Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
SKULDAMÁL Ekki er frekara svig-
rúm til afskrifta húsnæðisskulda
að mati forsvarsmanna bankanna.
Það svigrúm sem skapaðist þegar
lánin voru færð úr gömlu bönkun-
um yfir í þá nýju með afföllum sé
nánast fullnýtt með þeim úrræð-
um sem þegar hefur verið gripið
til, og verði það örugglega þegar
gengistryggðu lánin verða leið-
rétt í samræmi við það sem segir í
nýframlögðu frumvarpi efnahags-
og viðskiptaráðherra.
Nýju bankarnir keyptu húsnæð-
islánin að meðaltali á 72 prósent
af kröfuvirði af gömlu bönkunum
samkvæmt upplýsingum sem Fjár-
málaeftirlitið hefur sent efnahags-
og viðskiptaráðuneytinu. Afföllin
voru samtals 90 milljarðar.
Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans, segir að þar á bæ
hafi menn verið að bæta í þá sjóði
sem ætlað er að standa straum
af niðurfærslum húsnæðislána
vegna svokallaðrar 110 prósenta
leiðar, lækkunar höfuðstóls geng-
istryggðra lána, og svo þeirra
aðgerða sem væntanlegar eru eftir
að frumvarpið um uppgjör gengis-
tryggðra og erlendra lánasamninga
verður að lögum. Það þýði í raun að
svigrúmið sem myndaðist sé horf-
ið, eða að bankinn sjái fram á að
það hverfi á næstunni.
Helstu hagsmunaaðilar komu
saman í Þjóðmenningarhúsinu í
gær á tveggja klukkustunda fundi
til að ræða niðurstöður reikni-
meistara ríkisstjórnarinnar.
Engin niðurstaða varð af fundin-
um. Fulltrúar Hagsmunasamtaka
heimilanna, Framsóknarflokksins
og Hreyfingarinnar halda enn fast
í þá skoðun sína að fara eigi í flata
niðurfærslu skulda, en aðrir telja
þá leið ófæra.
Helst er rætt um blandaða leið
sértækrar skuldaaðlögunar og
hækkunar vaxtabóta. Í sértækri
skuldaaðlögun fælist lækkun
greiðslubyrði fólks í vanda og enn
frekari lenging á lánstíma, en ekki
beinar afskriftir.
Önnur hugmynd er lækkun vaxta
í þrjú prósent. Hrafni Magnússyni,
framkvæmdastjóra Samtaka lífeyr-
issjóða, sem fjármagna Íbúðalána-
sjóð, hugnast ekki sú leið. „Vaxta-
lækkanir þýða skerðing á réttindum
sjóðsfélaga og það er ekki til mik-
ils að vinna ef við lækkum vexti og
skerðum um leið réttindin, þá erum
við komin í hring.“ - sh, bþs
Föstudagur
skoðun 20
12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Sænska jólageitin er 4,5 metrar á hæð og stendur
við IKEA í Kauptúni. Geitin, sem smíðuð er á Íslandi,
hefur verið skreytt rauðum borðum og jólaljósum
og lýsir nú upp skammdegið. Jólageitin er ættuð frá
Svíþjóð en þar skipar hún veigamikinn sess í jólahald-
inu. Frægasta geit Svía er Gävle sem er reist í bænum Gävle í desember ár hvert.
S öngkonan Valgerður Guðnadóttir fékk á dög-unum ljúffenga hráköku hjá mágkonu sinni Helgu Þórsdóttur og var fljót að fá hjá henni uppskriftina. „Hún er full af næringarefnum og alveg sér-staklega fljótleg sem spillir ekki fyrir. Hún er skreytt með val-hnetum og ristuðum kókosflögum en er efla l
Valgerður Guðnadóttir smakkaði hráköku hjá mágkonu sinni fyrir skemmstu og kolféll fyrir henni.Næringarríkt sælgæti
Kakan smakkast best með rjúkandi kaffisopa.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1 bolli döðlur1 bolli sveskjur1 banani
1 bolli valhnetur½ bolli ristaðar kókos-flögur
Krem:
70% svart súkkulaðiörlítil kókosolíaengiferduft
FLJÓTLEG HRÁKAKA með súkkulaði, sveskjum og döðlum
V iti
Verð 8.490 kr.
Villibráðar-hlaðborð
k b
b
21. o tó er - 17. nóvem erMatreiðslumeistarar Perlunnar velja hráefnivíðsvegar að til að útbúa bestu villibráð sem hægter að bjóða upp á. Nú getur þú notið þess besta í villibráðarhlaðborði Perlunnar. Fyrir mat er hægt að bragða á spænskum gæðavínum.
Góð tækifærisgjöf!
Jólahlaðborð Perlunnar hefst 18. nóvemberTilboð mán.-mið. 7.290 kr. — Verð: 8.290 kr.
