Morgunn - 01.06.1959, Síða 26
20
MORGUNN
Doyle, og þar eð hún var mjög hlédræg að eðlisfari,
langaði hana ekki til þess að flytja þessi slcilaboð, nema
að hún gæti fært rök fyrir því, að þau væru sannanlega
frá Conan Doyle sjálfum. Hún bað hann því um að gefa
sér einhverjar sannanir, sem kona hans myndi taka
gildar. Hann svaraði henni með því að segja henni upp-
hafsstafi sérhvers moðlims úr fjölskyldu sinni, sem hún
seinna sannreyndi að voru réttir. En þetta var henni ekki
nóg, og hún spurði, hvar Lady Doyle væri að finna. Þá
gaf röddin upp símanúmer en bætti við, að það væri
ekki í símaskránni; Það væri leyninúmer í sumarbústað
fjölskyldunnar í New Forest.
Nú fannst Mrs. Caird-Miller, að hér væri þó eitthvað,
sem hægt væri að fá staðfest. Hún sneri sér til símstöðv-
arinnar, sem þó neitaði að gefa svar um það, hvort
þetta væri rétta númerið, þar eð ekki mætti gefa neinar
upplýsingar um númer, sem ekki væru í símaskránni.
Mrs. Caird Miller ákvað þá að hætta á að hringja í þetta
númer og hafði brátt fengið samband við Lady Doyle.
Um þetta leyti hafði Doyle-fjölskyldan engan frið fyrir
fólki, sem kvaðst vera með skilaboð frá Conan Doyle.
Fjölskyldan hafði tekið þá afstöðu að sinna engu slíku,
nema ákveðnar sannanir hefðu komið fram um, að
það væri hinn látni postuli spiritismans, sem sendi skila-
boðin. Mrs. Caird-Miller sagði Lady Doyle, hvað komið
hefði fyrir sig, en fékk ákveðið en kurteislegt svar, að
öruggari sannanir væru nauðsynlegar, áður en hún gæti
tekið þetta trúanlegt. Þetta urðu Mrs. Caird-Miller mikil
vonbrigði, og henni fannst hún ekkert meira geta gjört
í málinu.
Fáum dögum seinna heyrði hún aftur rödd Conan
Doyles. I þetta sinn sagðist hann ætla að koma með sann-
anir, sem fjölskylda hans myndi taka gildar. Röddin
hélt áfram: „Farðu til Mrs. Deane; fáðu fund hjá henni,
og ég mun koma fram á ljósmynd“. (Mrs. Deane var ljós-
myndamiðill). Mrs. Caird-Miller gjörði þetta, fékk fund-