Morgunn


Morgunn - 01.12.1952, Page 44

Morgunn - 01.12.1952, Page 44
122 MORGUNN mínar um þetta sýnast óneitanlega benda til þess, að vís- indalegar rannsóknir komi aðeins að haldi að vissu marki, þ. e. aðeins gagnvart hinum óæðri fyrirbrigðum sálrænnar reynslu, ef svo má að orði komast, en þær virðast ekki líklegar til að koma að tilætluðum notum, er um hin æðri og háleitari er að ræða. Ég held, að það sé engan veginn rétt að krefjast meir af vísindunum en þeim er unnt að láta í té, og ég held, að það geti heldur ekki talizt viturlegt af vorri hálfu að snúa baki við þeim leiðum öðrum, sem vér kunnum að eiga völ á að nota í viðleitninni til að reyna að leysa þær leyndardómsfullu gátur, sem blasa við í framsýn. En hverjar eru þá þessar „aðrar leiðir“? Ef vér hugs- um um veg þann, sem brautryðjendur sálarrannsóknanna mörkuðu með starfi sínu fyrr á árum, leitumst við að feta sömu slóðir með vakandi ábyrgðartilfinningu, frjáls- lyndi og víðsýni að leiðarljósi, þá komumst vér að raun um að fley vort hlýtur að berast inn í dulheima trúar- reynslunnar. Hnýsniblandin forvitni kemur hér að engu haldi, ekki heldur tortryggin gagnrýni. Meginskilyrði þess að fá öðlazt til eignar þá þekkingarvissu, sem fær orðið grundvöllur hamingju og gæfu, farsældar og öryggis í framtíð leitandans, er hið einlæga og auðmjúka hugar- far eitt, er þiggur með skilningi og samræmir lífsbreytni sína við verðmæti sannleikans án undansláttar og tilláts- semi við heimshyggjusjónarmiðin, opinberar verðmæti þeginnar fræðslu í hugsunum, orðum og breytni. Ef þetta væri almennt viðurkennt, þá væri sálarrannsóknastarfið jafnframt hafið upp í æðra veldi, og vér yrðum um leið samherjar og samverkamenn sjáenda og ljósbera mann- kynsins að fornu og nýju.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.