Morgunn - 01.06.1943, Qupperneq 21
MORGUNN
15
reyndina að ræða og þegar miðillinn svífur sjálfur í lausu
lofti og stendur á öxlum fundarmanna, án þess hann verði
var nokkurs þunga af miðlinum.
Það, sem hér er birt, er vitanlega ekki annað en ágrip
af því, sem skýrslurnar segja. Miðilsgáfa Webbers virðist
hafa verið enn að þroskast og miklir möguleikar fyrir
hendi, þegar hann var skyndilega kallaður frá sínu merki-
lega starfi, að eins 38 ára að aldri.
Þau fyrirbrigði, sem hér er sagt frá, og önnur hafa
hundruð karla og kvenna athugað, m. a. margir blaða-
menn, algerlega vantrúaðir og fyrir fram sannfærðir um,
að þeim mundi veitast auðvelt að afhjúpa þarna svik og
pretti eða botnlausan hégóma. Ekki einn af blaðamönn-
unum sýnist hafa borið brigður á miðilsgáfur Webbers
eftir að hafa sótt fund eða fundi hjá honum, en þeir hafa
talað hástöfum um undrun sína og hafa sumir þeirra
skrifað langar og sanngjarnar fundargerðir fyrir blöð
sín. Slíkar fundargerðir væri óþarfi að birta hér, því að
þær yrðu ekki annað en endurtekning á því, sem hér er
þegar sagt, en ummæli tveggja þekktra blaðamanna á
Englandi langar mig að láta yður sjá.
1.
Frásögnin, sem hér fer eftir, var birt á mjög áberandi
stað í enska stórblaðinu DAILY MIRROR, 28. febr. 1939.
Sá, sem greinina ritaði, nefnir sig blaðamannsnafninu
„Cassandra". Hann skrifar fyrir blað sitt daglegt yfirlit
um almenn efni og er alþekktur hjá enskum blaðalesend-
um fyrir sitt beiska háð og þykir flestra blaðamanna
meinyrtastur. ,,Cassandra“ hafði notað hvert tækifæri,
sem honum hafði áður boðizt, til þess að spotta spiritism-
ann og láta í ljós ákveðna andúð sína gegn honum.
Fundurinn, sem hér um ræðir, var haldinn í norður-