Morgunn - 01.06.1943, Side 71
MORGUNN
65
eigin reynsiu sinni milliliðalaust, þeir eru fæstir, því að enda þótt
margir muni hafa nægilega sálræna hæfileika til að ná merkilegum
árangri, eru þeir tiltölulega fáir, sem hafa þrautseigju til þess að
þjálfa svo hæfileika sína, sem nauðsynlegt er til að ná fyllilega
sannfærandi árangri.
MORGUNN mundi taka með ánægju frásögnum íslenzkra manna
um þetta efni og þeim til hliðsjónar, sem birta vildu slíka greinar-
gerð, flytur hann að þessu sinni grein eftir enskan merkismann og
allkunnan rithöfund um sálræn efni, Ernest W. Oaten að nafni.
ÞýS.
Rannsókn sálrænna fyrirbrigða er mikið vandaverk, og
sálrænar gáfur eru f jölbreytilegar. Um margra ára skeið
hefi ég fengizt við rannsóknir á allskonar miðlafyrirbrigð-
um og ég hygg, að mörg þeirra hafi mér gefizt tækifæri
til að rannsaka við hin beztu skilyrði. Ég vil nefna það
sem dæmi, að ég hefi athugað líkamningafyrirbrigði í al-
björtu dagsljósi og einu sinni séð við þau skilyrði þrjár
líkamaðar verur samtímis. Ég hefi ekki að eins séð þessa
gesti líkamast, heldur einnig getað gengið úr skugga um
að þær voru sjálfstæðir einstaklingar, óháðir miðlinum
og fundarmönnum. 1 því sambandi minnist ég einkum
eins slíks fundar. Yið vorum fimm karlmenn saman, en
verurnar, sem líkömuðust, voru kvenmenn.
Ég er fullkomlega sannfærður um, að sálrænar gáfur
eru almennar. Fyrir löngu síðan komst ég að þeirri niður-
stöðu, að 60 af hverju hundraði sálrænna fyrirbrigða er
hægt að skýra — ekki sanna — án þess að aðhyllast stað-
hæfing spiritistanna um að þau stafi frá framliðnu fólki.
Um 20 af hverju hundraði fyrirbrigðanna verður það
sannað, að þeim valdi utan að komandi vitsmunaverur,
en um hin tuttugu af hundraði fullyrði ég, að þau verði á
engan annan hátt skýrð en sem ótvíræð andastarfsemi.
Að búast við að öll fyrirbrigðin séu ótvíræð og sannfær-
andi, er of mikil bjartsýni. Til þess að vera óyggjandi
viss um, hvar maður stendur, verður síðan að rannsaka
fyrirbrigðin ítarlega og flokka þau niður. Ég ætla nú að
nefna fáein dæmi sannana, sem ég tel alveg tvímælalausar.
5