Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 6
6 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Við erum í sannkölluðu hátíðarskapi,
frábær afmælistilboð og
25% afsláttur í hverri hillu!
Kíktu í heimsókn,
við tökum vel á móti þér.
25 ára!
Þín verslun | Seljabraut 54 | sími 557 1780
Opnunartími: Mán.–fös. 9–21 / lau.–sun. 10–21
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært þrjá unga menn, á aldrinum
átján ára til rúmlega tvítugs, fyrir
að kveikja í rútu í Vestmannaeyj-
um og brenna hana til kaldra kola.
Piltarnir eru ákærðir fyrir að hafa
valdið almannahættu með þessu
tiltæki sínu.
Atvikið átti sér stað aðfara-
nótt 1. apríl á síðasta ári. Rútan
stóð mannlaus og án skráningar-
merkja. Svo mikill hiti var af eld-
inum að klæðning og gluggarúð-
ur í nálægu húsi skemmdust, og
við lá að eldur blossaði upp í því.
Þar voru geymdir flugeldar, svo
og tæki og búnaður björgunar-
sveitar.
Í ákæru er tveim piltanna gefið
að sök að hafa í tvígang sótt eld-
fiman vökva úr geymsluhúsnæði
til að nota við íkveikjuna. Allir
komu þeir við sögu við íkveikj-
una sem mistókst í fyrra sinnið en
hafðist loks þegar þeir helltu vökv-
anum í rútuna, fleygðu vökvabrús-
anum inn í hana og báru eld að.
Í millitíðinni höfðu piltarnir ekið
um götur Vestmannaeyjabæjar til
að njósna um ferðir lögreglunnar.
Vestmannaeyjabær krefur
piltana um skaðabætur að fjár-
hæð rúmlega 180 þúsund krón-
ur. Ferðaþjónusta Vestmannaeyja
krefur þá um rúmar 3,3 milljónir.
- jss
Ríkissaksóknari ákærir þrjá unga menn fyrir íkveikju í Vestmannaeyjum:
Brenndu rútu til kaldra kola
VESTMANNAEYJAR Rútubruninn átti sér
stað í Vestmannaeyjum.
Ert þú sátt(ur) við niðurstöður
sérfræðingahóps um skuldir
heimilanna?
Já 30,4%
Nei 69,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hugnast þér vegatollar á þjóð-
vegum að höfuðborgarsvæðinu?
Segðu þína skoðun á visir.is
LONDON, AP Margir námsmenn
í Bretlandi telja að ólætin sem
settu svip sinn á mótmælin í
Lundúnum á miðvikudag, gætu
skaðað málstað námsmanna og
varpað skugga á kröfur þeirra.
Þetta segir íslenskur leiklistar-
nemi, Sigurbjörg Alma Ingólfs-
dóttir, að einkenni umræðuna í
hennar kunningjahópi, en hún
nemur við Rose Bruford Acting
College.
Sigurbjörg tók ekki sjálf þátt
í mótmælun-
um, en segir
í samtali við
Fréttablaðið
að fjölmargir
v ina hennar
hafi verið í
h ó pi þ e i r r a
5 0 .0 0 0 mót-
mælenda sem
gagnrýndu fyr-
irhugaða hækk-
un námsgjalda í háskóla landsins.
Hámarksgjöld fyrir Breta eru
3.000 pund eins og er, en áætlað
er að hækka gjöldin upp í 9.000
pund.
„Það var þarna hópur sem skap-
aði mestu vandræðin og kynti
undir öðrum með því að rétta
þeim steina og hvetja þá til að
grýta lögregluna eða rúður í nær-
liggjandi húsum.“
Í fréttaskeyti AP kemur fram að
þessi fámenni hópur hafi brotist
inn í höfuðstöðvar Íhaldsflokksins
og valdið þar miklum skemmdum.
