Morgunn


Morgunn - 01.06.1943, Page 91

Morgunn - 01.06.1943, Page 91
MORGUNN 85 Nú varð mikið missætti milli fundarmanna. Féll grunur á eftir- litsmanninn, Houdini, að hann hefði haft svik í frammi . . . Eftir þenna fund gaf Houdini út ritling og kvað öll fyrirbrigðin á fund- um frúarinnar byggð á vísvitandi svikum. Þóttist hann á hverjum fundi hafa orðið var við einhverjar svikatilraunir. Og nú hófst hin harðasta blaðadeila út af málinu, sem allir nefndarmenn tóku þátt í. Voi'u einkum þeir dr. Carrington og mr. Bird óblíðir í garð Hou- dinis“. Mér finnst það ekki fjarri, til þess að dæma þetta mál, að líta á aðstöðumun þeirra sjónhverfingamannsins og- frú Crandon „Marge- ry“. Hann var stórauðugur maður af því að leika sjónhverfingar sínai', og fyrir hann var mikið í húfi, vegna yfirlýsinga, sem hann hafði áður gefið, að svik sönnuðust á miðilinn. Hún fórnaði aftur á móti stórfé árum saman til þess, sem hún vissi göfugast í heimi: þjónustuna við sannleikann. En svo er lygin lífseig, að enn liggur þessi menntaða, glæsilega og göfug'a kona undir þeim áburði, að hafa haft svik í frammi í því máli, sem var henni og manni hennar, prófessor Crandon, heilagt mál, vegna þess að þar var urn mikils- verðan sannleik að tefla. Sannleikurinn þolir að bíða ósigur um stund, en hann sigrar að lokum, og svo er nú komið, að sjálfur Houdini, sem fyrir nokkurum árum er látinn, hefir komið í miðilssamband og sannað sig með þeim hætti, að koma orðréttu í gegn skeyti, sem hann hafði áður en hann andaðist bundið fastmælum við konu sína, en engum öðrum var kunnugt. Það er ekki ósennilegt, að „Margery" hafi þótt það kaldhæðni örlaganna, að frú Houdini skuli nú vera margrengd af þeim, sem eru álíka ósanngjarnir í hennar garð og látins manns hennar og' Houdini var áður í garð „Margery". Einn af þeim mönnum hefir skrifað greinina, sem „Úrval“ birti í vetur, einn af þeim, sem ekki vilja sjá sannleikann eða viðurkenna, en það væri óneitanlega viðkunnanlegra og meiri kurteisisvottur við íslenzka lesendur, að vanda betur val þeirra manna, sem þýða á eftir, og þá ekki sízt fyrir tímarit, sem nefnir sig „Úrval“. Greinai'gerðina, sem hér fer á eftir, sendi séra Kristinn Daníels- son ritstjóra „Úrvals“, en fékk hana endursenda, fékk hana ekki birta, en vegna þess, að ekki er óhugsandi, að einhverjir lesenda MORGUNS kunni að hafa lesið „Úrvals“-greinina, er hið endur- senda svar séra Kristins birt hér.1) Ritstj. 1) í síðasta hefti „Úrvals“, sem kom út eftir að þessi grein fór í pressuna, gerir ritstjórnin raunar nokkra bragarbót, og þó ekki fullnægjandi, svo að MORGUNN birtir greinargerð séra Kristins Daníelssonar engu að síður, Ritstj.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.