Morgunn - 01.06.1959, Side 14
Soffía Haraidsdóttir:
Sir Arthur Conan Doyle
Aldarminrdng.
★
Um það leyti, er Sálarrannsóknafélag íslands var
stofnað, átti spiritisminn því láni að fagna, að einn fræg-
asti og áhrifamesti rithöfundur og hugsjónamaður, sem
þá var uppi, hafði nýlega gjörzt sannur postuli hreyfing-
arinnar. Á ég þar við Sir Arthur Conan Doyle, en á þessu
ári eru 100 ár liðin frá fæðingu hans.
Aldrei hefir nokkur einn maður haft meiri áhrif til út-
breiðslu málefnisins, enda kallaði hann það sjálfur mikil-
vægasta málið í heimi. Mér er í minni, hve fagnandi
frumherjar málsins hér á landi voru yfir því, að nú
hafði bætzt svo áhrifaríkur maður í hóp þeirra mörgu
ágætu vísindamanna og andans manna, er lagt höfðu
málinu lið á undanförnum árum. Faðir minn skrifaðist
á við Conan Doyle og hitti hann persónulega, er hann
fór til Englands árið 1919. Varð faðir minn fyrir mikl-
um áhrifum af þessum sterka persónuleika.
Þetta rif jaðist allt upp fyrir mér, er ég fyrir tveim árum
las ævisögu Sir Arthurs eftir leynilögreglusagnahöfund-
inn John Dickson Carr. Ekkert er eins vel fallið til þess
að lyfta okkur upp úr drunga hversdagsleikans, eins og
að lesa um sönn andans mikiimenni. Þegar ég las þessa
bók, fannst mér ótrúlegt, að ég væri hér að lesa lýsingu
á einu mikilmenni. Maður fær vart skilið, að einn maður
hafi búið yfir svo fjölbreyttum hæfileikum og því þrelci,