Morgunn


Morgunn - 01.12.1952, Blaðsíða 71

Morgunn - 01.12.1952, Blaðsíða 71
MORGUNN 149 liðna menn, hafi sarinfært mig mest, þá væri ég ekki í neinum vafa um svarið. Og ég tel það alveg víst, að allur þorri þeirra manna, sem hafa verulega þekkingu á þessu máli, og ekki eru blindaðir af einhverjum hleypidómum, mundu svara á líka leið og ég: Það er heild fyrirbrigðanna. 1 henni er langmest sönnun fólgin. Það er blátt áfram ekkert annað en fásinna, að vera að skaka með einhver fá fyrirbrigði og fjargviðrast út af því, hve þau sanni lítið. Það má jafnvel halda uppi óendanlegum stælum um ein- stakar tegundir fyrirbrigðanna. Þegar heildin er athuguð, horfir málið á allt annan veg við.“ Á fjölmargra viturra manna dómi, sem áratugum hafa varið til rannsóknanna, byggir spíritisminn þá staðhæfing sína, að sannað sé, að látinn lifir. Vini mínum, sem ég gat um í upphafi orða minna, fannst lítið til um það starf S.R.F.I., að flytja þennan boðskap. Nokkurir kunnustu og beztu menn 19. og 20. aldarinnar hafa látið sér þetta mál í meira rúmi liggja en allt annað, og ég held, að þeir hafi réttara fyrir sér. Þess vegna boðum vér framhalds- lífið sem þekkingaratriði, og vér fáum ekki betur séð en að eina leiðin til að sannfæra mannkynið um framhalds- lífið sé sú, að boða það sem þekkingu. Það hvílir nú orðið á breiðum grundvelli. Það stendur á herðum svo margra. Eitt félag ræður hverfandi litlu um framgang þess héðan af eða hnignun. Einn miðill ræður engu um það héðan af, til eða frá, svo nokkuru verulegu nemi. Eitt tímarit ræður litlu um rás þess. Málið stendur nú orðið, eins og ég sagði, á herðum svo margra. Og öryggi vort byggist á því fyrst og fremst, að spíritisminn er þekking. En er þá þekkingin einhlít? Um margra ára skeið hef ég notið þess trausts yðar að vera kosinn forseti þessa félags. Um mörg ár hef ég því alltaf öðru hvoru staðið hér í ræðustólnum og lagt áherzlu á, hve dýrmæt sú þekking er, sem málefni vort veitir, en jafn sannfærður er ég um hitt, að til þess að mannssálin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.