Morgunn - 01.06.1959, Síða 15
MORGUNN
9
sem þurfti til þess, að þeir
fengju að njóta sín á svo
glæsilegan og blessunar-
ríkan hátt.
Ég hef furðar mig á
því, að ég hef hvergi séð
bókarinnar getið í ís-
lenzkum blöðum eða tíma-
ritum. Ég vil taka það
fram, að höfundurinn er
ekki spiritisti, en segir
hleypadómalaust frá þeim
þætti úr lífi Sir Arthurs,
er snertir baráttu hans, í
lok ævinnar, fyrir út-
breiðslu spiritismans.
Það er eðli flestra að
langa til þess að gefa
öðrum hlutdeild í hrifningu sinni. Og þess vegna langar
mig til þess að segja hér í stuttu máli frá aðalatriðunum í
þessari merku bók. Bókin er löng og er aðallega byggð
á bréfum Sir Arthurs sjálfs og greinum, er hann ritaði, og
höfundurinn er auðsjáanlega gagnkunnugur ritverkum
hans.
Sir Arthur Conan Doyle var fæddur árið 1859 og var
af merkum, írskum ættum. Faðir hans, sem var mjög-
listhneigður eins og fleiri ættmenni hans, var arkitekt,
og starfaði fyrir bæjarfélagið í Edinborg. En starfið var
illa launað og fjölskyldan stór, svo að hann bjó alltaf
við erfiðan fjárhag. Fjölskyldan var kaþólskrar trúar,
eins og flestir írar.
Arthur Conan Doyle lauk læknanámi við Edinborgar-
háskóla. Hann átti föðurbræður og aðra ættingja í Lon-
don, sem var vel stætt og áhrifamikið fólk, og vildi það
gjarnan beita áhrifum sínum til þess að hjálpa hinum
unga frænda sínum á framabrautinni. En þetta frænd-
Sir Arthur Conan Doyle