Morgunn


Morgunn - 01.06.1943, Side 75

Morgunn - 01.06.1943, Side 75
MORGUNN 69 mér svarað. Ég fór þá rakleiðis til að biðja um nokkurra daga leyfi frá störfum, og gaf að eins þá skýring, að ég þyrfti að gegna þýðingarmiklu erindi. Ég fór til Bristol og náði í fyrstu lestina, en hafði samt enga minnstu hug- mynd um, hvers vegna ég væri að fara þetta. Þegar ég kom til Portsmouth, fór ég rakleiðis til gamla vinar míns, hr. Witts. Hann rak upp stór augu, þegar ég birtist í dyr- unum, og sagði: „Guði sé lof, hver sendi þig hingað?“ „Hvað er að?“ spurði ég. „Það á að halda áríðandi fund, ég er viss um að félagið okkar er að klofna í þrennt. Þú skalt ekki koma í fundarsalinn fyrr en fundurinn er byrj- aður“. Ég þarf ekki að segja þessa sögu lengri. Það varð ekki af neinum klofningi í félaginu og starfið í kirkjunni hélt áfram í fullum friði og með fullum samhug allra. En það er því að þakka, að ég kom óvænt til þeirra á mikil- vægu augnabliki. Ég treysti mér ekki til að skýra þetta öðru vísi en sem andaleiðsögn, að þeir hafi getað gripið inn í rás viðburðanna til að afstýra vandræðum. ] Ég hefi nú verið starfandi í spiritistahreyfingunni í 50 ár. Rannsóknir mínar hóf ég í febrúar 1892, er ég komst í kynni við fólk, sem rak tilraunir heima hjá sér. Aðal mað- urinn hét Billingsley. Hann hafði þá nýlega kynnzt spirit- ismanum, var slátrari, kjötsali, og lifði við mjög lítil efni. Við notuðum borð við tilraunirnar. Fólk hlær stundum að borðhöggunum, en það er svo um mig enn í dag, að ef mig vantar nöfn, heimilisföng eða önnur slík atriði, gef- ar borðið mér jafnan betri svör en bráðlifandi miðill. Með þessu fólki sat ég að tilraununum hvert miðvikudagskvöld. Flestar orðsendingarnar komu í gegn um borðið. Frú Bill- ingsley tókst að þjálfa með sér ágætar gáfur til skyggni og hlutskyggni. Þegar fór að bera á skyggni hennar fór hún að verða vör við svip af manni, sem oft sýndist vera á ferðinni í húsinu. Því næst fór hún að sjá manninn og loks fengum við hann að borðinu og hann vai'ð okkur þar til all mikilla erfiðleika. Hann var ákveðinn í að koma ein- hverjum skilaboðum til okkar, en hann hafði bersýnilega
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.