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
12. nóvember 2010
veðrið í dag
12. nóvember 2010
266. tölublað 10. árgangur
HVÍT JÖRÐ Það var engu líkara en að allt væri á kafi í snjó í bænum Dukun á eyjunni Jövu í gær. Svo var
hins vegar ekki því aska úr fjallinu Merapi lagðist yfir bæinn eftir eldgos síðustu daga. Merapi er virkast eldfjalla á
Jövu, hefur gosið 68 sinnum síðan 1568. Nafnið Merapi þýðir í eldfjall. NORDICPHOTOS/AFP
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
6
0
8
Uppskriftin að föstudags-
pizzunni er á gottimatinn.is
Hagaborg er 50 ára
Með elstu leikskólum.
tímamót 30
-3
-4 -2
-3
-4
SNJÓKOMA norðanlands en bjart-
viðri sunnanlands. Strekkingur víða
með ströndum og hvessir norðvest-
anlands síðdegis. Frost á bilinu 0
til 7 stig.
VEÐUR 4
Allt í rugli
Tracey Cox og Tobba kryfja
íslensk stefnumót.
fólk 38
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
UTANRÍKISMÁL Hvorki ráðherrar né
sérfræðingar utanríkisráðuneyt-
isins vissu hver tilgangurinn var
með því að safna stuðningsríkjum
á lista fyrir innrás Bandaríkjanna
og Breta í Írak í mars 2008. Birt-
ing listans kom íslenskum stjórn-
völdum í opna skjöldu.
Þetta kemur fram í skjölum um
aðdraganda þess að Ísland var sett
á lista stuðningsríkja við innrás-
ina, sem utanríkisráðuneytið gerði
opinber í gær. Þar er staðfest að
Davíð Oddsson, þáverandi forsæt-
isráðherra, og Halldór Ásgríms-
son, þáverandi utanríkisráðherra,
ákváðu hinn 18. mars 2003 að
Ísland skyldi á listann.
Trúnaður ríkir enn um hluta
gagna ráðuneytisins. Heimildir
Fréttablaðsins herma að ekki þyki
rétt að birta skjölin, meðal ann-
ars vegna þess að hugsanlegt sé
að Alþingi skipi rannsóknarnefnd
til að fjalla um málið. Þau skjöl
sem ekki voru birt eru vinnuskjöl
og gögn um samskipti við önnur
ríki.
Hvorki Davíð né Halldór vildu
veita viðtal vegna málsins í gær. Í
tölvupósti frá Davíð segir aðeins:
„Ekkert bitastætt í þessu.“
- bj / sjá síðu 16
Enginn vissi hvernig átti að nota lista yfir viljugar þjóðir fyrir innrásina í Írak 2003:
Birting lista kom öllum á óvart
BÍÓDAGAR
HAUST 2010
SÉRBLAÐ FYLGIR
............
Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, og Gísli Tryggvason,
talsmaður neytenda, stungu bæði upp á því á fundinum í gær að settur yrði
á fót fjögurra til fimm manna hópur sem ætti að ná niðurstöðu í málinu.
Í honum yrðu fulltrúar ríkisstjórnarinnar, stjórnarandstöðu, lánveitenda og
skuldara, og þá vildi Gísli auk þess hafa í hópnum fulltrúa úr Hæstarétti.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun ekki hafa tekið vel í hugmynd-
ina og talið að nú væri tímabært að stjórnmálamenn leiddu málið til lykta.
Vildu vinna málið frekar í smærri hóp
Svigrúm til afskrifta fullnýtt
Húsnæðislán gömlu bankanna voru færð yfir í þá nýju með 90 milljarða afföllum. Svigrúmið til afskrifta
sem þar myndaðist er að mestu horfið með þeim aðgerðum sem stjórnvöld og bankarnir hafa þegar ráðist í.
Fræðimenn uggandi
Prófessorar vara við niðurskurði
á fjárframlögum til
rannsóknarstarfa.
föstudagsviðtalið 18
Sigurganga liða
Akureyrar
og HK hélt
áfram
í gær.
sport 46
HK og Akureyri á skriði
BRUNI Allt tiltækt slökkvilið á
höfuðborgarsvæðinu var kallað
í hesthúsahverfið í Mosfellsbæ
á ellefta tímanum í gærkvöldi
eftir að eldur kom upp í einu
húsanna. Hestamenn og fólk úr
nágrenninu kom hestunum strax
í öruggt skjól og ekki er vitað til
að þá hafi sakað.
„Það virðist vera sem eldurinn
komi upp úr þakinu, slökkvilið-
ið er nýkomið,“ sagði Jóhannes
Ingi Kolbeinsson, íbúi í Dverg-
holti, við Fréttablaðið í gær-
kvöldi, en hann þá var hann að
bjarga hestum úr brennandi
húsinu. Jóhannes Ingi dreif sig
á staðinn þegar hann varð elds-
ins var en hann býr í næsta
nágrenni.
Mikinn reyk lagði frá hest-
húsunum og yfir Mosfellsbæ.
Skyggni var lítið sem ekkert í
grennd við hesthúsabyggðina.
Slökkvilið var enn að störfum
þegar Fréttablaðið fór í prentun
á tólfta tímanum. - sh, kh
Öll hross sluppu úr bruna:
Eldur í hesthúsi
í Mosfellsbæ