékk lánað hjá Stefáni Má vini mínum. Mun senni- lega aldrei skila því. Þarna er líka Fuss Probe effect frá Tónastöðinni. Maður setur hann í gang og þú veist ekkert hvað þú færð út. Sjúk græja.“ FORFALLNIR GRÆJUKARLAR Í HEIMSKLASSA HLJÓÐVERI 6 • GRÆJUR E I N S T Ö K G Æ Ð I ÓTRÚLEGT VERÐ HLJÓM GÆÐI Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.