Morgunn - 01.06.1959, Síða 37
MORGUNN
31
höfum vér engar lýsingar á því, hvernig vitranir hans
bárust honum. Nær liggur að athuga frásögur hr. Tur-
veys í Bornemouth, hins frábæra miðils. Bók hans, The
Beginnings of Seership, er ein hin merkilegasta í þess-
um efnum, sem ég þekki. Hr. Turvey er ekki aðeins
gæddur alveg frábærri miðilsgáfu og hefir það á valdi
sínu að senda eter-líkamann fvrirvaralaust í ferðalög og
segja öðrum tafarlaust, hvað fyrir hann ber á þessum
ferðalögum, heldur sá hann einnig þráfaldlega fyrir
ókomna atburði, sem hann sagði fyrir og kornu langoftast
ef ekki ævinlega fram. Lýsing hans á því, hvernig hann
skynjar þessa hluti, er frábærlega lærdómsrík, og ég
held, að hún verði sígild um þessi efni. Hann segir svo
frá:
„Stundum sé ég fyrir augum mér hreyfast áfram band,
eins og endalausa kvikmyndaræmu. Á litinn er hún mjög
daufgul og sveiflur hennar eru ákaflega örar. Á þessari
ræmu, eða bandi, er fjöldi af smámyndum. Sumar þeirra
virðast mér eins og letraðar í ræmuna sjálfa, aðrar eru
eins og daufbláar myndir, límdar á hana. Fyrri mynd-
irnar, sem eru eins og letraðar á ræmuna, sýna mér liðna
atburði, en hinar síðari birta mér fi’amtíðina. Hvar þess-
ir atburðir gerast, sé ég af landslagsmyndunum og ég
dreg það af lofthitanum, sem ég skyixja samtímis. Tíma-
setninguna ákvarða ég eftir því, hve myndirnar eru mér
skýrar“.
Ef vér heimfærum nú þessa skýrgreiningu hr. Tur-
veys upp á drauma hr. Williams, sem þó eru vitanlega
Jniklu ófullkomnari, sjáum vér, að hún varpar nokkuru
ijósi jrfir þá. Hr. Williams var ættaður fi'á Wales og
Cornwall, þar sem mikið er um sálræna hæfileika. En
vegna mikilla umsvifa í athafnalífinu hafði hann ekki
tækifæri til þess að þjálfa hæfileika sína eins og Tui’vey,
sem lifði síixu kyri-láta einkalífi, bundinix við sjúkra-
stólinn árum saman, þótt hann væri áður fyrr fi’ægur
iþx’óttamaður. Þx’átt fyrir það gátu hinir meðfæddu hæfi-