Morgunn


Morgunn - 01.06.1943, Síða 94

Morgunn - 01.06.1943, Síða 94
88 MORGUNN gamla konan andaðist, og að ef þetta skeyti hefði borizt Houdini í lifanda lífi hér í heimi, mundi það hafa gjör- breytt ferli hans. Seinna skeytið var frá honum sjálfum, látnum, til konu hans. Það var á nokkuð flóknu dulmáli, en í því var orðrétt orðsending, sem þeim hjónum hafði komið saman um að hann reyndi að senda henni, ef hann dæi á undan henni, og engum var öðrum kunnugt um. Frá því í nóvember 1928 komu dulmálsorðin smám saman á 8 fundum hjá Ford, og síðast 8. jan. 1929 kom allt skeytið í réttri orðaröð. Daginn eftir, 9. jan., undirritaði frúin eigin hendi svo hljóðandi yfirlýsing, sem víða hefir verið birt: „New-York City, 9. jan. 1929. Hvað sem nokkur kann að staðhæfa í gagnstæða átt, óska ég að lýsa yfir, að skeyti það, sem allt saman og í hinni ákveðnu orðaröð, sem ég hefi fengið í gegn um Arthur Ford, er hið rétta skeyti, sem fyrir fram var samkomulag um milli hr. Hou- dinis og mín. Beatrice Houdini. Vottar: H. R. Zander.' (Blaðamaður frá „United Press“.) Minnie Chester. (Aldavinkona frúarinnar.) J. W. Stafford. (Meðritstjóri „Scienfific American“.)“ Þessa yfirlýsing, sem í ýmsum ritum er til myndprent- uð, áréttaði frú Houdini 11 dögum síðar, mjög ákveðið, í löngu bréfi til Walter Winchnell, frægs blaðamanns. Segir hún þar: „Hví skyldi ég vilja blekkja sjálfa mig?“ En það hafði verið borið á hana, að hún hefði sagt miðlinum Ford skeytið fyrir fram. Bréfið endar þannig: „Guð og Houdini og ég veit, að ég brást ekki trausti hans til mín. Um heiminn annars ætti ég ekki að kæra mig vitund, en þó er ekki laust við það. Þess vegna þetta bréf. Fyrirgef- ið, hvað það er langt. Yðar einlæg Beatrice Houdini". Ári síðar, er borið hafði verið á hana, að hún hefði af- neitað allri trú á það, að hún gæti náð sambandi við Hou- dini, sagði hún í blaðaviðtáli við „Brookland Daily Eagle“: „Dulskeytið, sem við höfðum komið okkur saman um
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.