Morgunn - 01.12.1952, Qupperneq 12
Frá reimleikunum í Hvammi
í Þistilfirði,
útvarpserindi eftir ASalbjörn Arngrímsson, Þórshöfn.
★
Á liðnum vetri flutti höf. þetta erindi í Ríkisútvarpið, en það
vakti athygli margra. Nærfellt 30 ár eru nú liðin síðan Hvamms-
undrin gerðust og voru á allra vörum. Nokkuð hefur um þau verið
skrifað, en þessa greinargerð, sem rituð er eftir beztu heimildum og
öfgalaust, er MORGNI ánægja að geyma. Frásögn hr. Aðalbjarnar
Arngrímssonar hefur verið borin undir nokkra þeirra manna, sem
nefndir eru i frásögninni, og bera þeir henni allir hið bezta vitni og
telja höf. hafa vandað prýðisvel frásögnina, svo að ekki sé á betri
heimildum völ en þeim, sem hann styðjist við.
Vafalaust eru Hvammsundrin einhver öflugustu reimleikafyrir-
brigði, sem frásagnir geymast af hér á landi. Margt var það svipað,
sem gerðist í návist Indriða miðils, og mörg svipuð fyrirbrigði gerð-
ust á tilraunafundum í Reykjavík með danska miðlinum Einari
Nielsen haustið 1947, þegar tilraunir voru gerðar í viðurvist 30
manna til þess að framkalla svonefnd „telekinetísk" fyrirbæri, eða
dularfullar lyftingar. Meginmunurinn er sá, að þau fyrirbæri gerð-
ust í myrkri, meðan miðillinn var undir sterkri gæzlu, en Hvamms-
undrin gerðust í fullri birtu, án þess nokkuð sérstakt væri gert til
að örfa þau. Æfðum miðlum fylgja þessi fyrirbrigði árum eða ára-
tugum saman, en þessara fyrirbrigða varð ekki vart hjá Ragnheiði
í Hvammi nema stuttan tíma og endurtóku sig aldrei síðan. Þó bend-
ir ýmislegt til að hún hafi haft dulargáfur, sem fylgdu henni löngu
eftir að Hvammsundrunum lauk, en allt aðrar en þær, sem voru að
verki í Hvammi. MORGUNN er þakklátur hr. Aðalbirni Arngrímssyni
fyrir frásögn hans. — Ritstj.
Ég ætla að segja ykkur frá atburðum, sem gerðust
norður í Þistilfirði árið 1913, eða fyrir 29 árum síðan.
Atburðir þessir voru einu nafni nefndir Hvammsundrin,
og stóðu yfir um nokkurra vikna skeið.
Hvammur er austasti bær í Þistilfirði, og stendur við