Morgunn - 01.06.1926, Qupperneq 24
18
MORGUNN
heyra. Fundir, sem hann hélt meö Mr. Peters, reyndust lion-
nm lítilsviröi, en neitar þó ekki, að Mr. P. muni liafa miðils-
hœfileilía. Eins og vonlejít sé, iiljóti miölar að vera misjafn-
lega fyrirkaHaSir eins og abrir menn. Erfitt hljóti það að
vera fyrir atvinnumiðla að vera altaf tilbúnir, livenær sem
kallað sé á þá. Auðvitað sé sjálfsagt, að miðlar taki borgun
fyrir störf sín eins og aðrir menn, en umfram alla muni megi
þeir ekki vera að þvinga fram neina krafta hjá sér, þegar
þeir séu illa fyrirkallaðir.
Þaö hafði nú verið ákveðið, að Mr. Wyclcoff kæmi frá
Ameríku og hefði með sér miðilinn Mr. Valiantinc. En
skömmu áöur en Mr. W. leggur af stað, sendir hann skeyti
til Mr. Bradley og kveðst hafa reynt Yaliantine að vísvitandi
svikum, og muni hann því ekki taka hann með.
Menn geta gert sér í hugarlund, livílík áhrif alt þetta.
hafði á Mr. Bradley, sem er alt að því hálfnaður með bók,
sem hann er að rita um Jiina merkilegu reynslu sína um sam-
bandið við andaheiminn — bók sem á að heita ,,Upp til
stjarnanna“ og á að vekja atliyg-li um allan heiminn! — —
Nú fékk hann fyrst og fremst sjálfur að reyna hvað ,,hinn
mikli guð trúarinnar“ má vara sig á liinum „litla djöfli ef-
ans“, enda var hann ekki í neinum vafa um það þá, að í vit-
und lesenda sinna yrði „djöfsi“ yfirsterkari, þegar kæmi að
svikum Yaliantines. — Efanum hjá sjálfum sér tókst lionum
fljótt að eyða, þegar hann rendi huganum yfir það sem
raunveruiega hafði gerst á fundunum í Ameríku. Svo magn-
aður svikari, sem Yaliantine annars lcynni að vera, þá var
það áreiðanlegt, að þar iiafði hann ekki getað beitt brögðum.
Einnig Auxr lionum nokkur lmggun að reynslu, sem liann
hafði fengið með fjórða enska miðlinum, sem eg nefndi: frú
Leonard. Þar haföi komið í samband maður fyrir slvömmu
látinn, sem var bróðir konu Mr. Bradley’s og nákunnugur
honum sjálfum. Ilét sá Warren Clarke, og hafði honum tek-
ist að færa sterkar sönnur á að liann væri sá, sem liann sagð-
ist vera, þótt samtalið færi mest fram með milliliðum, en ekki
beint eins og á Ameríkufundunum.