Mótmælendur komust upp á þak
byggingarinnar og köstuðu þaðan
rusli, vatni og jafnvel slökkvitækj-
um og má mildi þykja að enginn
hafi slasast illa.
„Langsamlega flestir mættu
þarna til að láta í sér heyra,“
segir Sigurbjörg. „En það voru
því miður einhverjir sem komu á
staðinn bara til að valda uppþot-
um. Margir í þeim hópi voru ekki
einu sinni námsmenn.“
Sigurbjörg segir að stemning-
in meðal námsmanna í London
sé þannig að þó að vissulega hafi
ólætin dregið athygli að kröfum
námsmanna þá voru skemmdirnar
svo miklar að það gerði málið nei-
kvæðara.
„Þannig að það eru margir ósátt-
ir við það hvernig þetta fór. Þetta
gekk of langt og fólki finnst ekki
sem rétt skilaboð hafi komist til
skila.“
Aðspurð segir Sigurbjörg að enn
sé reiði í námsfólki og mögulega
stemning fyrir því að stofna aftur
til mótmælaaðgerða. „En menn eru
hræddir um að ólætin gætu endur-
tekið sig.“
Miklar deilur ríkja enn um málið
sem kemur sérstaklega illa út fyrir
flokk Frjálslyndra demókrata sem
lofaði fyrir kosningarnar fyrr á
árinu að afturkalla skólagjöldin,
sem fyrst voru sett á af stjórn Tony
Blair fyrir um áratug.
thorgils@frettabladid.is
Óeirðaseggir gætu
skaðað málstaðinn
Íslenskur námsmaður í London segir mikla reiði enn ríkja vegna fyrirhugaðra
hækkana á skólagjöldum í háskóla. Fámennur hópur hleypti upp friðsömum
mótmælum. Námsmenn óttast að skilaboð þeirra hafi ekki komist til skila.
SIGURBJÖRG ALMA
INGÓLFSDÓTTIR
LÆTI Í LONDON Námsmenn fjölmenntu til að mótmæla fyrirhuguðum hækkunum á
skólagjöldum í breska háskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI
Meiri Vísir.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.
SKÓLAR Nýbygging Háskólans í Reykjavík
(HR) við Nauthólsvík var vígð við hátíðlega
athöfn í gær þar sem Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra og Magnús Júlíusson,
formaður Stúdentafélags HR, lögðu hornstein
að byggingunni. Steinn þessi er ansi merki-
legur því um er að ræða fimm kílóa loftstein
sem lenti á jörðinni fyrir um 4.000 árum. For-
svarsmenn skólans ákváðu að þar sem megin-
hugsunin í hönnun hússins sé jörðin og himin-
geimurinn, væri vel við hæfi að hafa loftstein
sem hornstein skólans. Því réðust bakhjarlar
HR í það verkefni að festa kaup á steininum
og nutu til þess aðstoðar Stjörnuskoðunarfé-
lags Seltjarnarness.
Vígsla hússins markar tímamót hjá HR þar
sem nú er öll starfsemi skólans komin undir
eitt þak. Byggingin er sem stendur um 30.000
fermetrar, en byggingu tveggja smærri álma,
hefur verið skotið á frest sökum efnahags-
ástandsins. Um 3.000 nemendur eru nú við
skólann og við hann starfa um 270 manns.
Við athöfnina í gær hélt forseti Íslands tölu
og Jón Gnarr borgarstjóri kynnti samstarf
HR, Reykjavíkurborgar og Skógræktarfélags
Íslands um uppbyggingu útivistarsvæðisins í
Öskjuhlíð. - þj
Nýbygging Háskólans í Reykjavík var vígð við hátíðlega viðhöfn í gær:
Loftsteinn lagður sem hornsteinn HR
LÖGÐU LOFTSTEIN Menntamálaráðherra og formaður
nemendafélags HR lögðu hornstein að nýbyggingu
skólans í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJÖRKASSINN