Morgunn - 01.06.1959, Side 36
30
MORGUNN
í gegn um brjóstið. í draumi sínum þóttist herra Willi-
ams fá einhverja vitneskju um, að myrti maðurinn væri
hr. Perceval, fjármálaráðherra. Draumurinn hafði svo
mikil áhrif á hr. Williams, að hann sagði hann þegar
konu sinni og auk hennar nokkurum vinum sínum, sem
hann hitti í Godolphin-námunni næsta dag, og hann bar
undir þá, hvort hann ætti ekki að fara rakleiðis til Lond-
on og segja frá því, hvað sig hefði dreymt. En þeir svör-
uðu honum auðvitað — og því miður má segja, vegna
þess, sem á eftir fór, — að með því myndi hann aðeins
gera sjálfan sig hlægilegan. 13. s. m., um það bil 10
dögum síðar, kom sonur hr. Williams heim frá Truro,
geystist inn í herbergið til föður síns og hrópaði: „Pabbi,
draumurinn þinn er kominn fram, hr. Perceval hefir
verið skotinn í neðri þingdeildinni". Ráðherrann og
morðinginn voru báðir klæddir nákvæmlega eins og hr.
Williams sá þá í draumum sínum.
1 frásögu brezka stórblaðsins, Times, 16 árum síðar,
var staðhæft, að hr. Williams hefði dreymt drauminn
sömu nóttina, sem morðið var framið, og hefði svo verið,
væri hér aðeins um venjulegt fjarskyggnifyrirbrigði að
ræða, en fyrir því eru sterk sönnunargögn, að draumurinn
hafi raunverulega verið spádraumur um ókominn atburð.
Fjórum árum eftir að Times birti söguna, ritaði Williams
hana sjálfur nákvæmlega eins og hún er sögð hér. Kona
hans, vinirnir, sem hann hitti í námunni daginn eftir
drauminn, ferðin, sem hann vildi fara til London, og
minningin um það, er sonur hans kom með fréttina um
morðið, allt styður það þá staðhæfing hans sjálfs, að
hann hafi dreymt drauminn tíu dögum áður en morðið
var raunverulega framið.
Hvað getum vér nú gert með þetta fyrirbrigði? Vér
getum ekki skýrt það til fulls, en nokkuru ljósi getum vér
varpað yfir það með því að athuga staðhæfingar annarra,
sem bæði hafa haft fjarskyggnihæfileika og spásagnar-
gáfu. Slíkur maður var Swedenborg, en frá hendi hans