Fréttablaðið - 09.11.2010, Qupperneq 46
30 9. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
20
15
10
5
0
20 7 6
M
ill
jó
ni
r e
in
ta
ka
Arnaldur Indriðason hefur nú selt
næstum því sjö milljónir eintaka
af bókum sínum á heimsvísu, sam-
kvæmt upplýsingum frá útgáfu-
fyrirtæki hans hér á landi, Vöku
Helgafell. Það þýðir að hann hefur
tekið fram úr strákunum í Sigur
Rós; hefur selt fleiri eintök af
bókum sínum en fjórmenningarn-
ir hafa selt af plötum sínum. Arn-
aldur á þó langt í land með að ná
Björk Guðmundsdóttur.
Sala á bókum Arnaldar hefur
aukist jafnt og þétt síðustu ár úti
í heimi. Hann hefur til að mynda
selt rúma milljón eintaka á árun-
um 2009-2010. Sigur Rós hefur selt
plötur í rúmlega sex milljónum
eintaka samkvæmt upplýsingum
frá Kára Sturlusyni, umboðsmanni
hljómsveitarinnar hér á landi, en
Björk Guðmundsdóttur verður erf-
itt að velta úr sessi á þessum vett-
vangi; hún hefur selt í kringum 17
milljónir platna á sínum sólóferli
samkvæmt upplýsingum hjá útgef-
anda hennar hér á landi, Ásmundi
Jónssyni.
Arnaldur kom næstum af fjöll-
um þegar Fréttablaðið bar þess-
ar tölur undir hann. En ekki alveg
þó. „Ísland hefur auðvitað verið
mikið í umræðunni og það hefur
kannski smitast út í listirnar, það
er allavega mikill áhugi á bókun-
um víða um Evrópu.“ Arnaldur
er hins vegar ekki reiðubúinn til
að kvitta upp á að bankahrun og
eldgos, sem vissulega hafa vakið
athygli á Íslandi, leiki jafnstórt
hlutverk og sumir vilja meina. „Ég
veit ekki hvort gengi minna bóka í
Frakklandi og víðar er bein afleið-
ing af hruninu, maður finnur hins
vegar alltaf áhuga á íslenskum
bókum þegar maður kemur.“
Bækur Arnaldar eru orðnar fjór-
tán talsins en sú nýjasta, Furðu-
strandir, kom út 1. nóvember eins
og venja er. Þar snýr Erlendur
Sveinsson, rannsóknarlögreglu-
maðurinn skeleggi, aftur eftir að
hafa verið utan hringiðunnar í
síðustu tveimur bókum.
Arnaldur er ekki í vafa um að
Erlendur sé lykillinn að vinsæld-
unum. „Hann virðist auðþýðanleg-
ur,“ segir Arnaldur en aðeins ein
bíómynd hefur verið gerð eftir bók
Arnaldar: Mýrin í leikstjórn Balt-
asars Kormáks. Arnaldur seg-
ist hafa fengið fyrirspurnir frá
erlendum framleiðendum um að
gera sjónvarpsþætti eftir bókunum
sínum en hann segist aldrei hafa
verið spenntur fyrir slíkum tilboð-
um. „Kvikmynd eftir Grafarþögn
er næsta mál á dagskrá og vonandi
fer hún í tökur á næsta ári,“ segir
Arnaldur en það er Baltasar sem á
réttinn að henni.
freyrgigja@frettabladid.is
ARNALDUR INDRIÐASON: TEKUR FRAM ÚR SIGUR RÓS Í SÖLU
Hefur selt næstum sjö
milljónir bóka á heimsvísu
Ísland hefur auðvitað
verið mikið í umræð-
unni og það hefur kannski
smitast út í listirnar
ARNALDUR INDRIÐASON
RITHÖFUNDUR
MORGUNMATURINN
„Þessa dagana fæ ég mér alltaf
AB mjólk með púðursykri, cheer-
ios og bönunum. Og svo tek ég
alltaf lýsi.“
Ólöf Jara Skagfjörð, söng- og leikkona.
„Ég er örugglega ekki eini maðurinn sem hefur
hugsað eitthvað í þessa veru. Ég er ekki far-
inn að ljúga að sjálfum mér að þeir hafi afritað
þetta viljandi,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé,
kynningarfulltrúi BSRB.
Á laugardaginn virðist Spaugstofan hafa gert
sér mat úr bakþankapistli Kolbeins sem birtist
í Fréttablaðinu í nóvember árið 2008. Fyrirsögn
pistilsins var Skorpuþjóðin og fjallaði hann um
eðli Íslendinga, sem skilja eftir sig sviðna jörð,
telji þeir sig vera í fullum rétti. Atriði Spaugstof-
unnar snérist einnig um skorpuþjóðina og vísaði
í sömu atriði og Kolbeinn benti á í pistlinum.
