Fréttablaðið - 09.11.2010, Blaðsíða 10
10 9. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
JAFNRÉTTISMÁL Þrátt fyrir nýbirta
skýrslu þar sem fram kemur að
jafnrétti kynjanna sé meira hér
á landi en annars staðar virðist
viðhorf íslenskra ungmenna vera
á skjön við það. Félagsfræðing-
ur kallar eftir aðgerðum innan
skólakerfisins.
Í nýlegri skýrslu Rannsókna &
greiningar fyrir Norðurlandaráð,
þar sem leitast var við að kanna
hagi, líðan og lífsstíl norrænna
ungmenna á aldrinum sextán til
nítján ára, kemur fram að við-
horf íslenskra ungmenna sam-
ræmist vart opinberri stefnu í
jafnréttismálum.
Til dæmis telur nær helmingur
íslenskra drengja á þessu
aldursbili að konur eigi
að vera heima með
börnum þegar þau
eru ung, og jafnvel
eru fjórtán prósent
drengja fylgjandi
því að konur eigi
alls ekki að vinna
úti.
Þegar drengir eru
spurðir hvort eigi að
ráða meiru í sambúð
manns og konu
seg ja 3 8
prósent
að það sé
maður-
inn, en
7,3 pró-
sent
stúlkna eru á þeirri
skoðun.
Þrátt fyrir allt er
mikill meirihluti beggja
kynja engu síður á þeirri
skoðun að jafnrétti eigi
að vera á milli kynjanna,
eða 88 prósent drengja og
96 prósent kvenna.
Þessi afstaða
íslenskra
ungmenna
er ekkert
einsdæmi
því að hún
er í öllum
aðal-
atriðum í samræmi við hin Norð-
urlöndin sem tóku þátt í þessari
könnun.
Andrea Hjálmsdóttir, félags-
fræðingur og lektor við félags-
vísindadeild Háskólans á Akur-
eyri, segir þessa niðurstöðu
ekki koma sér á óvart, enda sé
hún í samræmi við hennar eigin
kannanir á viðhorfum unglinga
til verkaskiptingar innan heim-
ilisins.
„Við erum með mjög gott form-
legt jafnrétti og góð lög, en okkur
hefur gengið illa að ná raunveru-
legu réttlæti, til dæmis að leið-
rétta launamun milli kynjanna.
Við tölum alltaf eins og við
höfum í raun náð jafnrétti og
það litla sem vanti upp á komi
svo sjálfkrafa með næstu kyn-
slóðum. Það er sú orðræða sem
er í gangi í samfélaginu, en allar
niðurstöður undanfarið benda
til þess að við þurfum að gera
eitthvað í málinu.“
Andrea leggur áherslu á að
þrátt fyrir að foreldrar eigi að
axla sína ábyrgð sé skólakerf-
ið lykilatriði til framfara og
þá helst að kennaranemar læri
kynjafræði til að geta svo kennt
það í skólunum.
„Við verðum að fá skólakerfið
með okkur til að fræða börn um
það hvernig samfélagið virkar í
raun og hvernig væri æskilegt að
það væri. Annars náum við ekki
fram neinum raunverulegum
breytingum.“
thorgils@frettabladid.is
Við erum með mjög
gott formlegt jafnrétti
og góð lög, en okkur hefur
gengið illa að ná raunveru-
legu réttlæti, til dæmis að
leiðrétta launamun milli
kynjanna.“
ANDREA HJÁLMSDÓTTIR
FÉLAGSFRÆÐINGUR.
Um 14% drengja telja að
konur eigi ekki að vinna úti
Rannsókn leiðir í ljós að viðhorf íslenskra ungmenna til jafnréttismála eru ekki í samræmi við opinbera
stefnu. Félagsfræðingur kallar eftir umbótum í skólakerfinu. Viðhorf breytist ekki af sjálfu sér.
TILBOÐ
Spennandi tilboð á netinu
og á N1 um land allt.
INNKAUP
Fjölbreytt vöruúrval í versl-
unum og á þjónustustöðvum.
ELDSNEYTI
Þú færð alltaf punkta
þegar þú fyllir á tankinn.
SMURNING
Þú færð betri kjör á
smurstöðvum N1.
VEITINGAR
Þú færð gómsætan bita
á N1 um allt land.
VIÐGERÐIR
Ýmiss konar viðhald fyrir
bílinn á betra verði.
DEKK
Fagmannleg hjólbarða-
þjónusta og dekkjahótel.
SKJÁREINN
Þú færð ódýrari áskrift
að SkjáEinum á N1.
„Ég fæ punkta hvort sem
ég kaupi í matinn, skipti um
dekk eða fylli á tankinn“
SVEITARSTJÓRNIR Sigurður Magnús-
son, fulltrúi Á-listans, sem situr
einn í minnihluta í bæjarstjórn
Álftaness, mótmælti á síðasta
fundi samþykkt deiliskipulags
sem felur í sér nýjan golfvöll í
sveitarfélaginu.
Í bókun Sigurðar segir að um
sé að ræða áform um að hefjast
handa við undirbúning golfvall-
ar á Norðurnesinu. Það muni
kosta tugmilljónir á sama tíma
og grunnþjónusta við íbúana sé
skorin niður.
Meirihluti D, B og L-lista bók-
aði þá að Sigurður færi með
rangt mál.
„Í þessari samþykkt er einung-
is verið að tala um deiliskipulag
svæðis en ekki framkvæmdir við
golfvöll eins og fulltrúi Á-listans
heldur svo ranglega fram,“ sögðu
fulltrúar meirihlutans. - gar
Deilt um golfvöll á Álftanesi:
Golfvöllur bara
á teikniborðinu
1700 HESTÖFL Vélin á þessu tryllitæki
er örlítið öflugri en á meðal fólksbíl.
Wayne Alleman frá Bretlandi sýndi
1700 hestafla bílinn á bílasýningu í
Essen í Þýskalandi í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Viðhorf íslenskra ungmenna til jafnréttismála
Betra er að menn taki ákvarðanir frekar en konur
Karlar og konur ættu að njóta sömu réttinda
Karlar eru betri leiðtogar en konur
Drengir
Stúlkur
20 40 60 80 100 %
14,0%
4,6%
34,2%
4,3%
87,8%
96,3%
49,2%
6,3%
Hlutfall þeirra sem eru mjög eða nokkuð sammála fullyrðingu
Konur ættu ekki að vinna úti
ANDREA HJÁLMSDÓTTIR