Morgunn - 01.06.1943, Qupperneq 41
MORGUNN
35
„Athugaðu leiðina, sem hann fór, þegar hann fór að
heiman í síðasta sinni“.
„Ég sé stórar byggingar, nokkur hús — breið trjágöng
liggja heim að þessum húsum. Maðurinn kemur frá þess-
um húsum. Hann fer mjóa götu, sem liggur niður á við
— hann gengur eftir henni og kemur að tjörn — heldur
beint áfram — gengur fram hjá öðrum húsum, beygir ör-
lítið til vinstri handar, hann sér runna og mörg tré fram
undan sér — frá götunni, sem hann gengur, sést víðáttu-
mikið landslag. Hann fer fram hjá litlu húsi. Þarna er
girðing og þar mætast þrjár götur — hann fer götuna til
vinstri handar, gengur eftir henni og fer þangað eftir
mjórri götu, sem er næst minnsta húsinu af þeim litlu.
Við þessa vinstri handar götu er verkfæraskýli, smá-
kofi, og rétt hjá því er bingur af höggnum viði, vinnu-
staður skógarhöggsmannsins. Milli þess og hússins við
gatnamótin er skóglaus blettur. Gamli maðurinn fór eftir
mjórri götu, sem liggur út frá aðalgötunni — hann er há-
aldraður — andlitið er gáfulegt, orðið hrukkótt mjög —
hvítir blettir í hárinu — vörin slapandi — hann fór ekki
langt inn í skóginn — hann kennir lasleika, varpar sér
niður — sofnar — og deyr.
Kofinn er ekki langt frá þeim stað, þar sem hann ligg-
ur,. trén skyggja á hann — til þess að finna líkið verður
að fara eftir götunni — líkið finnst bráðum“.
Það, sem sagt var á þessum fundi, staðfestir það, er
frúin hafði að segja á fyrsta fundinum, en í ýmsum
smærri atriðum er lýsingin af götunni, sem hann fór,
þegar hann vék út af aðalgötunni, öllu nákvæmari. En þar
sem gangvegur þessi var ekki greinanlegur á uppdráttum
þeim, er Galloy hafði við hendina, taldi hann þýðingar-
laust að spyrja frekar um þetta. Því miður, því að þegar
lík hans fannst kom í ljós, að götur þær, sem frúin lýsir,
voru þarna til og lá önnur til hægri, en hin til vinstri út
frá aðalbrautinni, frá sama stað. Staðhæfing frúarinnar
um steinana kom að engu haldi, enginn þar kannaðist við
3*