„Menn eru bara að velta fyrir sér íslenskri þjóð
eftir hrun og hugsa á svipuðum nótum, ég hugsa
þetta sé ekki flóknara en það,“ segir Kolbeinn
sem hefur hvorki krafist þess að vera skráður
sem meðhöfundur atriðisins né haft samband við
lögfræðing. Hann var í leikhúsi umrætt kvöld og
sá ekki atriðið.
„Fyrir það fyrsta skal ég nú ekki segja til um
að þeir hafi lesið pistilinn,“ segir Kolbeinn lauf-
léttur. „Kannski fengu þeir sömu hugmynd. En
að sjálfsögðu er það heiður að vera bendlaður
við Spaugstofuna – er ég ekki nýi Randver?
Með á bakvið tjöldin.“
Þrátt fyrir að Kolbeinn hafi ekki fylgst
með Spaugstofunni reglulega segist hann
vera aðdáandi. Spurður hvort fleiri pistlar
hans séu efni í grínatriði segir hann þá alla-
vega vera nógu marga. „En ég var yfirleitt
í ægilega alvarlegum og pólitískum málum
í bakþönkum, en það þykir kannski fyndið
í dag.“
Upplýsingafulltrúi BSRB hinn nýi Randver
BARA GRÍN Spaugstofan
virðist hafa gert sér mat úr pistli
Kolbeins Proppé á laugardaginn.
Kolbeinn gerir lítið úr málinu.
Fréttablaðið sagði frá því um
helgina að Benz-bifreið kvik-
myndagerðarmannsins Heim-
is Sverrissonar hafi verið stolið
fyrir utan heimili hans í síðustu
viku. Bíllinn er nú fundinn, en
glöggur lesandi rakst á hann
á bak við Austurbæjarskóla á
laugardag.
„Það var maður sem hringdi
í mig strax á laugardagsmorgni
og hafði þá rekist á bílinn á bak
við skólann. Ástandið á bílnum er
ekki gott, það var búið að stela öllu
innan úr honum sem var einhvers
virði auk þess sem hann var allur
úti í blóði, sprautunálum, sprautum
og blóðugum pappír,“ segir Heimir.
Bíllinn var einnig klesstur að
framan eftir árekstur við tökubíl
tökuliðs kvikmyndarinnar Gaura-
gang, en þjófarnir höfðu ekið bíln-
um aftan á tökubílinn.
Heimir segist ekki enn hafa lagt
í það að þrífa bílinn eftir þjófana
en gerir ráð fyrir að bíllinn fari á
verkstæði í vikunni. „Ég hafði mig
ekki í þetta um helgina, en er í dag
búinn að vera að leita að nýju húddi
og öðrum varahlutum svo ég geti
farið að tjasla honum saman,“ segir
Heimir sem er þakklátur fyrir að
hafa endurheimt gripinn. „Ég er
mjög þakklátur að bíllinn hafi
fundist þokkalega heill. Leitin að
þjófunum er nú í höndum lögregl-
unnar, þeir skildu í það minnsta
eftir sig nóg af sönnunargögnum,
bæði blóði og fingraförum.“ - sm
Fékk Benzinn aftur og blóðug-
ar sprautunálar í kaupbæti
ÞAKKLÁTUR Bíl Heimis Sverrissonar
var stolið í síðustu viku. Hann hefur nú
endurheimt gripinn og er þakklátur fyrir
það. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það sannaðist rækilega um liðna helgi að Ríó tríóið á sér dygga aðdáendur
þegar uppselt var á ferna tónleika sveitarinnar í Salnum í Kópavogi. Helgi
Pétursson og félagar voru svo ánægðir með viðtökurnar að þeir hafa
bókað aukatónleika á sama stað á fimmtudagskvöld.
Óvæntur bónus fyrir þá sem mæta á tónleikana
verður heimsókn Snorra Helgasonar en hann
er að ljúka tónleikaferð um Kanada og kemur við
á leiðinni til London þar sem hann gerir út
um þessar mundir. Og svo geta menn borið
saman og pælt í því hvort ungi maðurinn á
eitthvað í þann gamla. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tilboð kr.: 24.900
Verðlistaverð kr.: 33.200
Vinsælasta ryksugan frá Miele
Miele Tango Plus
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar, með
stillanlegu röri og úrvali fylgihluta. Þær hafa hlotið
hæstu einkunn hjá neytendasamtökum í Þýskalandi.
AFSLÁTTUR
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is