Morgunn


Morgunn - 01.06.1959, Page 60

Morgunn - 01.06.1959, Page 60
54 M 0 R G U N N Einari heitnum Loítssyni, Eggerti P. Briem og mér, aö gera tilraunir með Hafstein Björnsson miðil og revna að komast að raun um, hvort ekki væru fleiri hliðar á sál- rænum gáfum hans en þær, sem áður höfðu komið í Ijós. Við þrír gerðum þessar tilraunir vikulega um nokkurt skeið, og er margt til skráð frá þeim tilraunum. Ekki verður sagt, að þær leiddu neitt nýtt í ljós. Og tilraunir okkar í þá áttina, að fá sterkari sannanir eða sönnunar- gögn fyrir framhaldslífi, báru ekki árangur. Að mínu viti báru þessar tilraunir, eða árangur þeirra, vott um tele- pathie, fjarhrif, hugsunarflutning, á mjög háu stigi, en heldur ekki meira. Eg held, að þá þjónustu við málefnið, sem félag vort er helgað, verðum vér eftir föngum að leitast við að rækja á þann hátt, að fáeinum mönnum sé falið að gera raunverulegar tilraunir með erlenda eða innlenda miðla, og birta síðan almenningi niðurstöður þeirra tilrauna, hverjar sem þær kunna að verða, jákvæðar eða nei- kvæðar. Vér lítum um öxl yfir 40 ára starf. Vér minnumst með þakklæti þeirra, sem hófu starfið og lögðu stærsta skerfinn fram. Og vér teljum oss mega staðhæfa, að S. R. F. I. hafi haft áhrif, og þau ekki óveruleg, á andlegt líf íslenzku þjóðarinnar, og að sitt hvað væri þar öðru vísi en er, ef félag vort hefði ekki starfað. Hvað er framundan? Að rækja á þann hátt, sem skynsamlegastur sýnist, þá skyldu, sem félagið er bundið frá byrjun, að sjá um, að allir, sem vilja, eiga þess kost í landinu, að kynnast sál- arrannsóknamálinu og því, sem annarsstaðar, í öðrum löndum, gerist á þeim vettvangi. Og sérstaklega, að halda á lofti því, sem verða má til þess að styrkja sannfær- ingu manna um það, að látinn lifir, þótt líkaminn deyi. Á vegum sálarrannsóknanna og spíritismans hefir ótelj- andi fjöldi manna fundið þá sannfæringu. Og það er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.