Morgunn - 01.06.1959, Qupperneq 52
46
MORGUNN
dró brottför til 1. nóvember og hugsaði mér að koma
síðan aftur til íslands cins og til að kveðja hann, — og
ég er sífelt að hugsa um hvenær það gæti orðið.
í mínum þönkum um þetta dreymir mig fyrstu nótt-
ina á skipinu, að Bjarni bróðir minn, sem lézt 1913, er
að reyna að veita mér einhver svör við spurningu minni
um, hvenær faðir minn muni deyja. Draumurinn er þung-
ur og örðugur, og ég finn að eins að Bjarni kemur til mín
þessum orðum: „Daginn eftir afmælisdaginn“. Ég vakna
við endurminninguna um samtal mitt við Sigurð skóla-
meistara og hugsa sem svo: „Eftir þessu mundi faðir
minn deyja 27. apríl 1929, — daginn eftir afmælisdag-
inn sinn“.
Annars lít ég á þetta sem draumóra og markleysu. —
Þegar hinsvegar sjúkdómur föður míns reyndist mjög
hægfara, þá skrifaði ég frá Þýzkalandi Þóreyju systur
minni drauminn, og ég fer að trúa því að dagurinn 27.
apríl gæti orðið dánardagur föður míns.
Ýmissa orsaka vegna kemst ég ekki heim til íslands,
eins og ég hafði ætlað mér, en að kvöldi 2. apríl fæ ég
símskeyti um að faðir minn hafi látizt um eftirmiðdag-
inn þann dag. Þótti mér nú ljóst, að draumur minn hefði
verið alger markleysa.
Löngu seinna sýnist mér samhengið ljóst: Bjarni bróð-
ir minn átti afmælisdag 1. apríl, og faðir minn lézt dag-
inn eftir afmælisdag Bjarna.
II. Óráðirm draumur
Að morgni þess 21. apríl 1958 dreymdi mig draum
þenna:
Mér þótti tónskáldið Beethoven vera enn á lífi og
kominn í nokkurskonar opinbera heimsókn til íslands, og
bjó hann, að því er virtist, í ráðherrabústaðnum við
Tjamargötu í Reykjavík, — en þó voru húsakynnin ólík
og miklu stærri þegar inn var komið. Fólk streymdi