Morgunn - 01.06.1959, Page 56
50
MORGUNN
nefndist Tilraunafélagið og starfaði meðan miðilsgáfu
Indriða heitins naut. En hann dó ungur úr berklum og
félagið hafði ekki sama verkefni og fyrr og var leyst
upp.
Þeir sra Haraldur og Einar Kvaran unnu ósleitilega að
því að kynna málið, með fyrirlestrum, bókum og ritgerð-
um. Æ fleiri og fleiri aðhylltust málið fyrir túlkun
þeirra, og loks rak að því, að Sálarrannsóknafélag Is-
lands var stofnað 19. des. 1918. Þá töldu menn jarðveg-
inn orðinn svo undirbúinn, að félagsstofnun væri tíma-
bær og sjálfsögð.
Áður hafði verið leitað hófanna hjá bæjarbúum um
það, hverjar undirtektir yrðu og um það bil 200 manns
gerðust stofnendur félagsins.
Stofnfundurinn var haldinn í Iðnó. Var málshefjandi
að sjálfsögðu Einar H. Kvaran, fundarstjóri var kosinn
Ólafur heitinn Björnsson ritstjóri og fundarritari Sig-
urður Lárusson, þá cand. theol. en nú sóknarprestur í
Stykkishólmi.
Frummælandi gerði grein fyrir markmiði hins vænt-
anlega félags: „að efla áhuga þjóðarinnar á andlegum
málum yfirleitt og sérstaklega fræða félagsmenn og aðra
um árangurinn af sálarlífsrannsóknum nútímans, einkum
að því leyti, sem þær benda á framhaldslíf manna eftir
dauðann og samband við framliðna menn. Þeim tilgangi
hyggst félagið að ná meðal annars með fyrirlestrum og
umræðum og útgáfum rita eða stuðningi að þeim“.
Ennfremur: „Að stuðla að sálarlífsrannsóknum eftir
megni, t. d. með því að gangast fyrir því, að félagsmenn
eigi kost á að komast á sambandsfundi með góðum
miðlum, innlendum eða útlendum".
Hér cr ekki tími til að rekja hina merku ræðu frum-
mælanda, en nokkurir aðrir tóku til máls á stofnfundin-
um. Næstur tók til máls Þórður Sveinsson læknir og
flutti eldheita hvatningarræðu. Þá talaði próf. Haraldur